Alþýðublaðið - 27.11.1959, Side 9
Tekin hefur verið up
Flokkaglíma
Rvíkur 1959
BEYKJAVÍKURFLOKKA-
GLÍMAN fer fram þriðjudag-
inn 8. des. í íþróttahúsi ÍBR að
Hálogalandi.
Keppt verður í þrem þyngd-
arflokkum. Auk drengja- og
unglingaflokks.
Þátttökutilkynningar berist
til Gunnlaugs J. Briem, sími
1500 fyrir 4. des.
Glímufélagið Ármann sér um
glímuna.
deildaskipting í Val
Frá Áðalfundi Knatfspyrnufélagsins Vals
AÐALFUNDUR Vals hófst
4. nóv. sl. og var að þessu sinni
í þrem áföngum og lauk ekki
fyrr en 22. s. m. Fundarstjóri
vair Einar Björnsson, en fund-
arritari Jón Þór Jóhannsson.
Auk hinna hefðbundnu aðal-
fundarstarfa lá fyrir fundinum
frumvarp að nýjum lögum fvrir
félagið, sem gerði ráð fyrir gjör
breytingum á starfsháttum þess
með því að tekin yrði upp
deildaskipting.
Skýrsla stjórnarinnar og laga
frumvarpið lágu fyrir fundin-
um fjölritað. Sveinn Zoega, for
maður félagsins, fylgdi skýrsl-
unni úr hlaði með stuttri fram-
söguræðu. Skýrslan skiptist í
tvo meginkafla. Störf stjórnar-
innar og störf nefnda og ráða.
Fyrri kaflinn m. a. í starfs-
skiptingu, nefndaskipanir, ýms
störf og viðskiptin við útiönd.
Síðari kaflinn um störf knatt-
spyrnunefndar, um þátttöku fé-
lagsins í mótum, en félagið tók
þátt í öllum knattspyrnumótum
keppnistímabilsins. Meistara-
flokkui' varð annar í röðinni, I.
fl. sigraði í miðsumarsmótinu.
Um starfsemi unglingaráðsins
og þátttöku yngri flokkanna, en
Valur send'i alls níu lið til
keppni í unglingamótunum og
sigruðu þar þrjú lið félagsins.
Bæði eldri og yngri flokkar
fórd í alhnörg ferðalög á árinu-
Fundir voru haldnir bæði með
hinum yngri og eldri flokkum.
HMMUMUtWMMMMWmWM
IÁ MYNDINNI er aðal- j!
stjórn Knattspyrnufélags ;[
ins Vals ásamt stjórnum I
hinna ýmsu deilda fé- j >
lagsins, en þær eru skíða- '!
deild, knattspyrnudeihl ;
og handknattleiksdeild. 1!
Þá er nákvæm tafla yfir gengi
flokkanna í hinurn ýmsu mót-
um. í yfirliti um þátttöku í
handknattleiksmótum á árinu
sést, að mikil grózka er í þessari
íþróttagrein innan Vals og að fé
lagið tók þátt í öllum handknatt
leiksmótum starfsársins, að und
anskildu íslandsmeistaramóti
karla utanhúss, þá fóru hand-
knattleiksflokkar, bæði konur
og karlar, til Færeyja í júlímán
uði og kepptu víðs vegar um
eyjarnar. Tafla, er sýnir úrslit
leikjanna, fylgir og með. Skíða
skálinn var rekinn með svipuðu
sniði og sl. ár og var mikið sótt-
ur. Fulltrúaráðið starfaði vel á
árinu og hélt 5 fundi. Fræðslu-
og skemmtistarfsemi gekk vel.
Allmörg skemmtikvöld voru
haldin auk árshátíðar, Skáklíf
var fjörugt og efnt var til hrað-
skákmóta, fjölteflis og innan-
félagsmóta. Skákmeistari Vals
1959 varð Gunnar Gunnarsson.
Þá var bridge iðkað sem áður
og spilað vikulega. Valsblaðið
kom út eins og ákveðið hafði
verið, og jólatrésfagnaður fór
fram á vegum félagsins í heim-
ili þess að Hlíðarenda. íþrótta-
húsið var starfrækt með svip-
uðu sniði og áður, en það tók til
starfa í nóvember 1959. Er hús-
ið fullsetið, bæði af félagsmönn
um og meðlimum annarra í-
þróttafélaga og æfingar þar öll
kvöld vikunnar.
Félagsheimilið var einnig
starfrækt að svipuðum hætti og
undanfarið, til fundahalda og
skemmtana. Auk þess var heim
ilið leigt Kennaraskóla íslands
til æfingakennslu að deginum
til.
Á félagssvæðinu var mikið
unnið að undirbúningsstörfum
til ræktunar og fegrunar.
Á árínu gekkst stjórnin fyrir
fjáröflunum til ýmis konar fé-
lagslegra framkvæmda, bæði
með hlutaveltu og happdrætti.
Á árinu lézt Jón Guðmunds-
son verzlunarstjóri, en hann
var 3. formaður Vals. Var hans
minnzt í Valsblaðinu. Jón var á
sínum tíma mikið starfandi
bæði sem formaður og kappliðs-
maður.
Mikið vai' rætt innan stjórn-
arinnar og fulltrúaráðsins um
skipulag félagsins ogleiddu þær
umræður til þeirra lagabreyt-
inga, sem lagðar voru fram og
gera ráð fyrir deildaskiptingu.
Á framhaldsaðalfundi, sem hald
inn var 15. þ. m., var frumvarp
ið borið upp, eftir að það hafði
verið rætt á sérstökum fundum
með væntanlegum deildarmeð-
limum, en tillaga um það var
samþykkt á fundinum 4. nóv.
Frumvarp vai’ samþ. óbreytt
eins og það kom frá nefnd
þeirri, er það samdi. Voru síð-
an haldnir stofnfundir deild-
anna og stjórnir þeirra kosnar.
Em stjórnirnar eru skipaðar
þessum félögum: Knattspyrnu-
deild: Ægir Ferdinandsson for-
maður, Elías Hergeirsson, Her-
mann Hermannsson, Páll Arons
son og Jón Þór Jóhannsson. —
Handknattleiksdeild: Jón Krist
jánsson formaður, Áslaug Bene
diktsdóttir, Jón Þórarinsson,
Sveinn Kristjánsson og Sigurð-
ur Guðmundsson. Skíðadeild:
Guðmundur Ingimundarson for
maður, Guðmundur Guðjóns-
son, Sigurður Marelsson, Guð-
mundur Ásmundsson og Stefán
Hallgrímsson.
Þriðji og síðasti áfangi aðal-
Framhald á 10. síSu.
LEIÐRÉTTING.
Á íþróttasíðunni í gær, þar
sem sagt var frá árangri í lang-
stökki án atrennu varð sú prent
villa, að Kristján Kolbeinsson
misritaðist í staðinn fyrir Krist
jón Kolbeins.
♦—------------------------
MÁL OG MENNING. HEIMSKRINGLA.
NYJAR BÆKUR
Halldór Stefánsson: FJÖGRA MANNA
PÓKER. Þetta er önnur skáldsaga hins
þjóðkunna smásagnasnillings. Spenn-
andi nútímaróman úr Reykjavíkurlíf-
inu, sem vekja mun verðskuldaða at-
hygli, ekki sízt yngri kynslóðarinnar.
William Heinesen: í TÖFRABIRTU.
Þetta smásagnasafn hins færeyska hcf-
uðskálds hefur hiotið frábæra dóma er-
lendis sem eitt töfrum slungnasta verk
höfundarins. Um þýðingu Hannesar Sigfússonar þarf
ekki að spyrja.
Jakobína Sigurðairdóttir: SAGAN AF SNÆBJÖRTU
ELDSDÓTTUR OG KETILRÍÐI KOTUNGSDÓTTUR.
Skemmtilegt ævintýri handa börnum með teikningum
eftir Barbörnu M.'Árnason.
Jóhannes úir Kötlum: VÍSUR UM INGU DÓRU. Tíu
smábarnaljóð með teikningum eftir Gunnar Ek. Gam-
alkunn lög má nota við flesta textana.
Lisbeth Werneir: SKOTTA FER ENN Á STÚFANA.
Málfríður Einarsdóttir þýddi. Þetta er fjórða bókin í
hinum vinsæla barnabókaflokki um Skottu.
Nú eiga eldri sem yngri erindi í
BÓKABÚÐ MÁLS 06 MENNIMGAR
Skóiavörðustíg 21. Sími 15055.
Umsóknir um námsstyrki
Tifkynning frá Mennfamáíaráði íslands.
Umsóknir um styrki eða lán af fé því, sem væntan-
lega verður veitt á fjárlögum 1960 til íslenzkra náms-
manna erlendis eiga að vera komnar til skrifstofu
Menntamálaráðs að Hverfisgötu 21 eða í pósthólf 1398,
Reykjavík, fyrir 1. janúar nk.
Til leiðbeiningar umsækjendum vill Menntamálaráð
taka þetta fram:
1. Námsstyrkir og námslán verða eingöngu veitt ís-
lenzkum ríkisborgurunum til náms erlendis.
2. Styrkir eða lán verða ekki veitt til þess náms, sem
auðveldlega má stunda hér á landi.
3. Umsóknir frá þeim, sem lokið hafa kandídatsprófi,
verða ekki teknar til greina.
4. Framhaldsstyrkir eða lán verða ekki veitt, nema
umsókn fylgi vottorð frá menntastofnun þeirri, sem
umsækjendur stunda nám við. Vottorðin eiga að vera
frá því í nóvember eða desember þ. á.
5. Umsóknir skulu vera á sérstökum eyðublöðum, sem
fást í skrifstofu Menntamálaráðs og hjá sendiráðum
íslands erlendis. Prófskírteini og önnur fylgiskjöl
með umsóknum þurfa að vera staðfest eftirrit, þar
eð þau verða geymd í skjalasafni Menntamálaráðs,
en ekki endursend.
Áthygli skal vakin á því, að Bókabúð Menningai'sjcðs,
Hverfisgötu 21, hefur til sölu bækling um námsstyrki
og námslán, gefinn út af menntamálaráðuneytinu, þar
sem m. a. eru birtar reglur þær, sem gilt hafa um út-
hlutun námsstyrkja, yfirfærslu námsmannagjaldeyris o.
fl. Bæklingurinn kostar 10 kr.
Hjartanlega þakka ég þeim mörgu, nær og fjær, sem sýndu
mér samúð og hluftekningu við hið sviplega fráfall eiginmanns
míns,
AÐALSTEINS ÁRNA BALDURSSONAR.
Sérstaklega þakka ég Húsvíkingum og nærsveitamönnum.
fyrir frábæra hjálpsemi, aðstoð og peningagjafir til litla
drengsins míns.
Guð blessi ykkur öll.
Anna Sigmundsdóttir.
Auglýsingasími
Alþýðublaðsins
er 14906
Alþýðublaðið — 27. nóv. 1959 $