Skírnir

Ukioqatigiit

Skírnir - 02.01.1858, Qupperneq 19

Skírnir - 02.01.1858, Qupperneq 19
XXI Félagar þeir sem andazt hafa á umlibnu ári eru þessir: Antonius Antoniusson, úngur maíiur efnilegur, skrifari hjá sýslumanninum í þíngevjar sýslu ; Erlendurþórarinsson, sýslu- mafcur í ísafjar&ar sýslu, úngur ma&ur á bezta aldri og hib vin- sælasta yfirvald hjá sýslubúum sínum, og hugljúfi hvers manns sem þekkti hann; Gottskálk Jónsson stýrimabur, hann var norban af Sléttu og hafbi lært hér sjómannafræ&i, en var síban nýkominn til íslands og var meib fiskiskipum í Eyjafirbi. Allir þessir þrír hafa drukknab í vötnum eba sjó. Sira Jón Reykjalín, fyrrum prestur ab Ríp, fjörugur og líflegur öldúngur, andabist á ferfe sinni austur ab Heydölum, sem hann hafbi nýfengib; Jón Sveinsson hreppstjóri á Saubanesi í Húnavatns sýslu og Sigurfeur Jónsson hreppstjóri á Hrísum í Eyjafirfei, heibarlegir menn af bændastétt; Snæbjörn Snæbjarn- arson Benediktsen, fyrrum verzlunarstjóri í Reykjavík, var einn af þeim sem varö í hinu vobalega tjóni meb póstskipinu seinast í November í vetur. Auk þessara, sem sálabir eru, hafa níu sagt sig' úr félaginu á þessu ári, en þar á móti hafa gjörzt félagsmenn hér í deildinni 90 og í deildinni á Islandi 16; kemur þá fram tala sú sem eg upp- haflega gat um, ab félagsmenn hafa fjölgab um- hérumbil hundrab síban í fyrra; er þab reyndar ekki nærri eins mikib og tvö undan- farin ár, en þó svo mikib ab vér megum vel vib þab una. ~ Nú afhendi eg ybur, háttvirtu herrar og félagsbræbur, forseta- dæmi þab, sem eg hefi eptir kosníngu ybar haft á hendi árlángt, og þakka eg innilega ybur öllum, en þó sérílagi samþjónum mínum, embættismönnum og vara-embættismönnum deildarinnar, sem veittu félagiuu forstöbu í allt fyrra sumar í fjarvist minni, og bæbi fyr og síbar hafa styrkt mig, alla þá abstob og fullkominn góbvilja sem þeir hafa aubsýnt mér.” Síban voru kosnir embættismenn og vara-embættismenn, eptir laganna fyrirmælum, og voru kosnir allir hinir sömu og ábur, nema til varabókavarbar var kosinn Gunnlaugur Blöndal, stud. juris. Til heibursfélaga var kosinn Kristján Magnusen kammerráb, sýslumabur í Dala sýslu.

x

Skírnir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.