Alþýðublaðið - 29.12.1959, Qupperneq 1
Þs’iðjudagur 29. desembcr 1959
Siglufirði, 28. des. — HÉRNA
hefur verið sérlega gott veður
um jólin, •Ofurlítill snjór er á
jörð, aðeins föl á götunum og
bílfært um allan bæinn.
LjóSaskreytingar á húsum
hafa aldrei verið meiri og er
bærinn mjög fallega skrýddur.
Báðir togararnir voru í höfn
um jólin. — Enginn eldsvoði
og engin slvs hafa orðið hér
um hátíðirnar svo vitað sé.
Kirkjusókn var mikil, sér-
staklega á aðfangadagskvöld,
en þá varð að koma fyrir auka-
sætum í kirkjunni. — J. M.
TOGARINN Karlsefni var i
I*ýzkaiandi í viðgerð og athug-
un fyrir jói. Var togarinn úti
í 5—6 vikur a£ þessurn sökum.
Kom hann heim rétt fyrir há-
tíðar. Skömmu síðar fór hann
á veiðar.
Er hann hafði verið skamma
hríð úti urðu skipverjar þess
varir, að mikill leki var kom-
inn að skipinu. Við athugun
kom í ljós, að eina negluna
vantaði og tvær aðrar voru
HANDVOMM.
Hér mun hafa verið um að
kenna handvömm þeirra er
höfðu skipið til athugunar úti
í Þýzkalandi. Mun hreinlega
hafa gleymzt að láta negluna í
skipið.
::::::::
VERKAMAÐUR hjá Ríkis-
skip sá lík á floti í höfninni, —
vestur af Grófarbryggju, um kl.
10 í gærmorgun. Lögreglunni
var þegar gert aðvart og likinu
náð upp úr höfninni.
Við rannsókn kom í ]jós, að
þetta var lík Baldurs Jafetsson-
ar, Bröttukinn 6, Hafnarfirði,
sem síðast spurðist til 2. nóvem-
ber s. 1.
ÞAR sem hun er að
mála mynd af nauta-ati,
á það sem bezt við, að
stúlkan er klædd á mexi-
kanska bændavísu — að
hennar dómi. Hún heitir
Jina Shelsber og er 24
ára. Hún er um þessar
mundir önnum kafin við
list sína suður í Róm.
HÉR eru vinningsnúmer-
in í aukadrætti Happ-
drættis Atþýðublaðsins,
sem fram fór á aðfanga-
dag, eins og lofað hafði
verið:
479 — 635 — 2213 —
4120 — 4164.
Handhafar miðanna,
sem nú eru oi'ðnir eigend-
ur að húsmunum fyrir kr.
5000,00, eru beðnir að
snúa sér til aðalskrifstofu
HAB á 2. hæð í Alþýðu-
húsinu í dag klukkan 2 til
3 eða á morgun á sama
tíma.
: VIÐ BIÐJUM EÍGEND
UR HAPPDRÆTTIS-
MÍÐA HAB AÐ AT-
HUGA AÐ MIÐAR
ÞEIRRA GILDA LÍKA
FYRIR NÆSTA DRÁTT,
SEM VEBÐUR 7. MARZ.
Og þá kemur fyrsti
Volkswagen-bíllinn í spil-
ið!
Burns lætur af
stjórn gæzlu-
liðs SÞ í Gaza
Gaza, 28. des. NTB-Reuter).
BURNS, hershöfðingi, af-
henti í dag yfirstjórn gæzluliðs
Sameinuðu þjóðanna á Gaza-
svæðinu í hendur indverska
hershöfðingjans Syan. Stuttu
síðar fór Burns flugleiðis til
Kanada, þar sem hann mun
verða ráðgjafi stjórnarinnar í
afvopnunarmálum. Hafði hann
verið yfirmaður gæzluliðsins
síðan það var stofnað við lok
legri, og þótt lögreglan
ætti all annríkt, var það
Erekar vegna óhappa ýmis
konar og umferðarslysa í
hálkunni en óþekktar
tnannfólksins.
Margir notuðu veðurblíðuna til
þess að fara gangandi til þess að
gera jólainnkaupin, fólk er að
venjast af því að nota Lauga-
veginn os verzlar meira í út-
hverfum, og loks umfangsmikl-
ar ráðstafanir lögreglunnar.
Jólin sjálf voru mjög róleg.
Ölvun var nokkur, en ekki
þurfti að setja fleiri í kjallar-
ann en venja er. Töluvert ann-
ríki var hjá lögreglunni annan
og þriðja jóladag, Þá daga var
mjög slæm færð og margir á-
rekstrar urðu vegna ísingar á
vegum. Slys urðu á fólki, en
ekki þó alvarleg.
REYKVIKINGAR voru
góðu börnin um jólin og
hlutu að launum afbragðs
gott jólaveður.
Kirkjur voru fullar út
úr dyrum, jólaskreyting
höfuðstaðarins hefur ald-
rei verið fegurri og glæsi-
Nazistisk
ofsókn
Sjá 5. síðu
BlaSið hefur Iilerað
Að Vilhjálmur Þ. Gísla-
son, útvarpsstjóri, fái
um 20 þúsund krónur
fyrir umsjón og upp-
lestur í þættinum „Á
bókamarkaðinum“.
Lögreglustjórinn í Reykjavík
hefur skýrt Alþýðublaðinu svo
frá, að fyrir jólin hafi umferð-
in gengið greiðlega, lítið um
slys og stórárekstra. Ástæðurn-
ar fyrir greiðri umferð telur lög
reglustjóri aðallega þrjár: —