Alþýðublaðið - 17.01.1960, Side 7

Alþýðublaðið - 17.01.1960, Side 7
Talsæsími milli f GÆR var lögð inn formleg pöntiin á fyrirhuguðum talsæ- síma milli íslands og Kanada með viðkomu í Suður-Graen- landi. Pöntunin var gerð af Mikla norræna ritsímafélaginu og Canadian Overseas Telecom- munication Corporation í sam- einingu. Framleiðandinn er Felt en og Guilleaume í Þýzkalandi, sem hafði boðið lægst verð. í fréttatilkynningu frá póst- og símamálastjórninni segir, að endanlegur talrásafjöldi hafi ekki verið ákveðinn ennþá, en. 'það verður gert innian tveggja mánaða. Sæsíminn verður tii- búinn sumarið 1962. Þessi sæ- sími er nefndur Icecan, en sæ- síminn milli íslands og Bret- lands, sem var paníaður 1. apríl Kirsten Flag- stad lætur af sförfum OSLÓ, 14. jan. (NTB). — Stjórnárformaðurinn í norsku óperunni, Olav Lid, sagði í við- tali við Aftenposten í dag, að Kirsten Flagstad hefði beðizt lausnar sem stjórnandi óper- unnar. Frú Flagstad er nú í sjúkra- leyfi og býst að verða lengi frá. Hún telur bezt að stjórn- arnefndin ráði eftirmann hennar. fyrra árs, er nefndur Scotice, og á að verða tilbúinn haustið 1961. Fyrsti talsíminn vestur yr.r Atlantshaf var lagður 1956 milli Bretlands og Kanada (Ný- fundnalands) og nefndur Tat og var með 36 talrásum. Á síð- asta haustri var annar slíkur sæsími lagður milli Frakklands og Kanada. Hann er með 80 tal- (eða Tat 2) einnig með 36 tal- rásum. Á næstia ári á að leggja þriðja Atlantshafssæsímann og á hann að liggja milli Bretliands og Knada. Hann er með 80 tal- rásum og er nefndur Oantat. — Fjórði slíkur sæsími yfir At- lantshafið var pantaður í dag, svo sem að fnaman getur, milli íslnds og Kanada, og má líta á hann sem framhald af áður pöntuðum sæsíma milli Bret- lands og Islands. Þess má geta, að áðurnefnd- ur sæsími Cantat, sem liggur beint á milli Bretlands og Kan- ada, er raunverulega fyrsti lið- urinn í fyrirhuguðu sæsímia- kerfi brezka samveldisins, seih felur í sér sæsíma frá Kanada tij Ástralíu og svo til Indlands, Suður-Afríku og þaðan aftur til Bretliands eftir nokkurs konar hringferð um hnöttinn, og er kotsnaðurinn áætlaður sem svarar nokkrum milljörðum kr. Af öðrum fyrirhuguðum úthafs sæsímum má nefna fyrirhugað- an talsíma milli Japan og Bandaríkjanna 1965. Allir þessir talsímar eru með neðansjávarmögnurum qg gefa gott talsamband, líkt og um inn anbæjarsamband væri að ræða. Eins og í gamla daga MYNDIN hér fyrir ofan er af upphengingu skreið ar. Tveir unglingar eru hér að vinnu, eri margur unglingurinn hefur unnið í skreið og haft gaman af. Sjá fréttina hér fyrir neðan. WMWWWWWWWWVMWW Skreiðar- fundur STJÓRN Samlags skreiðar- framleiðenda samþykkti á fundí fyrir nokkru að efna til fundar með verkstjórum hjá skreiðar- framleiðendum þeim, sem eru félagsmenn í samlaginu, með það fyrir augum að vinna að betri verkun og bættri meðferð skreiðar. Fundur þessi var haldinn í Reykjavík, dagana 11. og 12. þ. m. Fyrri daginn var flutt erindi um meðferð og verkun skreiðar af formanni samlagsins, Óskari Jónssyni, en seinni diaginn flutti erindi Sigurður Haralds- son efnaverkfræðingur af hálfu Fiskifélags íslands. Sýndi hann mjög fróðlegar skuggamyndir um gerlagróður í fiski þeim, — sem fær slæma meðferð áður en honum er skilað á verkunar- stöðvarnar. Báða dagana voru verkstjór- um sýndar skreiðargeymslur og ýmsar tegundir skreiðar bæði í Reykjavík og Hafnarfirði undir leiðsögn Kristjáns Elíassonar skreiðarmatstjóra og Gunnars Sigurðssonar fiskimatsmanns. MEÐAL þeirra sérfræðinga, sem sézt hafa fiara á stjóm- arfundi um undirbúning efnahagstillagna, eru þessir: Jónas Haralz, Jóhannes Nordal, Klemienz Tryggvason, Benjamjin Eiríksson, Kristinn Gunnarsson, Davíð Ólafsson, Már Elías- son og Ólafur Björnsson. ... Flest eru þetta fastir starfsmennt ráðuneyta, hagstofu, fiskiféLags eða bankanna, til kailáðir sem slíkir. :[■ Það er stöðugt verið að reyna að auka söíu á fryst- um vörum á meginlandi Evrópu, m. a. fyrir tilsíilli OEEC. ... I fyrra voru til dæmis opnaðir sex sölustaðir fyrir frystan fisk á sex helztu sölutorgum Rósnabcrgar, og seldu þeir um löö kg á dag hver, en verð á „ferskumð* fiski lækkaði. Reykjavíkurbær hefur keypt Eystri Hamar við Suður- landsbraut vegnia skipulagsbreytinga. Það eru fleiri en íslenlingar, sem hlusta mikið á bandá- rísku útvarpsstöðina í Keflavík. ... Fyrir hátíðir heyrðist að næturlagi til hennar alla leið til Englands og írlands og þóttui mikil tíðndi um svo litla stöð, ekki sízt af því segultruflanir eru taldar þannig í þessum hluta heims, að erfitt sé að út-.. varpa langt, jafnvel með sterkum stöðvum, eins Og Ríkisút-. varpið og Austfirðingar vita bezt. MEÐAN' BEÐIÐ ER eftir efnahagstillögum stjórnar- innar hafa ýmsir áhugamenn um pólitík rifjað upp, hvað gerðist fyrir réttum 10 árum. ... Þá flutti minnihluta- stjórn Sjálfstæðisflokksins frumvarp umi gengisbreyt- ingu, Framsókn Éutti vantraust á stjórnina vegna frunv* varpsins, vantraustið var samþykkt og síðan gekk Franv* sókn til samstarfs við Sjálfstæðismenn og flutti frunv varpið með þeim. ... Hvað sltyldi maddaman gera r.ú? Sigurjón Björnsson segir í erindi, sem Menntamál prent- uðu nýlega: „... segir mér svo hugur um, iað hrein tauga- veiklun muni vera talsvert minna útbreidd nú á íslandi eö áður var, en sennilega mun bera nokkru meira á hegðunar- vandkvæðum. Sjálfur sjúkdómurinn er enn við lýði, en hiann mun hafa að nokkru leyti breytt um svip: fi stað þess að bitna fyrst og fremst á sjúklingnum sjálfum, bitnar hann nú meira á umhverfi hans. Þessi breyting á svipmóti sjúkdómsins ái sennilegia rætur að rekia til þeirra miklu breytinga, sem orð- ið hafa á íslenzku þjóðlífi á síðari árum.“ . . . Sigurjón telujr íslendinga vera á eftir öðrum þjóðum í geðverndarniálum. Richard Beck skrifar grein um frænda sinn Ríkharð Jóns- son, í síðasta hefti : „American Scandinaviaini Review.“ Séra Gunnar Árnason skrifar í síðasta hefti Kirkjiuiis- ins og segir meðal annars: „Það eru tvenn tiltölulegiai ný lög um hörn, sem ég hef aldrei getað fellt mig við og finnst se varhugaverðari sem lengra líður.“ ... Þetta eru lögin um rétt mæðra til að feðra ekki börn sin og lögiri, sem heimila for- eldrum að gefa börn sín. .. . Sr. Gunnar færir fram rök gega báðum lögunum. . Eiríkur lætur af kaupfélagsstjórn ÞINGEYRI, 3. jan. — Á síðast- liðnu ári hefur verið gengið fullkomlega frá uppsetningu frystivéla í frystihúsi Kaupfé- lags Dýrfirðinga. Hefur vél- smiðjan Héðinn í Reykjavík séð um uppsetningu vélanna. Verið var að ljúka við uppsetn- ingu á færiböndum og miðstöð í húsinu. Hefur því verið unnið í fiski- móttöku-salnum um hríð, eða síðan bátarnir byrjuðu róðra í nóvember. Er nú hafin vinna í flökunar- og pökkunarsal. Mótorbáturinn Þorbjörn byrj aði róðra 27. nóvember og hef- ur fiskað 123 tonn. Flosi hefur fiskað 125 tonn í 17 róðrum. Fjölnir byrjaði róðra 4. desem- ber og hefur fiskað 87 tonn. Upp kom í Fjölni þurrafúi og hefur hann verið í slipp til við- gerðar. Fjölnir hefur verið út- búinn ratsjá og er fyrsti fiski- báturinn, sem hingað kemur með ratsjártæki, svo og sigl- inga- og fiskileitartækjum. Flosi og Fjölnir eru gerðir út af fiskiðju Dýrafjarðar. Frétzt hefur, að fiskiðjan hafi samið um smíði á 70 tonna bát í skipasmíðastöð Marsehusar Bernharðssonar á ísafirði. Samningar munu þegar undir-* ritaðir af báðum aðilum, eiii eitthvað lítið mun standa á efni í bátinn. Fxétzt. hefur með vissu, að Framlhald á 14. síðu. Álþýðubiaðið — 17. jan. " 1960

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.