Alþýðublaðið - 22.01.1960, Side 14
nmunatí
hvern virkan dag
Ólafsvík, 16. jan.
AÐ KVÖLDI hins 1. jamiar
s. 1. fóru fjórir bátar héðan í
fyrsta róðurinh á þessari ver-
tíð. Bátunum hefur smáfjölgað
og hafa nú 11 bátar hafið róðra.
Vonir standa tii að vertíðarbát-
ar verði alls 14, auk smærri
báta, sem sennilega fiska með
handfæri síðari híuta vertíðar-
innar.
Hinn 15. janúar höfðu alls
verið farnar 88 sjóferðir og afl-
inn orðið 580 tonn af fiski upp
úr sjó. Fjórir hæstu bátarnir
eru þessir:
Stapafell 90,5 tonn.
Jón Jónsson 88 tonn.
Hrönn 87,2 tonn.
Bjarni Ólafsson 80,8 tonn.
Allir bátarnir fengu þennan
afla í 12 róðrum. Skipstjóri á
Stapafelli er Tryggvi Jónsson.
Einmunatíð hefur verið síðan
á áramótum og róið hvern virk
3n dag.
Fiskverkunarstöðin Hrói hef
ur tekið í notkun Baader haus-
unar- og flatningsvélar, sem
inn eru fluttar frá 'V.-Þýzka-
landi. Vélar þessar hausa og
fletja 24 fiska á mínútu eða
um 10 tonn á klst.
Unnið hefur verið að því síð
an í haust, a"ð breyta aðgerðar-
húsi fyrirtækisins og undirbúa
það fyrir uppsetningu þessara
véla. Hefur verið sett í það
mjög fulkomið færibandskerfi,
sem flytur hvaðeina á sinn stað.
Jafnvel slorið er flutt í sérstaka
kassa og seit til fiskimjölsfram
leiðslu.
Landssmiðjan sá um upp-
setningu á færibandakerfinu,
en maður frá verksmiðjunni
hefur annazt tengingu vélanna
og leiðbeinir um notkun þeirra
fyrst í stað.
Forstjóri og aðaleigandi
Hróa er Víglundur Jónsson, —
O.Á.
Knaitspyrna
Framhald af 11. síðu.
inn Grillo og hægri útherji
Bean. Jafnteflisleikur Fioren-
tina og Alessandria kom mjög
á óvart. Alessandria hafði 2:0 í
hálfleik, en síðan skoraði Fior-
entina 3 mörk í röð — Hamrin,
Petris og Santini, en 3 mín. fyr-
ir ileikslok jafnaði heimaliðið.
iSampdoria gladdi mjög á-
hangendur sína með sigrinum
yfir Roma, en félagið hefur orð
ið fyrir miklu mótlæti upp á
síðkastið. Leik Lazio og Genoa
var frestað eftir 90 sek. leik
vegna bleytu á vellinum.
ÚRSLIT úr 15 umferð ítölsku
deildarkeppninnar urðu þessi:
AlessandriajFiorentina 3:3.
Bologna-Milan 0:3.
Inter-Udinese 3:3.
Juventus-Bari 2:0.
Lanerossi-Palermo 3:0.
Napoli-Padova 1:2.
Sampdoria-Roma 3:0.
Spal-Atlanta 1:0.
Lazio-Genoa (frestað).
H úsmæðrafélag
Reykjavíkur 25 ára
NÆTSKOMANDI mánudag
verður Húsmæðrafélag Reykja
víkur 25 ára, en það var stofn-
að 25. jan. 1935.
Tildrög að stofnun félagsins
Voru þau að nýrri mjólkurlög-
gjöf hafði verið komið á, en
með þeirri löggjöf var hætt,
heimsendingu mjólkur, og olli
það mikilli óánægju húsmæðra
hér í bæ.
Fyrsta verk félagsins var að
safna undirskriftum húsmæðra
undir áskorun um að taka upp
aftur heimsendingu mjólkur.
Þegar það ekki dugði fóru hús-
mæður í verkfall, það er að
ss£Ha þær hættu að kaupa
miólk, nema handa börnum sín
um en bá miólk fengu þær út
á Ivfseðla. Út af þessu spunn-
ust mikil málaferli þar sem
nokkrum konum úr stjórn fé-
Iagsins var stefnt fyrir rétt, og
þæ^ dæmdar fyrir atvinnuróg.
Á næstu árum kom félagið
upp heim'li fyrir fátækar kon-
ur o<? börn, en sú starfsemi
laeðist niður á stríðsárunum.
Siðan kemur félagið á hvíldar-
vikum fvrir húsmæður, en í
þeim tóku þátt 50 konur ár-
íega.
Næst kemur félagið á fót
námskeiðum í saumaskap, mat
reiðslu og bastvinnu, og standa
þsn námskeið enn í miklum
blóma. Það sem hamlaði félag-
inu mikið í byrjun var hús-
næðisleysi, en úr því raettist fyr
ir nokkrum árum þegar félagið
fékk sitt núverandi húsnæði í
Borgartúni 7. Og vill félagið
færa öllum þeim, sem hafa gert
þeim kleift að hafa það húsnæði
— alúðar þakkir.
Núverandi stjórn félagsins
er skipuð þeim: Jónínu Guð-
mundsdóttur, form., Margrét
Jónsdóttur gjaldk., S'offía Ól-
afsdóttir ritari, Þórönnu Sig-
marsdóttur og Þórcþsi Andrés-
dóttur. Félagið mun halda upp
á afmæli sitt í Þjóðleikhúss-
kjallaranum n. k. mánudag.
Juventus 15 11 2 2 40:11 24
Milan 15 8 4 3 23:12 20
Inter 15 7 6 2 26:16 20
Spal 15 7 6 2 18:11 20
Fliorent. 15 8 3 4 33:17 19
Bologna 15 7 3 5 22:16 17
Padova 15 6 3 6 15:19 15
Roma 15 5 4 6 18:22 14
Atlanta 15 4 6 5 13:16 14
Sampdor. 15 5 4 6 17:22 14
Lazio 14 3 7 4 11:18 13
Lanerossi 15 5 3 7 15:19 13
Udinese 15 3 7 5> 15:20 13
Napoli 15 4 4 7 14:21 12
Aless. 15 1 10 4 10:21 12
Palermo 15 2 7 6 10:18 11
Bari 15 4 3 8 10:19 11
Genoa 14 '2 2 10 8:20 6
Samsæri í
Venezuela
Caracas, 21. jan. (NTB-
Reuter. — Margir þekktir borg
arar eru meðal þeirra 60 borg-
ara og 32 liðsforingja, sem hand
teknir hafa verið í Venezuela
í sambandi við meint samsæri
gegn ríkisstjórninni, segja op-
inberir aðilar hér í dag. Telur
lögreglan sig hafa gert upptæk
skjöl, er sanni, að ætlunin
hafi verið að myrða forseta
landsins, Romulo Betancourt,
og José Henriques, herráðk-
foringja.
Stjórnmálaleiðtogar Vene-
zuela, sem upp á síðkastlð hafa
átt í ofsalegum erjum, virðast
hafa grafið stríðsöxina vegna
þeirrar ógnunar, sem stjórnin
stendur frammi fyrir, og al-
þýðusambandið með 1,1 millj-
ón meðlima er reiðubúið til að
verja stjórnina.
Drukku fyrir
176 milljónir
Á ÁRINU 1959 hefur áfeng-
issalan hér á landi auk!zt um
tæplega 30 milljónir króna frá
árinu 1958. Ef miðað er við ár-
ið 1955 hefur áfengissalan auk-
izt um tæplega 90 milljónir
króna. í' fyrra nam áfengissal-
an á hvert mannsbarn í land-
inu 1035 kr., en árið 1955 nam
hún 566 kr. Heildarsalan s. 1.
ár var 176 milljónir. Snemma
á árinu 1959 varð nokkur hækk
un á áfengi, svo að þessi sam-
anburður gefur ekki alveg
rétta mynd af áfengissölunni.
Keppt um
nýjan bikar
NÆSTKOMANDI sunnudag
24. þ. m. verður háð í Þjóð-
leikhúskjallaranum Skákþing
Reykjavíkur. Mun þar verða
teflt um titilinn Skákmeistari
Reykjavíkur 1960. Miklar líkur
eru á því að Friðrik Ólafsson
verði njeðal keppenda í úr-
slitakeppninni. Á þessu móti
verður teflt um nýjan bikar,
sem Tryggingarmiðstöðin h.f.
hefur gefið. Til þess að vinna
bikar þennan til fullrar eignar
þarf að vinna hann 3var í röð,
eða fimm sinnum alls.
«•<. ---,,:ÍS5»»-
sssx-x&S
; Flugfélag
fslands.
Millilandaflug:
Millilandaflug:
Hrímfaxi fer til
, Khafnar
__og Hamborgar
‘ kl. 8.30 í fyrra-
málið. Innan-
dag
----- . er áætlað að
fljúga til Akur-
eyrar, Fagurhólsmýrar,
Hólmavíkur, Hornafjarðar,
ísaf jarðar, Kirkjubæjarklaust
urs og Vestmannaeyja. Á
morgun er áætlað að fljúga
til Akureyrar, Blönduóss, Eg
ilsstaða, ísafjarðar, Sauðár-
króks og Vestmannaeyja.
-o-
Veðriö:
Allhvass'austan;
snjókoma.
landsflug: í
er áætlað
Eimskip.
Dettifoss fer frá
Gdynia á morgun
til Ábo, Ventspils,
Gdynia og Ro-
stock. Fjallfoss
kom til Rotter-
dam í gær, fer þaðan vænt-
anlega í dag til Antwerpen,
Hull og Rvíkur. Goðafoss fór
frá Súgandafirði í gær til ísa
fjarðar, Skagastrandar, Ólafs
fjarðar, Akureyrar og þaðan
til Austfjarða, Vestm.eyja og
Rvíkur. Gullfoss kom til K.-
hafnar í gær frá Hamborg.
Lagarfoss kom til New York
20/1, fer þaðan 26/1 til R.-
víkur. Reykjafoss kom til
Rotterdam í gær og fór þaðan
í gærkvöldi til Hamborgar.
Selfoss er í Keflavík, fer það-
an til Háfnarfjarðar, Esbjerg,
Gdynia, Rostock, Fredrikstad
og Khafnar. Tröllafoss fór frá
Hamborg 16/1, kom til Rvík-
ur í gærkvöldi. Tungufoss fór
frá Akureyri í gærkvöldi til
Siglufjarðar, ísafjarðar, Súg-
andafjarðar, Þingeyrar, Kefla
víkur og Reykjavíkur.
Jöklar.
Drangajökull er í Reykja-
vík. Langjökull fór frá Ham-
borg í fyrrakvöld til Austur-
Þýzkalands. Vatnajökull fór
frá Vestmannaeyjum 19. þ.
m. á leið til Grimsby, Hull,
London, Boulogne og Rotter-
dam.
Hafskip.
Laxá er á leið frá Ystad til
Stettin.
S ly savarðstof an
hefur beðið blaðið að geta
þess, að frétt þess í gær um
konuna, sem gleypt hafði eit-
-o-
NÆTURVARZLA. Vikuna
16.—22. þ. m. hefur Lyfja-
búðin Iðunn næturvörzlu.
Sími 17911.
-o-
VKF Framsókn
fjölmennið á skemmtifund-
inn í Iðnó í kvöld kl. 9. —■
Góð skemmtiatriði.
-o-
Frá Guðspekifélaginu. Rvík-
urstúkan heldur fund í
kvöld, föstudaginn 22. þ.m.
kl. 8,30 á venjulegum stað,
Fundarefni: 1. Grétar Fells
flytur erindi er hann nefn-
ir; „Draumar og dulhyggja“
2. Spurningum svarað. —■
Kaffi að lokum. Allir vel-
komnir.
-o-
AFMÆLI: Sextíu ára er í dag
Friðrik Gíslason, kirkju-
vörður Laugarneskirkju, —•
Hofteigi 19, Reykjavík.
-o-
Föstudagur
22. janúar:
18.30 Mannkyns-
saga barnanna. —
18.50 Framburð-
arkennsla í
spænsku. 19.00
Tónleikar: Lög
úr óperettum. —■
20.30 Þorravaka:
ísl. kórar syngja.
, Vísnaþáttur. Frá-
fsöguþáttur% 22.10
Erindi: íslenzk
sveitamenning
(Jón H. Þorbergs
son bóndi á Laxamýri). 22.30
í léttum tón. 23.00 Dagskrár-
lok.
-o-
LAUSN HEILABRJÓTS:
Fjórðungur hringsins er
teiknaður svona:
Vandræði á
Kongó-fundi
Briissel, 21. jan. (NTB-AFP).
SENDINEFND þjóðarhreyf-
ingarinnar í Kongó (MNC) á-
kvað í dag að mæta ekki til
frekari viðræðna um sjálfstjórn
nýlendunnar. Orsökin til þess-
arar ákvörðunar er, að dómstóll
í Stanleyville dæmdi í dag for-
mann hreyfingarinnar, Patrice
Lumumba, í sex mánaða fang-
elsi, en hann var sekur fund-
inn um að viðhafa and-belgísk
orð á pólitískum fundum. —
Nefndin mótmælti dóminum og
telur nauðsynlegt, að Lumum-
ba sé viðstaddur viðræðurnar
í Briissel.
3 7 manns
farast
KINGSTON, Jamaica, 21.
jan. (NTB). 37 manns létu lífið
er farþegaflugvél fórst í lend-
ingu í Kingston í dag. í vélinni,
sem var Super-Constellatio frá
dótturfélagi Pan-Americanfé-
lagsins,AVIANCA, var með 48
manns innanborðs, en 11 sluppu
lifandi er eldur kom upp í henni
við lendingu.
|_4 22. jan. 1969 — Alþýðublaðið