Alþýðublaðið - 26.01.1960, Síða 14
STEFNUSKRA
Framhald af 13. síðu.
betra í hug. Bókaútgefendur
ættu að vera gagnrýnendur
sjálfir og eiga það undir vel-
virkni sinni hvort þeir gera
þjóðina ólæsa með útgáfu
myndasagna eða setja sig
strax á höfuðið með illu les-
málsvali, ellegar mennta um-
hverfi sitt og græðaáþví. Eins
og málum er háttað hefur út-
gefandi heyrzt halda því fram
til afsökunar útgáfu sinni á
bók, er hann taldi ekki borg-
andi ritlaun fyrir, að hann
hefði hleypt kverfjandanum í
gegnum prentsmiðju til bess
að veita fáráðlingnum, höf-
undi þess, kost á því að snúa
Utsala
Útsölunni verSur
sér út skáldalaun fyrir verk-
ið, þótt hvorki gæti hann hald
ið að sér höndum né gert
borgunarvert verk.
Athöfn útgefandans, hafi
hann túlkað tilgang sinn rétt,
minnir óþægilega á Ijósahald
fyrir þjóf að starfi, og er
greinilega óheiðarleg, en að
hún var yfir höfuð hugsan-
leg, byggist á styrkjapólitík
ríkis og styrkþega. Á ávöxt-
unum skuluð þér þekkja þá.
Jafnvel þótt verðskuldunar-
lausír svokallaðir listamenn,
eins og gert var ráð fyrir í
þessu dæmi, þættu metnaðar-
sök til tölufyllingar í stéttina
eða væru taldir á einhvern
Utsala
haldið áfram.
veg „fínt“ þjóðfélagsfyrir-
bæri þá virðist slíkur tildur-
peningur nú um sinn fullkom
in ofrausn. Það er óráð að
hafa nokkra stétt þjóðfélags-
ins og enn frekar ef fleiri eru
fyrir, neins konar kjöltu-
rakka, þarf að vísu ekki að
vera beint skaðlegt ef nóg er
til alls og greyið er hreinlegt
og vel vanið að öðru, en svo
frek getur skepnan orðið, að
ekki sé þolandi og einhvern
veginn minnir stefnuskráin
hastarlega á þá afleiðingu
eldisins. Það er auk þess ekki
örgrannt um að fram komi
óþægileg minning kröfu um
afnotagjald segulbandstækja
og út frá því spurning um
hvað af annarra verkum og
hvernig fengið maður mætti
nota og hvað væntanleg verð-f
skrá muni meta þá athöfn að
raula fyrir munni sér í heima-
húsum lag eftir íslenzkan
listamann ef það- þá væri til
við vísu Páls lögmanns Vída-
líns:
Arngrímur geymir illan
mann,
enginn trúi ég það rengi,
þeir eru vinir Þórður og hann,
en það verður ekki lengi.
En hún kynni að koma ýms-
um vel um það leyti, sem
stefnuskráin fengi lagagildi.
Vísast eru allar tegundir
lista nauðsynlegar vitrækt og
siðferðisþroska manna engu
síður en bætiefni fæðunnar
líkamshreystinni, en til þess
að vera annað og meira en
hundingjaháttur verður öll
list að vera að nokkru leyti
gjöf eins og öllu lífi verður
að vera lifað að nokkru leyti
í þágu annarra. Stefnuskrá
Bandalags íslenzkra lista-
manna kynnir ekki neina til-
hneigingu þeirra til að gefa
neinum neitt, ekki einu sinni
þakklæti fyrir fengnar erfðir
og menningu hvað þá endur-
gjald þeirra.
Þar er aðeins einn strengur
leikinn: hemjulaus heimtu-
frekjan og hljómur hans er
ljótur. Það er furðuefni að
vænir menn og vandaðir skuli
hafa gefið það gaul frá sér.
Skýringarinnar er líklega að
leita í múgsefjun. það verði
allir vondir og gleymist til-
lit til annarra og þakkar-
skuldir við þá ef þeim svifar
saman mörgum líkrar tegund-
ar til þess að leita fjárplógs
og fengs fyrir eigin munna, og
verður það á að halda sig
ríki í ríkinu eða jafnvel ríki
yfir ríkinu.
Sigurður Jónsson frá Brún.
TIL SÖLU.
Svefnherbergishúsgögn
ljós, sem ný, einnig sófi
og 2 stólar (stoppað)
Til sýnis að Hagamel
14, kjallara.
Kvenkjólar, vandaðir frá kr: 300. —
Vetrarkápur, nýjar kr. 1900,00 — áður 3000,00
Persian pelsar kr. 6000.00 — áður 9900.00
Bamakjólar frá kr: 90.00.
Peysur, ull frá kr. 100.00. og m. fl.
Aðalstræti 18.
10 fonna vörubíll
eða 10 tonna undirvagn óskast til kaups.
Tilboð óskast send blaðinu merkt: 10—T.
Innilega vil ég þakka vinum mínum fjær og nær,
sem minntust mín á 75 ára afmæli mínu 20. janú-
ar með gjöfum, heimsóknum og skeytum. Sérstak-
lega vil ég þakka börnum mínum og tengdabörn-
um, sem á allan hátt gerðu mér daginn ógleyman-
legan.
Guð blessi ykkur öll.
Jóhanna G. Árnadóttir,
Patreksfirði.
Til leigu
stór bílkrani (Michigan T-20). — Upplýsing-
ar á skrifstofu bæjarverkfræðings í Hafnar-
firði.
Kærar þakkir öllum þeim sem á einn eða annan hátt hafa
sýnt samúð og vinarhug við andlát og jarðarför
GUÐBJARGAR JÓHANNSDÓTTUR.
Börn, tengdabörn og barnabörn.
Flugfélag
íslands h.f.:
Millilandaflug:
Gullfaxj er
væntanlegur
■til Rvk kl. 16,
10 í dag frá K-
mh. og Glas-
gow. Hrímfaxi
fer til Glas-
gow og Kmh.
kl. 08.30 í
fyrramálið. —
Innanlandsflug: í dag er á-
ætlað að fljúga til Akureyr-
ar, Blönduóss, Egilsstaða, —
Flateyrar, Sauðárkróks, Vest
mannaeyja og Þingeyrar. —
Á morgun er áætlað að fljúga
til Akureyrar, Húsavíkur, —
ísafjarðar og Vestmanna-
eyja.
Loftleiðir h.f.:
Hekla er væntanleg kl. 7,15
frá New York. Fer til Glas-
gow og London kl. 8.45.
Eimskipafélag
íslands h.f.:
Dettifoss fór frá
Odynia 25.1. til
Ábo, Ventspils,
Gdynia og Ro-
stock. Fjallfoss
fer frá Hull 27.1.
til Rvk. Goðafoss fer frá Ak-
ureyri í dag 25.1. til Ólafs-
fjarðar, Siglufjarðar, Skaga-
strandar, Austfjarðar, Vestm.
eyja og Rvk. Gullfoss fer frá
Kmh. 26.1. til Leith og Rvk.
Lagarfoss fer frá New York
26.1. til Rvk. Reykjafoss kom
til Hamborgar 23.1. fer þaðan
til Rvk. Selfoss fór frá Hafn-
arfirði 22.1. til Esbjerg, Fred
rikstad, Gdynia, Rostock og
Kmh. Tröllafoss kom til Rvk
21.1. frá Hamborg. Tungu-
foss fer frá ísafirði í dag 25.
1. til Flateyrar, Þingeyrar og
Keflavíkur.
Skipaútgerð ríkisins:
Hekla kom til Rvk í gær
að vestan úr hringferð. Esja
er í Rvk. Herðubreið fer frá
Rvk á morgun vestur um
land í hringferð. Skjaldbreið
fer frá Akureyri í dag á vest-
urleið. Þyrill er á leið frá
Fredrikstad til Fáskrúðsfjarð
ar. Herjólfur fer frá Vestm.-
eyjum kl. 21 í kvöld til Rvk.
Baldur fer frá Rvk í dag til
Sands, Gilsfjarðar- og
Hvr.mmsfjarðarhafna.
Jókiar h.f.:
Drangajökull er í Rvk. —
Langjökull fór frá Skagen í
gæimorgun á leið hiaga'5 t:'l
lands. Vatnajökull fór frá
Grimsby í fyrrinótt til Hull,
London, Bologne og Rotíer-
dam.
Skipadeild S.Í.S.:
Hvasafell er í Rostock. Arn
arfell fór í morgun frá Rvk.
áleiðis til New York. Jökul-
fell fór í gær frá Kmh. á-
leiðis til Rvk. Dísarfell fer í
dag frá Stettin áleiðis til Aust
fjarðahafna. Litlafell er á leið
til Faxaflóa frá Norðurlands
höfnum. Helgafell er væntan
Veðrift:
N.-A. gola; bjart; hiti
um frostmark.
Næturvarzla: Vikuna 23.—
29. verður næturvarzla í Vest
urbæjar apóteki. Sími 22290.
-o-
Slysavarðstofan er opin all
an sólarhringinn. Læknavörð
ur LR fyrri vitjanir er á sama
stað frá kl. 18—8. Sími 15030.
-o-
Viðtalstími minn í Hallgríms
kirkju verður framvegis kl.
4—5 síðdegis. Lárus Hall-
dórsson.
Frá Kvenfélagi Frikirkjusafn
aðarins Rvík. Félagskonur
munið skemmtifundinn mið
vikudag (morgun) 27. þ. m.
í Tjarnarkaffi niðri kl. 8,30.
-o-
Þriðjudagur
26. janúar:
18.30 Amma seg-
ir börnunum
sögu. 18.50 Fram
burðarkennsla í
þýzku. 19,00 Tón
leikar: Harmon-
ikulög. 20.30 Dag
legt mál (Árni
Böðvarsson cand.
mag.). 20.35 Út-
varpssagan: „Al-
exis Sorbas“, eft-
ir Nikos Kazant-
zakis, í þýðingu Þorgeirs Þor
geirssonar; II. lestur. 21.00
Tónleikar: Þjóðlög frá ísrael.
21.30 Erindi: Vormerki and-
legs þroska (Grétar Fells rit-
höfundur). 22.10 Hæstarétt-
armál (Hákon Guðmundsson
hæstaréttarritari). 22.30 Lög
unga fólksins. 23.25 dagskrár
lok.
LAUSN HEILABRJÓTS:
Fyrsta talan, sem 32
ganga upp í fyrir 1945, er
1920, en þá hefði Níels átt
að verða 60 ára gamall og
ekki deyja fyrr en 1980.
Næsta tala á undan, sem 32
ganga upp í, er 1888. Það
gefur 59 ára aldur. Hann
dó sem sagt 1947 og var 57
ára árið 1945.
-o-
VIÐ aðkeyrslu að mann-
ætugistihúsinu var skilti
með þessari áletrun:
— Grand hotel, bezta hót-
el hér um slóðir. — Við
matreiðum yður alveg eftir
yðar eigin ósk . . .
legt til Vestmannaeyja 23. þ.
m. frá Ibiza. Flamrafell er
væntanlegt til Rvk 23. þ. m.
frá Batum.
jahúar 1960 —Alþýðublaðið