Alþýðublaðið - 28.01.1960, Blaðsíða 1
YFIRHEYRSLUM vegna frí-
merkj'amálsins hélt áfram í
gær. Þá voru ýmsir starfsmenn
póstmálaskrifsíofunnar teknir
til yfirheyrslu.
Pétur Eggerz, póstmálantari,
var settur í gæzluvarðhaJd í
fyrrakvöld, Hann er enn í varð-
haldij að því blaðið bezt veit.
Einar Pálsson, skrifstofustj.
hjá Póst- og símamálastjóm-
inni, mun hafa verið látinn laus
úr varðhaldi í gærdag.
MIKIL bókhaldsóreiða
kom upp hjá fyrirtækinu
Cudogler h.f. á síðastliðnu
hausti. Bókhald fyrirtæk-
isins var sent í endurskoð
un um mánaðamótin nóv-
em'ber — desember og um
svipað leyti var skipt um
forstjóra. Sá er'lét af störf
um heitir Ingvar Ingvars-
son, sem fyrrum var for-
stjóri Glerverksmiðjunnar
h.f.
Samkvæmt upplýsingum sem
blaðið hefur fengið, mun hafa
komið í ljós, að mikill fjárdrátt
ur og bókhaldsóreiða hefur átt
sér stað hjá fyrirtækinu. Hef-
ur heyrzt að fjárdrátturinn
nemi 800 til 900 þúsundum og
að valdið hafi Ingvar Ingvars-
son, þáverandi forstjóri.
Cudogler h.f. rekur verk-
smiðju, sem framleiðir tvöfalt
rúðugler. Stjórn fyrirtækisins
skipa eftirtaldir menn: Þorvald
ur Þorsteinsson, formaður, Jó-
hann Pálsson, varaformaður og
Eiríliur Björnsson.
tWWWWWWWWWWWM
BRÚSSEL, 27. ján. (NTB-AFP)
— Samkomulag náðist í dag á
ráðstefnunni um framtíð Kon-
gó og verður nýlendan sjálf-
stætt ríki 30. júní n. k. Það var
ráðherra Kongó og Ruanda-Ur-
undi, Auguste de Schrijver,
sem kom fram með þessa mála-
miðlunartillögu, en Kongó-
menn höfðu stungið upp á 1.
júní og hann sjálfur upp á 1.
eða 15. júlí.
ALÞINGI kemur saman
í dag, og verður fundur í
sameinuðu þingi á venju-
legum tíma, klukkan hálf
tvö eftir hádegi. Líklegt
er, að hið endurskoða fjár
lagafrumvarp verði lagt
fram fyrir helgi, en ekki
var í gær búizt við, að
frumvörpin um sjálfar
efnahagsráðstafanir ríkis-
stjórnarinnar komi fram
fyrr en eftir helgi.
Ríkisstjórnin hefur enn setið
á daglegum fundum þessa víku,
oftast með sérfræðingum sín-
um í efnahagsmálum.
Á dagskrá sameinaðs þings í
dag eru sex þingsályktpnartil-
lögur, sem lagðar höfðu verið
fram, er þingstörfum var frest-
að í byrjun desember. Um fjór-
ar þeirra verður aðeins ákveð-
ið, hvernig ræða skuli, það er
hvort hafa skuli um þær eina
eða tvær umræður. Eru þar til-
lögur um hafnarstæði við Hér-
aðsflóa, Veðdeild Búnaðarbank
ans, Siglufjarðarveg og Sam-
starfsnefndir launþega og
vinnuveitenda. Tvær koma til
umræðu, önnur um Hagnýt-
ingu kaupskipaflotans og hirt
um Vinnslu sjávarafurða á
Siglufirði.
REYKJAVÍKURLÖGREGLAN
handtók 3 pilta í fyrrinótt, sem
hún stóð að innbroti í Tjarnar-
bíói. Piltarnir höfðu brotið
glugga, sem þeir fóru inn um,
búnir verkfærum til innbrots-
starfa. Þeir voru gripnir áður
en fyrirætlanir þeirra heppn-
uðust.
Herranótt
í RÁÐI er að Herranótt
Menntaskólans frumsýni gam-
anleik eftir William Douglas
Home næstkomandi þriðjudag
kl. 8. Hjörtur Halldórsson
menntaskólakennari hefur gert
I þýðinguna.
j Æfingar á leikritinu hafa
l staðið yfir frá því í nóvember,
en af sýningum hefur ekki orð
i.ð fyrr en þetta vegna húsnæð-
isskorts. Sýningar verða að
þessu sinni fáar vegna þessa
örðugleika og er fólki því ráð-
lagt að tryggja sér miða á
fyrstu sýningarnar.