Þjóðólfur - 23.04.1851, Blaðsíða 6

Þjóðólfur - 23.04.1851, Blaðsíða 6
 þriftja blaöið, sem er J>ví verra, til þess að hæla stjórnarblaðinu, en niða niður liitt, ef nokkurt er. Mjer sýnist |>ess vegna, að stjórnin ætti að semja við einhvern, sem er á lausu lopti, sem optast eru einhverjir í Vík- inni, hálflærðir j>ó ekki sjeu |>eir hálærðir, um að taka að sjer blað hennar; liún gæti lofað manninum, meðan hún á ráð á |>ví, betri kjörum við prentsmiðjuna, en öllum öðr- um, svo að j>að væri j>ó fyrir einhverju að gangast; en að öðru leyti skyldi það vera skaði eða ábati mannsins sjálfs, hvernig blað- inu reiddi af. Með f>essu móti hefði þá lika stjórn vor á boðstólum atvinnuveg handa ein- um marini fleiri, en áður; og lítið er lítið! Mikið þykir nijer vænt um, að j>jer líkar vel „Nýársgjöfin; og jeg gat ekki varið mig að hlægja, þegar j>ú sagðir, að stúlkurnar allar á bænum, og eldakerlingin lika, hefðu kom- ið hlaupandi hver með sinn áttskilding, til að kaupa blöðin; svo vefðu þær þau innan i spariklútana sína milli þess þær læsu þau; en að þú hefðir komið að kerlingunni optar en einu sinni, þar sem hún hefði róið á hlóð- arsteininum með tárin í augunum, ogtaliðsjer tölur, að hún skyldi ekkert barnið liafa get- að átt uni æfina, til þess að láta það erfa eptir sig svona falleg heilræðablöð. jþú trú- ir því ekki, vinur minn! hvað mjer þykir vænt um kvennfólkið þitt fyrir þetta, ekki svo vegna áttskildinganna, eins og fyrir hitt, að þær meta blöðin eins og mjer finnst þau eiga að nokkru leyti skilið. Jeg álítað rjett hver maður ætti að vilja eignast heilræðablöð þessi; því að bæði innihalda þau mörg heilsu- samleg sannindi, og svo er sannleikurinn í þeim framsettur á þann hátt, að menn hafa ekki not af honum, þó að j>eir heyri grein- urnar að eins einu sinni, eða hlaupi lauslega yfir þær; heldur útbeimta þær ílestar athygli og íhugun, eigi menn að komast til hlítar að efni þeirra. Jegskil aldrei í þeim mönnum, sem hafa svarað mjer því, — þegar jeg hef spurt þá, hvort þeir vildu ekki eignast Nýársgjöf- ina? — ekkí, ekki gef jegum hana; hún er sjálfsagt góð, því þetta eru Sýraks orð og Salomons hyggindi; en jeg hef heyrt það allt áður! J>að er eins og sumum inönnum nægi að vita, hvar sannleikann er að finna, og hugsa að sjer *je borgið fyrir það, þó þeir , aldrei birði um að leita hans þar; og hefjeg tekið eptir því, að aldrei kemurþessi villaeins viðbjóðslega fram, eins og á Bibliunni. Jeg þarf því raunar ekki að kippa mjer upp við það, þó að heilræðablöð min eigi fyrir sliku að verða; en þeir skulu eiga mig á fæti, drengirnir, sem eru svona við Salómon og Sýrak, ef jeg fer einhvern tíina í stólinn aptur. Skilaðu samt til hennar Gróu göinlu frá mjer, að jeg ætli nú að senda lienni í sumargjöf viðlika mörg lieilræði og eru á Nýársgjöfinni; hefur húnþá’fengið hjer um bil 500 greinir. Og það máttu segja henni, að ekki muni jeg hætta við beilræðin, fyr en þau skipta þúsundum. Já vona jeg að Gróa kerling hafi fengið nokkuð til að gráta af; enda ræð jeg þjer til, að hafa hana ekki úr því fyrir eldakerlingu, því ekki mun upp- komast i hlóðunum Ijós logi fyrir tárum hennar. fíuffve/ija fyrir foreldra. Læknirinn: Er J>jer enn þá illt í kýlinu, veslingsbarn ? Barnið: Nei, jeg kenni ekkert til í þvi. Móðirin: varst þó áðan að kvarta yfir verki; því segir þú ekki sannleikann? Barnið grátandi: Ef jeg segi frá því, þá kemur maðurinn með bíldinn. Læknirinn: Ef (>ú vilt ekki láta stinga á kýlinu, j>á batriar þjer aldrei. Barnið grátandi: Jeg vil heldur að mjer sje jllt, en sjá ólukkubíldinn. Móðirinn liöst: 'þú átt þó ekki að segja ósatt; lýgin er ljótasti löstur; þú átt æfin- lega að segja sannleikann, mundu eptir því! Daginu eptir kemur kona af næsta bæ, og heiinsækir nióður barnsins, sem fagnar henni með mestu blíðu. Eru þær að skrafa saman, en barnið ríslar sjer á gólfinu. Já tekur konan barnið upp í kjöltu sjer og seg- ir: Hvernig lizt þjer á mig, góða barn ? Barnið: Skelfing illa! Konan: Hvað kemur til þess? Barnið: Afþví þú ert svo ljót ogheimsk. Konan brosandi: Af hverju veiztu, að jeg er heimsk. Barnið: Hún móðir mín hefur sagt það. Móðirin: Hvaða ósannindi fer þú með, heimskinginn þinn!

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.