Þjóðólfur - 23.12.1862, Side 4
— 32
að sýnast, einsog það líka er undir þeim komið,
hvort renturnar skuli greiðast þeim, er í sjóðinn
hafa goldið eptir réttri tiltölu, eða þeim eigi að
bæta við höfuðstólinn.
5. gr.
Félagið tryggir skipseigendr fyrir skaðu á skip-
um bæði á sjó og landi innan og utan vertíðar.
6. gr.
Ef skaðí fyrir kemr, sem félagið er skyldugt
að bæta þeim, er líðr, á hann fyrst að borgast af
ábyrgðarsjóðnum, en skyldi hann eigi verða nógr til
skaðabóta, á það, er vantar, að jafnast niðr á öll
þau skip, er í félaginu eru, að réttri tiltölu sam-
kvæmt virðíngarupphæð þeirra.
7. gr.
Sá skaði verðr eigi bættr af félaginu, erbein-
línis má tileinka ásetníngi eða skeytíngarleysi skips-
eigenda eða þess formanns, er fenginn er fyrir
skipið, hvort sem hann á hlut í skipinu eða eigi,
þareð hann, eptir landslögum og rétti hefir ábyrgð
skipsins, meðan hann er fyrir það settr, og skal
hann í því efni hafa nákvæma tilsjón með háset-
um sínum.
8. gr.
Sá skaði, er ekki nemr 1 ríkisdal á hinn svo
nefnda hlut skipsins, skal ekki bættr verða, ekki
heldr þó árar skipsins missist eða brotni, þó sá
skaði nemi ofangreindu verði; og skulu eigendr
þess skips, er skaða líðr, jafnan með kröfu sinni
um skaðabætr innsenda til stjórnarmanna félagsins
skýran og sanngjarnan reikníng yfir hinn liðna
skaða, þar þeir að öðrum kosti eigi fá hann bætt-
an. Farist skipið með öllu á sjó eðalandi, verðr
skaðinn bættr eptir virðíngu þeirri, er sett var á
skipið við virðíngargjörð þá, er halda skal rétt fyr-
ir vertíð hverja á skipum þeim, er í félaginu eru,
einsog segir í 2. gr., þó skal frá virðíngarupphæð
þessari dragast það, er við opinbert uppboð fæst
fyrir það af áhöidum eða flekum skipsins, er bjarg-
að verðr eða kann á land að reka.
9. gr.
Fyrir vertíð hverja skulu skipseigendr kjósa
3 menn, er halda eiga reiknínga félagsins og hafa
stjórn þess á hendi til næstkomandi vertíðar, og
skulu þeir við árslokin fram leggja skýran og ná-
kvæman reikníng yfir tekjur og útgjöld ábyrgðar-
arsjóðsins fyrir það ár, er þeir eru kosnir; og á
þeim ársfundi, er halda skal jafnan í lok Janúar-
mán., skýra frá gjörðum félagsins og um Ieið stínga
upp á þeim breytíngum eða viðbótum við lög fé-
lagsins, er þeim virðast nauðsynleg.
10. gr.
Auk hins árlega fundar, er halda skal, cinsog
um er getið í undangángandi grein, fyrir vertið
hverja, eru stjórnarmenn félagsins skyldugir til að
kveðja til almenns fundar, þegar einn þriði hluti
skipseiganda krefst þess bréflega af þeim, til þess
að ræða um ýms mikilvæg málefni félagið áhrær-
andi. Svo skulu og stjórnarmenn kalla saman
skipseigendr til almenns fundar, þegar þeim virð-
ist efi leiki á, hvort skaði sá, er eitthvert skip
verðr fyrir, eigi að borgast af ábyrgðarsjóðnum.
11. gr.
Atkvæðagreiðsla á fundum skal jafnan fara
eptir upphæð þeirra skipshluta, er hver félagsmaðr
á, en ekki eptir höfðatölu, þannig að sá, er hálf-
an hlut á, hefir eilt atkvæði, o. s. frv. og skal
jafnan fara eptir því, sem meiri hluti ákveðr.
12. gr.
Allir reikníngar og allt það, er snertir félag
þetta, skal innfærast í bók þá, er til þessa skal
löggildast af sýslumanni, og skal hún vera í geymslu
stjórnarmanna félagsins, og eru þeir skyldugir að
sýna hana sérhverjum félagsmanni, er þess beiðist.
13. gr.
Ábyrgðarfélag þetta stofnast fyrir vertíðar-
byrjun 1862.
Athugagrein: Ofangreind lög fyrir skipaábyrgð-
arfélag Vestmannaeya, er samþyktvoru á almenn-
um fundi hinn 26. dag Janúarmán. þ. á., gilda,
eins og þau sjálf með sér bera, einúngis fyrir þá,
er eiga í stórskipum þeim, er gánga til fiskiveiða
á vertíðinni á Vestmannaeyum, þareð það mátti
virðast mjög gagnlegt eða jafnvel nauðsynlegt, að
þeir, er ættu í skipum þessum, sem bæði eru
mikils virði og miklum háska undirorpin, væri í
innbyrðis ábyrgðarfélagi, ef skaði, sem auðveldlega
skeð getr, fyrir kæmi, því auðsætt er, að mörgum
verðr eigi jafnþúngt fjártjón að þola sem fáum,
nema þeir sé því auðugri, sem hér eigi á sér
stað. Nú sem stendr eru í félagi þessu eigendr
11 stórskipa, sem öll eiga heima á Vestmanna-
eyum, og voru skip þessi eptir virðíngargjörð
þeirri, er á þeim var haldin fyrir byrjun seinast-
liðinnar vertíðar, alls virt á 2,022 rd. og gjaldið
til ábyrgðarsjóðsins því 60 rd. 64 sk., sem nú eru
til í sjóði, þar ekkert af skipum þessum hefir beð-
ið skaða.
lleglugjörð þessa, sem hér með sendist yðr
herra ritstjóri! eptir tilmælum yðar í sumar, vild-