Þjóðólfur - 21.12.1864, Side 2

Þjóðólfur - 21.12.1864, Side 2
30 Eg neita ekki, að þeir menn sé til, er hafa gjört sér, ef til vill, bæði of glæsilegar og of mikl- ar vonir um framfarir þær og blómgun, sem bú- skapr vor Íslendínga og jarðyrkja gæti tekið, en þeir menn eru líka til, sem lifa án vonar í þessu falli. En min meiníng er: það er ekki unt að segja, hve miklum framförum jarðyrkjan og bún- aðrinn hjá oss getr tekið, ef ekki væri neinna þeirra skilyrða vant, er til þess heyra, svo sem: þekkíng og kunnátta, dugnaðr, reynsla og fjár- munir. ísland er enn þá svo lítt ræktað, að 60,000 dagsláttur fóðra ekki 20,000 kýr og þó geta 3 dagsláttr með meðalrækt fóðrað 2 kýr, en með beztu rækt, getr 1 dagslátta fóðrað 1 kú. þetta þykja nú öfgar að tala, en þetta er þó. því betr satt, eg hefl oröið svo frægr að hafa reynt það. Af þessu sést nú, að ræktarleysið á íslandi er svo mikið, að það á sér engan maka innan landamæra hins siðaða heims, þar sem gras er annars rækt- að til fóðrs, með nokkru lagi, þetta lýsir og því að land vort á of marga af þeim bóndum, sem öll jarðarvinna er ólagin og leið. Hér er þá tventvið að stríða: óræktaða jörð og óra:ktarfulla þjóð. J>e gar maðr t. d. talar við Englendinga, eðr Bel- gíumenn, þeir er bændr eru, þá heyrir maðr, að búskapr og jarðyrkja er orðin þeim að annari nátt- úru. þannig þurfum vér íslenzku bændrnir að endrfæðast ef duga skal. Yér þurfum að heiðra jörðina, móður vora — með góðri hirðingu, ef oss á vel að vegna og vér að verða lánglífir á henni. Eg hefi alt af haft þá sannfæríngu, að gras- ræktin og kvikfjárræktin, ætti að vera aðal ætlun- arverk og sæta hinu ýtrasta athygli sveitabóndans hér. þetta livorutveggja lagði eg mestu stund á, að kynna mér og nema þegar eg var erlendis. Eg sáeg se enn, að ísland er vel lagað fyrir gras og kvikfé. Grasræktin (töðugrasaræktin) á að vera okkr það, sem korngrasaræktin, er hinum suð- rænu þjóðum. Sveitabúskaprinn okkar stendr eða felir með henni. Akryrkjan: jarðeplarækt, rófna og kornrækt, á að vera undirtilla hjá okkr. Eg hefi hugsað mikið um grasræktina, þ. e. túna- og engjaræktina, og reynt ýmislegt í því skyni og síðan eg fór að búa hefir aðalstarfi minn hníg- ið að henni. í þessu skyni hefi eg leitast við að sameina útlenda aðferð og innlenda, og haft til hliðsjónar hérlenda og erlenda reynslu. Eg hefi reynt að samrýma útlenda aðferð og kunnáttu við ásigkomulagið hér, með öðrum orðum: eg hefi leitast við að gjöra jarðyrkju vit mitt, sem er af útlendri rót, innlent. þessa Dnnst mér endilega þurfa. Löndin eru eins og jarðirnar, þau þurfa hver sitt búnaðarlag. þegar maðr gjörir eitthvað, þá verðr maðr að gjöra sér grein fyrir, iivers vegna j og hvernig maðr þarf að gjöra það. Maðr sléttir, af því þúfurnar eru bæði grasþjófr og verkaþjófr. En af hverju eru þúfnrnar komnar? vatnið er aðal orsök til þeirra. þegar maðr sléttar, þá þarf að taka fyrir þessa orsök. það þarf að slétta þannig, að þýfið komi ekki upp aptr. En svo sýnist, sem menn sé ekki farnir að gefa þessu nægan gaum hér; of margir láta sér nægja að slétta einhvern- vegin. Tii þess, að vatnið geti ekki skapað þúfur að nýu, þarf tvennt: fyrst, að vatnið geti hvergi staðnæmzt á yfirborðinu, og í öðru lagi, að vatnið geti ekki náð að staðnsemast í jarðveginnm, en sígi fljótt niðr. í þessu skyni hefi eg tekið fyrir að slélta alt í teigum, frá 12—15 ál. breiðum, 1 al. hærri í miðjnnni enn til hliðanna. Bennur eðr lágar hefi eg milli teiganna. í þessar lágar þyrfti nú að leggja lokræsi, 3—4 feta djúp, til þess að draga til sín áurvatnið. En til að slétta svona, þarf önnur verkfæri en Ijái og rekur ogmeirakosta þær, það gjöra ræsarnir. Yið svona sléttur þarf og endilega að hafa plóg og hestareku. En þess- ar sléttur hafa þann kost að þýfast ekki að nýju og þær verða grasmeiri. Á þenna liátt hefi eg sléttað Va dagsláttu í vor er leið. Féíaginu má þykja þetta verk eigi mikið; en mig vantaði afl þeirra hluta er gjöra skal, eg var einn og fleira var að gjöra. Slétta þessí er þakslétta og er undra fríð sýnum. Nú er það þó ekki nóg að sléttavel, maðr þarf líka að annast um að, ekki einúngis mikið, lieldr og líka gott gras spretti á sléttunni. Hið fyrra fer nú eplir frjófsemi jarðarinnar og veðráttnnni, hið síðara að nokkru leyti líka, en ekki að öllu, því maðr getr að miktu ráðið því, hvaða grös spretta á sléttunni. J>að er mikið nyt- samt að þekkja þau grös, sem bezt eru til fóðrs. velja þau og sá þeim í tún sín eða sléttur. Að sá í nýjar sléttur góðu sífrjóugrassæði, er sannar- Iega mikil jarðarbót og varir lengi. Grösin sem spretta á sléttunni, gjöra og nokkuð til hve fljótt hún þýfist. Va dagsláttu af flagsléttu gjörði eg og í vor, og sáði í liana auk fleiri grasa ítolsku rægrasi (Lolium italicum). Grastegund þessi er ættuð frá ltalíu og komin þaðan í fyrstu til norðr- landa, hefir hún hvervetna þar unnið lof fyrir ár- vísi og fóðrgæði. þetta gras, hafa menn opt er- Iendis til, að sá í graslönd sín, þar sem skellur koma og dílar brenna, sprettr það þar, því það þolir þurk. þessu grasi sáði eg nú í yor, og er f í

x

Þjóðólfur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.