Þjóðólfur - 13.01.1866, Page 2
úngl. fjárhagsnefndar er sett var í Kaupmanna-
höfn með allrahæstu erindisskrá frá 20. Sept.
1861 til þess að undirhúa fjárhagsaðskilnaðínn, en
þau álitsskjöl voru einnig lögð öll fyrir þíngið, í
s. parti Alþ.tíð. (1865) 26.—85. bls. þar að auki
er ágrip það er lögstjórnin lét auglýsa á dönsku
næstl. ár, af nefndargjörðunum og þessum álits-
skjölum hennar, og af niðrstöðu þeirri sem fjár-
stjórnin og lögstjórnin komust að um síðir, eptir
milliskriptir miili þeirra um málið yíir höfuð, aug-
lýst í þjóðólfi XVII. bls. 101 — 102 og 107—9.
En öllu fremr má vísa til 8 ítarlegra og röksam-
legra ritgjörða um mál þetta í Nýum Felagsritum
er hafa verið skráðar síðan hin kgl. fjárhagsnefnd
var sett 1861; í «Ný. Felr.« XXII. «Um fjár-
hagsmáliðn, bls. 22—99; sbr. um stjórnarmál
Islands, bls. 1—21; í sömu ritum XXIII: «Um
stjórnarmál og fjárhagsmál íslands» bls. 1—73;
og enn í XXIV. ári sömu ritanna: «Vegr íslend-
ínga til sjálfsforrœðis*, bls. 1—26.
Afdrif fjárhagsmálsins næstl. á Alþíngi eru nú
einnig «komin fyrir Ijósan dag»; nefndarálit þíngs-
ins, atkvæðaskráin í málinu og álitsskjalið til kon-
úngs má lesa í síðari parti Alþ.tíð. 1865, bls.
417, 475 og bls. 500; mestallar umræðurnar eru og
nýútgengnar í 5. hefti fyrra parts tíðindanna. Ur-
slitin urðu þau, að margt má þar um segja, enda
hefir þegar verið margt um þau sagt bæði í ræð-
um og í dönskum blöðum. þarsem Alþíngi sjálft
skiptist svona, einsog það skiptist að málalokum,
í 2 alveg andstæða flokka, en þó sem næst jafna
að atkvæðatölu, um það mál sem er og verðr að-
almál þessa lands, er og verðr undirstaða og
hyrníngarsteinninn undir þjóðfrelsi og sjálfsforræði
vor Íslendínga hvort heldr þess verðr lengr eða
skemr að bíða, þá þarf ekki lengra að fara um
það, hve misskipt skoðun allra landsmanna hljóti
að vera á málalokum þeim er urðu á Alþíngi 1865.
En hvað sem menn segja að öðru leyti með og
móti afdrifum málsins á þínginu, þá þorum vér
að fullyrða, að fæstir landsmanna, hvort heidr ut-
anþíngs eðr þíngmenn sjálfir munn liafa búiztvið
þeim málalokunum sem urðu, fyren þau dundu
svona yfir eins og þrumuveðr uppúr heiðríkju, í
lok ályktarumræðu málsins á þíngfundinum 23.
Ágústf. árs. Varla nokkursá er hafði iesið stjórn-
arfrumvarpið, mun hafa gjört sérílund, að þíngið
mundi aðiiyllast það óbreytt, og flestir munu hafa
talið víst, að stúngið yrði upp á margvíslegum og
verulegum breytíngum, en engi mun liafa leitt
grun í það að frumvarpið yrði fellt í heilu líki eða
að því yrði gjörsamlega hafnað, og það svona
fororðs og skilyrðalaust, ein's og gjört var. En
allra sízt mundi hafa verið búizt við þessu úrræð-
inu af þeim þíngmannaflokknum sem jafnan hefir
verið talinn hinn frjálslyndari flokkrinn bæði ut-
anþíngs og á þíngi, og jafnan hefir haldið þv
fram að sjálfsforræði landsins væri aðal undir-
staðan og hyrníngarsteinninn undir þjóðfrelsi voru og
öllum verulegum viðgángi og framförum lands vors.
|>að mun því öllum þykja sjálfsagt og meir
en mál til komið, að þjóðólfr gjöri mál þetta að
umtalsefni; það er í alla staði röttlát krafa af
hendi almenníngs til þessa blaðs að það leiði ekki
slík stórmæli hjá sér og láti svo lýðinn vaða
villu og svima um álit sitt. Aðalniðrstöðu álits
vors á málinu geta að vísu allir leitt sér ígrun, því
frumritstjóri þessablaðs, varð einn í þeirri sjömanna
nefnd er Alþíngi setti í málið, og hafði orðið öll-
um meðnefndarmönnum sinum samdóma um að
kasta e k k i stjórnarfrumvarpinu heldr aðhyllast það
með ákveðnum breytíngum, eins og nefndarálitið
sýnir. þíngmaðr Vestr-Skaptfellínga þóktist því
eigi mega né geta annað en halda eindregið frarcn
þeirri niðrstöðu er hann eins og nefndin öll hafði
komizt að eptir svo marga fundi um fullar 5 vik-
ur er hún hafði málið til meðferðar; lenli hann
svo, þegar til atkvæðagreiðslunnar kom á þíngi, í
minnahlútanum, og öndverðr við þann flokkinn
þíngmanna er Jón Guðmundsson hefir þó jafnan
látið hallazt að í skoðunum sínum, tillögum og
atkvæðum, hvenær sem um hin verulegri og yfir-
gripsmeiri landsrrál vor hefir verið að skipta.
Vér finnum því að vísu næsta vel, hvern vanda
vér færumst í fáng, að ætla oss að rita svo ljóst
og sannfærandi og hlutdrægnislaust um málalok
þau sem hér urðu nú á þíngi, eins og vera ber.
En þessar athugasemdir vorar koma einnig fyrir
Ijósan dag, eins og umræður og ástæður meira
hlutans eru þegar komnar víðsvegar í Alþíngis-
tíðindunum. Vér vildum, og það vonum vér að oss
takizt, að þetta yfirlit vort gæti orðið til saman-
burðar við umræðurnar um málið á Alþíngi og
til þess að skýra nokkuð gjörr bæði ástæður meira
hlutans er réðu þeim úrslitum sem uppáurðu: að
fella stjórnarfrumvarpið í heild sinni, og í annan
stað skoðun minna hlutans eðr þíngnefndarinnar
er fór í gagnstæða steínu, þarsem sá flokkrinn vildi
gjöra frumvarpið að lögum með breytíngum.
Sakir allra tildraga málsins, efnis þess og
stefnu höfum, vér afráðið að skipta þessu yfirlili
voru niðr í 8 aðal kafla: 1. Undirbúníngr og