Þjóðólfur - 06.09.1866, Síða 2

Þjóðólfur - 06.09.1866, Síða 2
— 158 — ýmsum hinum eldri tilskipunum frá 17. og 18. öld, heldr einnig öll þau hin nýrri almennu hegn- íngalög, er út gengu árin 1840—1841, t. d tilsk. 11. Apr. 1840, eins og luin er sig til, 15. Apr. 1840 (um meinsæri o. fl.), 26. Marz 1841, (um húsbruna, eðr íkveikju af áselníngi o. fl.) — Með tilliti til þess, að í tilskip. frá 15. Des. f. á., sem nakvæmar ákveðr ýmislegt viðvíkjandi prestaköllunum á Islandi, erboðið, að brauðamatið frá 1858, sem nú er staðfest af konúngi, skuli endrskoðast á hverjum 15 ára fresti, heíir stjórn- arherra kirkju- og kenslumálanna falið stiptsyfir- völdunum á hendr að gjöra nauðsynlegar ráðstaf- anir til þess að endrskoðun brauðamatsins geti fram farið fyrir árslok 1868. Stiptsyfirvöldin hafa nú sent öllum próföstum skýrsluform líkt hinu eldra, sem prestar eiga að hafafyrir sér, og semja skýrslur um tekjur brauða sinna eptir; en skýrsl- urnar eiga að vera tilbúnar i næstkomandi far- dögum og sendast héraðspróföstunum, er aptr senda þær stiptsyfirvöldunum með áliti sínu og athugasemdum. Próföstunum er falið áhendr, að leiðbeina prestunum í þessu efni og hafa sérlegt eptirlit með því, að þau prestsetr, sem eru góðar bújarðir, eða hafa einhver sérleg hlunnnindi, sé tilhlýðilega hátt mctin, og einnig ciga þeir með ráði kunnugra manna að semja skýrslur um þau prestaköll þar sem sóknarprest vantar. — Út af bréfi forseta deildar hins íslenzka bók- mentafélags í Kaupmannahöfn, dags. 14. Júlí næstl. hefir bisknpinp skrifað próföstum umburðarbréf og beðið þá að gángast fyrir þvf, hvern í sínu pró- fastsdæmi fyrir milligaungu prestanna, að sem flestirgángi f félagið og leitt orð að því, hve mjög það hlýtr að efla bókmentir vorar og sóma lands- ins, að félaginu geti aukizt kraptar, og að það verði svo fjölskipað, sem mögulegt er. Yér viljum mikillega vekja athygli allra landa vorra að þessum fyrirmælum vors nýa heiðraða biskups, sem er sjálfr forseti bókmentafélagsdeild- arinnar á íslandi; og vonum vér, að engi lands- manna missi sjónar á þeim viðgángi, þýðíngu og áliti meðal útlendra þjóða, sem bókmentafélag vort hefir áunnið einkanlega á hinum sfðustu 15árum, og hvern sóma og gagn það vinnr landi þessu, og það því fremr, sem það fremr efiizt og lands- menn leggja sjálfir hug á það og hlynna að því alment með því að stuðla að’’því, að felagsmenn fjölgi eptir því sem framast getr orðið. — Ágrip af útlendum fretlum, dags. Oxforð 24. Júlí p. á. Eg hef því einu við að bæta, sem eru góðár fréttir, að eg get lokið með friðarsögu því sem eg skrifaði síðast. I morgun stendr f blöðunum, að 5 daga vopnahlé hefir verið samið, sem er sama og fullr friðr, þvf Austrríki hefir gengið að aðalskilmálum Prússa fyrir meðalgöngu Napoleons, sem hefir gjört þá kosti að sínum tillögum. En skilmálarnir eru þessir: Austrríki gengr út úr hinu þýzka sambandi, en heldr öllum löndum sínum nema Venedig, sem Italía fær. Hið forna bandaþfng er dautt og rofið. En Preussen stofnar nýtt samband um Norðrþýzkaland, sem Austrríki er útilokað frá. Preussen hefir allt hervald og sendiboðsvald í þessu sambandi. Suðrþýzkalandi stendr frjálst fyrir að stofna samband sér. I’reussen tekr Elf- arhertogadæmin fyrir utan hinn danska hluta Slés- víkr, sem ætlað er til að skila Danmörku aptr. þaraðauki bætir Preussen við sig hérum 3 millí- ónum þegna til að fá lönd sín í sambeldi. Auslr- ríki afsalar sér sinn hluta hertógadæmanna. }>annig fær þá Italía sitt og Danmörk sitt, og Preussen (ein í raun réttri) allt Norðrþýzkaland, svo þar verðr stofnað protestantiskt slórvcldi í stað hins pápiska Austrríkis. Einíngu þýzkalands er að líkum borgið. En allt það bíðr þó úrslita hins þýzka allsherjarþíngs, sem kvatt verðr í sumar. Landafræði þýzkalands verðr því auðveldari héðan frá, sem verið hefir grýla allra skólapilta nú um margar aldir. Um stríðið er fátt að segja. Sjóorusta varð milli Itala og Austrríkis fyrir þrern dögum og biðu ítalir ósigr. }>eir hafa ekki verið sigrsælir í þessu stríði. Great Eástern er nú á ferðinni að leggja ný- an þráð. í gær fréttist að enn gekk allt vel, og lagðar voru um 1,300 mílur. Gefi guð gott veðr 3—4 daga til, er vonandi að allt gángi vel. Hér hafa orðið ráðgjafaskipti, og komið nýtt Toryministerium; »Reformbill«*, fór á höfuðið. 1 gærkveldi urðu nokkur uppþot í Lundúnum af borgarskríl þar. ^ Kólera er víða að slínga sér niðr í Liverpool, og nú í London; vonandi þó að lienni verði afstýrt frá að gjöra mikinn usla. Ilér hefir í vor og sumar verið penínga »krisis» (far- aldr) og mörg stór bánkahús farið á höfuðið. En 1) Frumvarp um frjálslugri stjórnarbót,

x

Þjóðólfur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.