Þjóðólfur - 29.10.1866, Qupperneq 6

Þjóðólfur - 29.10.1866, Qupperneq 6
G — menn fái öll borgararéttindi, atkvæðarétt o. s. frv. til jafns við hvíta menn, og vér tökum ekki sunn- anmenn í félag vort, fyren þessu er framgengt. En sunnanmönnum þykir nóg, að svertíngjar sé búnir að fá frelsi, þótt eigi fái þeir öll borgara- réttindi. Johnson forseti heldr fast fram máli sunn- anmanna og vill láta þá ná aðgaungu aptr í sam- bandið, eins og ekkert hafl í skorizt, og fer hann um og heldr ræður til að efla ílokk sinn við kosn- íngarnar. — |>etta þykir norðanmönnum vera laga- brot og svik af hálfu forseta. Útaf þessu er eigi all-lítill flokkadráttr og æsíngr í Bandaríkjunum, hvernig sem úr því ræðst. Af öllu þessu þykir mega ráða, að mikilla tíðinda se von á hinum komanda vetri, en hitt þykist enginn fær um að dæma, hvort þau tíðindi verði góð eðr ill. — í Ágúst og September gengu hér dag- lega rigníngar og varð það mikið til hnekkis upp- skeru manna.—Um Mikaelsmessu-leytið urðu mikl- ir vatnavextir í Frakklandi, og urðu af því miklir skaðar, brýr brotnuðu, hús fóru í kaf og járn- bratitaferðir tepptust. f>að sem af er Október hef- ir verið hér bezta veðr, ekki ólíkt eins og veðr er stundum í Ágústmánuði á Islandl. í Ilengalen á Indlandi hefir í sumar verið mikið hallæri, og hefir fólk dáið úr húngri hrönnum saman. DÓMR YFIRDÓMSINS, í málinu : Eigendr jarðarinnar Ilamra í Grímsnesi, gegn eiganda jarðarinnar Vatnsness Gísla Guðmundssyni. (Upp kvetiinn 7. Maí 1866. — I hfcraíii héftiatli Gísli bóndi Gntimundsson á Gíslastótum í Hostfjalli sókina á hendf Hamramönnum og gjörbi tilkall til landskika þess, er Hamratúnga nefnist, undir eignarjört) sína Vatns- nesií), sem er nábýlisjört) vit) Hamra. Gísli fekk gjafsökn ( htraíii og sókti þorleifr Kolbeinsson sökina af hans hálfn. Fyrir yftrdómi fengu hvorirtveggja geflns málsfærslu, varti Jón Guiimundsson þar sökina fyrir Gísla, en Páll Melstei sókti fyrir Hamramenn, eins og hann hafii varlti þá í hör- ati. Vflrdómsforsetinn þórtir Jónasson veikt sæti, en land- fógeti Arni Thorsteinson dæmdi málii ásamt yflrdómurun- nm Jóni Péturssyni og Benidikt Sveinssyni). »í sök þessari, hvar báðum málspörtum hefir verið veitt gjafsókn við yfirdóminn, kafa áfrýendrnir skotið til landsyfirréttarins héraðsdómi Árnessýslu uppkveðnum af hinum reglulega dómara með til- teknum meðdómsmönnum þ. II. Ágúst f. á., með hverjum dómi hinum stefnda Gísla Guðmundssyni, er hafði fengið gjafsókn, er tildæmt þrætulandið llamratúnga, sem tilheyrandi eignarjörðu hans Vatnsnesi, samt enn fremr áfrýendrnir við þenna rétt eða eigendr Hamra skyldaðir til að greiða 12 rd. til hins skipaða málsfærslumanns». oþenna dóm hafa nú áfrýendrnir krafizt að fá úr gildi numinn og breytt, og hafa þeir hér við réttinn krafizt þess, að þeim verði tildæmdr eign- arréttr yfir þrætulandinu Ilamratúngu, og að þeir verði frídærndir af réttarkröfum Gísla Guðmunds- sonar, en liann skyldaðr til að svara málskostnaði skaðlaust, og hefir hinn stefndi aptr á móti gjört þá réttarkröfu, að héraðsdómrinn verði staðfestr og sér tildæmdr málskostnaðr«. »þareð jörðunni Hömrum hefir fylgt, eptirþví sem upplýst er í sök þessari, hinn umþrætti land- skiki, sem kallaðr er Ilamratúnga, til fullkominna afnota og umráða, og ekki virðist hafa verið ve- fengt fyren nú, og liinn stefndi, sem í héraðs- réttinum hefir sókt sök á hendr eigendum Hamra til þess að fá sér tildæmda hina umræddu Hamra- túngu, ekki hefir sannað eignarrétt sinn til þessa lands, þá leiðir af því, að áfrýendrna, eigendr Hamra, ber að frífinna fyrir réttarkröfum hins stefnda hér við réttinn, eiganda jarðarinnar Vatnsness, og ber þess einnig að geta, að þau vottorð sern eigandi Vatnsness hefir lagt fram til að færa nokkrar sönnr á, að Ilamratúngan hafi verið brúkuð á stundum frá Vatnsnesi, ekki gegn neitun mótpartsins um gildi þeirra geta tekizt til greina, úr því þau eru ekki eiðfest, og því ekki geta hrundið þeim eign- arumráðum, er eigendr Ilamra, eptir þeim yfirlýs- íngum, er frá þeirra hlið eru komnar, hafa haft. J>etta getr og heldr ekki breyzt þó tillit sé haft til kaupbréfs dags. 20. Júlí 1859 fyrir jörðunni Vatns- nesi, hvar landamerki þessarar jarðar eru talin, • Hestlækr að ofanverðu fram í Hvítá, svo Hvítá fram í garð þann, er liggr frá ánni upp undir klettana, og þaðan þvert yfir eyrun (o: Ilesteyru) og í þrengslahól«, því hver sem svo meiníng um þessi landamerki kann að vera, og þar um hefir málspartana greint á, þá getr slík einhliða úttölun um landamerki frá seljandans hlið, ekki gefið neinn rétt á móti ótilkölluðum þriðja manni, og hið sama má og álíta með tilliti tíl hins framlagða landa- merkja samníngs milli Vatnsness og Gíslastaða dags. 26. Okt. 1857, að öðru leyti en því, að þar í virðist að felast einhverskonar yfirlýsíng frá eig- andanum að Vatnsnesi um takmörk þessa lands og Gislastaða, sem sýna að Ilamratúngan ekki er talin með því landi, er heyri undir Vatnsnes, og styrkir þetta, sem er alveg samkvæmt niðrstöðu þeirri, er framfór í sökinni þ. 19. Ágúst 1863, hvar ágezkað er að Hestlækr hafi runnið á vestr- L J

x

Þjóðólfur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.