Þjóðólfur - 08.02.1867, Síða 3
— 59
að fyrirlíta allt þjóðlegt, en traðka dönsku þjóð-
erni. Stjórnin sjálf var svo ódansklunduð, að það
þókti enda mínkun að tala danskt orð við hirðina,
og hún kvaddi erlenda menn hópum saman inn í
landið, einkum frá þjóðverjalandi, svo að Dan-
mörk innan skams úði og grúði af þjóðverskum
engisprettum, er sugu blóð og merg úr dönsku
þjóðinni. Á síðari tímum hefir þelta komizt í
annað horf, því menn tóku að sjá, að meira þurfti
til að vera nytsamr í félaginu en að vera »ekta
þýzkr smyrill«, og að slíkir fuglar eigi voru jafnan
himneskir að uppruna, og nú er stjórnin og höfð-
íngjarnir farnir að hlynna, sem mest mega, að
öllu þjóðlegu í Danmörku (betra er seint en aldrei).
En lilynna þá höfðíngjar vorir og yfirvöld að
því skapi að öllu þjóðlegu hér á landi? eða fylgja
þeir hinu lofsverða dæmi Dana .í því efni? — úr
þessari spurningu ætlum ver eigi að leysa, en
drepa að eins í því efni á eitt atriði, er snertir
stöðu vora, og vekja athygli á, hvernig gengið
hefir með húsasmíðar þær hér í Reykjavik nokkur
undanfarin ár, er yfirvöld vor hafa átt að sjá um.
Fyrir rúmum 20 árum var latínuskólahúsið reist
af timbri. Grindin var flutt híngað tilhöggvin frá
Noregi og tveir norskir menn reistu hana, er
híngað komu og luku við smíðina, en þó fengu
nokkrir íslenzkir menn atvinnu við hana. Norskr
múrari lagði og grundvöliinn, kalkaði innan her-
bergin og lagði brú niðr undir kirkjuna, og vann
þetta að miklu leyti eptir samníngi við yfirum-
sjónarmann byggíngarinnar, íslenzkan embættis-
mann, en eptir þeim samníngi var kaupið svo ríf-
legt, að, þótt hann ynni í hægðum sínum, fékk
hann 7—10 sinnurn meira kaup, en íslenzkir verka-
inenn vanalega. þakið' var rennisúð úr plönkum,
og var það nokluið lekt, óðar en smíðinui var
lokið.
Nokkru síðar var dómkirkjan hækkuð, og var
við hana bætt bæði kór og fordyri. Neðri hluti
veggjanna, sem var úr íslenzknm tilhöggnum grá-
steini, var látinn standa; en nú var hlaðið ofan á
þá dönskum tígulsteini, og úr honum var einnig
hlaðinn kórinn og fordyrið. Skrúðhúsið, sem áðr
var af timbri, var og hlaðið upp af dönskum tig-
'dsteini, og, þó að ótrúlegt sé, hefir þó gleymzt
að byggja það á hellu, því grundvöllinn vantar, og
l330 gengr upp og niðr, eptir því sem frýs eða
þyðnar, enda gengr vætan úrjörðunni upp ívegg-
ma og skeminir hleðsluna og eigi sízt ccments-
kiínínginn, sem Danir aldrei geta látið sér segjast,
að eigi tolli á hér hjá oss, á tígulsteinsveggjum.
Um undirlög undir gólfið var eigi betr búið en
svo, að svampr bljóp bráðlega í þau og feygði
bæði þau og gólfið, sem reynslan hefir sýnt, því
nú er þegar tvisvar og þrisvar búið að leggja
gólf sumstaðar í kirkjunni. Kalkið sem í veggina
var haft, var lítið slegið og cemcntið alls ekki,
og hefir það því síðan flagnað og flosnað af í
stórflettum og nokkuð af tígulsteininum með.
Undir helluþakið, sem á hana var lagt, var ekkert
undirþak lagt, en hefði þó eigi að síðr getað hald-
ið, hefði það verið dyggilega lagt, en þvi ferfjarri
að það sé ólekt, heldr lak það og streymdi þegar,
og þó að síðan hafi verið klastrað og klístrað á
það innan og utan, má það enn heita hrip-
lekt, og hefir því kirkjan sætt stórskemdum afleka.
Ofan á þetta herrans hrip voru að síðustu settir
þrír járnkrossar, líklega fremr til prýðis eða þá til
að örva guðrækni manna en til þess að draga til
sín þrumueld. Að musterissmíð þessari stóðu
danskir og þjóðverskir verkamenn, en öllum ís-
lenzkum smiðum var aptrað frá að vinna nokkuð
að henni. Fyrir þessa smíð sína fengu þeir mesta
lof og dýrð hjá þeim, sem vit yótlust á hafa, og
jafnvel prestrinn, er þá var, gat eigi orða bundizt
að dázt að þessum verkum mannanna í stólnum.
Líklega hafa yfirvöldin ímyndað sér, að lángt mundi
um líða þar til er aptr yrði völ á slíkum völund-
um, og vildu því grípa gæsina meðan hún gæfist,
og láta þá nú gjöra við allt, er ábótavant væri
við þjóðbyggíngar vorar, því nú ákvörðuðu þeir
herrar, að þessir sömu snillíngar skyldu gjöra við
þakið á skólahúsinu, sem þá var þrévetrt, og
biskupsstofuna í Laugarnesi, enda voru þeir þegar
reiðubúnir að taka þann þarfastarfa á hendr.
Sviptu þeir þá þökunum undir eins af báðum hús-
unum og lögðu á þau aptr hellu, sem svo ágæt-
lega (!) hafði reynzt á kirkjunni, og gjörðu það svo
dyggilega (I), að nú fóru húsin fyrst fyrir alvöru
að leka, og hvernig sem þeir klíndu og klístruðu,
dugði eigi vit né ráðsnilli þessara dönsku herra
til að gera við lekanum, enda varð bráðum að
senda einn þeirra híngað aptr á ný til að halda
fram aðgerðakákinu, en allt þetta kom fyrir ekki,
og var svo ákveðið að rífa þakið aptr af skólan-
um og setja á hann timbrþak að nýu, og þakið á
Laugarnesstofunni varð litlu eldra, en var endrlagt
í sömu mynd. þetta hefði nú átt að vera búið
að ljúka upp augunum á yfirvöldunum og sýha
þeim, að danskrinn er eigi allt og að erlendir
smiðir gefast hör illa, eins og lika er eðlilegt, því
að það er engin von, að þeir þekki hér veðráttu-