Þjóðólfur - 17.10.1867, Page 1
19. »r.
IleyJtjavík, 17. Óktóber. 1867.
44.-45
— Piístskipift Arctnrns, skipstjóri Frederiksen, kom 15.
í>- m. nm dagmál og hafbi verib 26 daga frá KhSfn. Meí)
því komn nú: síra Páll Pálsson frá Kálfafelli, Heurich Siem-
aen verzlunarstjúri frá Færeynm, málaflutníngsmaíir Hein frá
Khöfn, dýralæknir Nielsen ab nafni, er á aí) dvelja hísr
vetrarlángt; fröken Gjede og fer til stiptamtm. í staí> systur
sinnar, sem uú er nýgipt sýslumanni Clausen.
— Embœttaslcipan til bráðabyrgða. — A með-
an amtmaðrinn í Vestramtinu Bergr Thorherg var
hér á Alþíngi í sumar, hafði hann falið sýslu-
manninum í Snæfeltsnessýslu Böving, að hafa á
hendi afgreiðsiu allra þeirra embættisstarfa, er eigi
mælti fresta eptir hans úrgreiðslu hér syðra. —
f>egar sýslumaðrinn í Dalasýslu, Bogi Thora-
rensen, var látinn, fól vestramtið embættisgæzl-
una þar í sýslu í bráð sýslumanninum í Stranda-
sýslu, Sigurði E. Sverrissyni, þángaðtil amtmaðr
sjálfr setti annan í embættið, en hann setti til
sýslumanns í Dalasýslu kand. juris Lárus jþórar-
inn Blöndal, er hér var þetta árið fullmektugr hjá
land- og bæarfógetanum, og þá skrifari konúngs-
fulltrúans á Alþingi; fór nú L. Blöndal vestr þáng-
að með konu og börn eptir þínglokin, og ætlaði
hann að setjast að í bráð að Staðarfelli. — Por-
steinn Jónsson kanselíráð í Húsavík, er fékk veit-
íngu fyrir Árnessýslu í vor, ætlar að látafyrir
berast þar nyrðra vetrarlángt með allt sitt, en hefir
falið kand. juris Lárusi E. Sveinbjörnssyni að
gegna embættinu fyrir sína hönd núna fyrst til
vorsins.— í J>íngeyarsýslu setti Havstein amt-
maðr þegar í sumar Jón alþíngismann Sigurðsson
k Gautlöndnm, og tók hann nú, þegar norðr kom
af þíngi, við embættinu.
Auglýsíng lögstjórnarinnar 31. Maí þ. á. birtir
almenníngi konúngsúrskurð þann, »að úr lækna-
«sjóðnum íslenzka (þ. e. spítalasjóðunum er fyr
"voru nefndir) megi veita allt að 5 læknaefnum,
«er vilji setjast að og fást við lækníngar í þeim
"héruðum á íslandi, þar sem dómsmálastjórninní
"virðist vera mest þörf á læknisaðstoð, 400 rd. styrk
"á ári, hverjum þeirra, og þar á ofan heiti þeim
"100 rd. fyrir hver 3 ár, sem þeir fást við lækn-
"íngar, þángaðtil hann (þ. e. styrkrinn) er orðinn
"800 rd. á ári; og megi þá gjöra læknum þeim,
«sem þessi styrkr er veittr, að skyldu að takast
• á hendr um tiltekið svið störf þau, sem hvíla á
«héraðslæknunum, ef þeir eru því samþykkir, og
«fá þeir þá sömu borgun fyrir þau, sem héraðs-
«læknunum eruveitt».
J>að má nú þykja næsta líklegt, að lögstjórn-
inni finnist hvað «mest þörf á læknishjálp* yfir
höfuð að tala, á þeim stöðvum, sem Alþíngi 1865
stakk upp á, að stofna hin svonefndu sýslulækna-
embætti, í bænarskrá þeirri til konúngs, er ein-
mitt auglýsíng þessi gefr andsvar og áheyrzlu um,
en þauvoru þessi: í Austr-Skaptafellssýslu,á Suðr-
nesjum fyrir sunnan Ilafnarfjörð, í hinu forna þver-
árþíngi beggjamegin Hvítár í Borgarfirði (þ. e. í
Borgarfjarðar- og Mýrasýslu), í Barðastrandar- og
Strandasýslu og í fíngeyarsýslu. J>annig standa
þá svo gott sem 5 ný embætti opin lækna-efnum,
auk þeirra 2 héraðslækna-embættanna, sem nú eru
laus, á Akreyri og í Múlasýslunum.
Stiptamtmaðr setti kand. í læknisfræði Fritz
Zeuthen (stjúpson Gísla Magnússonar skólakenn-
ara) í héraðslæknisembættið á Akreyri, undir eins
og hann var búinn að leysa hér af hendi embætt-
ispróf sitt bjá landlækni með 1. aðaleinkunn
(»laudabilis«) í byrjun Júlímán. þ. á., og mun það
hafa verið meðfram eptir óskum Havsteins amt-
manns. Lagði því Zeuthen norðr með allt sitt um
byrjun Ágústmán. þ. á., fólkið landveg, en far-
ángrinum kom hann sjóveg með Lady Bird; en
þegar norðr kom var þar kominn fyrir kandíd. í
læknisfræði Edvald Johnsen (sonr »Húsavíkr«-
Johnsens kaupmanns) er lögstjórnin hafði sett í
embætti þetta undir eins og hann hafði afiokið
embættisprófi sínu við háskólann í vor; og var
hann nú kominn til embættisins rúmu dægri fyr
en Zeuthen náði norður til Friðriksgáfu á fund
amtmanns með bráðabyrgðarveitingu (constitution)
stiptamtsins ; þessu einu munaði aðZeuthenkomst
eigi að. Amtmaðr Havstein gjörði honum þá
kost á að setja hann í hið nýstpfnaða læknisem-
bætti i jþingeyjarsýslu og að hann tæki aðsetr
í Húsavík og mundi hann geta fengið þar
húsnæði í bráð, en þess vareigi kostr þegar Zeut-
enfór'þessá leit, og sneri hann svo suðraptrvið
— 177 —