Þjóðólfur - 23.05.1868, Page 2
— 102 —
síðir útkljáð með samkomulagssættum milli yfir-
stjórnenda hennar (stiptsyfirvaldanna) og útgefenda
blaðsins. í XVIII. ári j>jóðólfs bls. 111,121, og
185 var skýrt frá, upptökum þessa máls og gangi
þess þá um sumarið, að skuld útgefenda »íslend-
íngs« til prentsmiðjunnar var þá um haustið 970
rd. alls og alls, og að þá gátu útgefendrnir eigi
unnizt til að bjóða rífari boð en þau sem þar var
frá skýrt: að þeir 6 útgefendanna vildu greiða
prentsmiðjunni sína 60 rd. hver þeirra, en Einar
þórðarson sinn sjöunda hluta af skuldinni afdrátt-
arlaustfyrir 1. og 2. ár blaðsins, er hann taldi að þá
væri 68 rd. 9 sk.; en þaraðauki vildu allir útgef-
endrnir eptirláta henni til fullrar eignar bæði allar úti-
standandi og óloknar skuldir fyrir blaðið, og svo
í annan stað allt það sem óútgengið væri og ó-
selt af upplagi allra 3 fyrstu áranna. |>egar þessi
boð þeirra komu fyrir lögstjórnina, vildi hún með
engu móti gánga að þeim fyrir prentsmiðjunnar
hönd, síst að taka við skuldunum og því sem ó-
selt var af upplaginu. Lagði því sljórnin fyrir
stiptsyfirvöldin, að ef þeir útgefendrnir eigi vildi
bjóða rýmri boð en þessi — en það skyldi að öðru
leyti vera á yfirstjórnendanna valdi að tiltaka þau
boð nákvæmar og gánga svo að eðr frá, — þá
skyldi höfða mál á móti útgefendunum öllum sam-
an undir dóm til lúkníngar allri skuldinni. Nú er
yfirstjórnendrnir fóru að semja um þetta nákvæm-
ar við þá í fyrra sumar, þá munu þeir 6 hafa
látið sig með að bjóða þau sætlaboð, að þeir
skyldi greiða sínalOOrd. í peníngum hver þeirra;
og með því stiptsyfirvöldunum mun eigi hafa þókt
þau boð jafnóaðgengileg sem hin, er voru í boði
haustið 1866 og hér var getið að framan, þávoru
þau borin enn af nýu undir samþykki lögstjórnar-
innar. Svar hennar kom nú með «Fylla« hér í
vor, og mun þar hafa verið lagt samþykki á boð
þessi, víst að mestu leyti, en þó lagt fyrir yfir-
stjórnendrna að reyna að fá þá, alla útgefendrna,
til að undirgángast jafnframt, að eins mætti prent-
smiðjan eiga aðgáng að hverjum einum þeirra
um alla greiðslu þessara samtals 700 rd., er þeir
höfðu þannig skuldbundið sig til að greiða sam-
tals, (eða að þeir skyldi vera skuldbundnir in so-
lidum til þessarar greiðslu), eins og af hverjum
þeirra útaf fyrir sig, um greiðslu þeirra 100 rd.,
er hver einstakr hafði lofað að láta. Stiptsyfir-
völdin kvöddu nú alla útgefendrna til fundar um
þetta, 11. þ. mán., er mælt að þeir hafi allir af-
sagt það hver með öðrum að undirgángast þenna
nýa skildaga, og hati þá verið farið ofan af hon-
um, en látið standa við 100 rd. greiðsluna frá
hverjum þeirra.
FRÁ SÝSLUNEFNDARFUNDI MÝRAMANNA.
Árl868 föstudaginn hinn 1. Maí var
sýslunefndarfundr fyrir Mýra- og Hnappadalssýslu
settr og haldinn að Litlugröf í Borgarhrepp, sam-
kvæmt skriflegri fundarboðun frá formanni nefnd-
arinnar hreppstjóra J>. þórðarsyni á Rauðkollsstöð-
um, dags. 6. April þ. á., af þar til kjörnum mönn-
um úr öllum hreppum sýslunnar, nema Iíolbeins-
staðahrepp, þar sýslunefndarmaðrinn þar var hindr-
aðr sökum veikinda.
Mættu þessir á fundinum:
1. úr Hvítársíðu Ásmundr bóndi Þorsteinsson.
2. þverárhlíð alþíngismaðr H. Petrsson og Jón
bóndi Jónsson.
3. Norðrárdal, prestrinn sira G. Þ. Stefánsson.
4. Stafholtstúngum, dbrm. A. Finnbogason.
5. Borgarhrepp, varaþíngmaðr 11. Bjarnason.
6. Álptaneshrepp, Hallr bóndi Jónsson.
7. Hraunhrepp, Helgi hreppstjóri Helgason.
8. Eyahrepp, Þórðr hreppstjóri Þórðarson.
9. Miklaholtshrepp, Magnús hreppstjóri Jónsson.
Formaðr setti fundinn, eptir að hafa ávarpað
fundarmenn og bauð þeim að kjósa fundarstjóra,
og varð nefndarformaðrinn |>. þórðarson fyrir þeirri
kosníngu, en hann tók sér til aðstoðarmanns al-
þíngismann H. Pétrsson, þvínæst bauð fundar-
stjóri mönnum að kjósa skrifara, og stakk einn
fundarmannauppá sýslunefndarmönnunum úrNorðr-
árdal og Stafholtstúngum og með því enginn hafði
á móti þessu vali, þá tókust nefndir menn þann
starfa á hendr.
1. Iíom til umræðu, hvort nokkra breytíng
þyrfti að gjöra á reglum nefndarinnar, er samdar
voru fyrra ár, og stakk einn nefndarmanna uppá
viðauka við 6. og 8. grein, er fundrinn samþykti.
2. Var stúngið uppá, að sýslumaðrinn væri
sjálfkjörinn í nefndina og ritaði fundrinn honum
bréf þess efnis.
3. Sýslunefndarmaðrinn í Hraunhrepp skýrði
fundinum frá, að 2 hreppar sýslunnar, Kolbeins-
staða og Hraunhreppr, hefði gengið í félag á
næstliðnu hausti, og stofnað sjóð til jarðabóta, er
ýmsir heiðrsmenn utan héraðs hafa veitt höfðíng-
legan styrk, og gat hann þess, að upphæð sjóðs-
ins mundi vera orðin hér um bil 30 ærvirði, og
er ætlazt til að leigunni af þeim sé varið til verð-
launa eptir 2 ár, handa þeim sern mestan dugn-
að sýna í ýmislegum jarðabótum, eptir lögum,