Þjóðólfur - 29.09.1868, Blaðsíða 2

Þjóðólfur - 29.09.1868, Blaðsíða 2
— 170 — stýra vandræðum þeim, er nú virðast að vofa yfir landinu í allmörgum stöðum. Fiskileysi og dýr- tíð á allri matvöru í verzlunarstöðum landsins stuðla nú í sameiníngu að því að sveitabændr og sjáfarfólk hafa lángtum minni forða af öllum mat- vælum en verið hefir um lángan tíma; málnytan hefir og allvíða, sökum rignínga ogkuldafyrra hluta sumarsins, verið í minna lagi, og hér við bætist, að kálgarðarækt hefir á flestum stöðum hér sunn- anlands alment mishepnazt, svo að drýgindi þau í matvælunum sem kartöflur, kál og róur annars eru vön að auka fólki, má almenníngr nú í missa. J>að er öilum kunnugt, hvílíkt afarverð liefir verið á allri kornvöru síðan í fyrra vetr, er korn- tunnan hefir jafnaðarlega verið seld á 13 og 14 rd., og það er engi von, eptir því sem á stendr j landi voru, að almenníngr geti í nokkru lagi byrgt sig upp með þessu dýra kornmeti eins og þörfin er til. þetta fellr nú mörgum því þyngra og verðr því tilfinnanlegra, sem allr þorri lands- búa er orðinn óvanr við að við hafa þær innlendu jurtategundir sem áðr í fyrndinni voru hin mesta stoð og bjargræði, þegar kornaðflutníngar brustu eða voru svo rýrir að þeir voru varla teljandi. Eg hefi af gömlum mönnum áreiðanlegar sögur um það, að á stríðsárunum um 1801 og 2, og þá fleiri ár í samfellu, voru kornaðflutníngar hér til landsins svo rýrir, að mörg heimili gátu eigi feng- ið meira en 2 skeffnr af korni, og að gott þótti, ef menn gátu náð í hálfa tunnu. Um þær mundir við höfðu menn að fornum sið, fjallagrös, söl, fjörugrös, murur, rœtr, hvannir, geitaskúf. engjaskóf, fjöruarfa og smeðjukál, samt skarfa- kál þar sem það fékst, og mun óhætt að full- yrða, að þessi innlendu jurta efni hafi átt mikinn þátt í því að varna því, að fólkið félli úr húngri og harðrétti. Eg hefi áðr tekið það fram í ritum mínum, hversu ómögulegt það sé fyrir nokkra þjóð að lifa til lengdar á eintómri dýrafæðu (þ. e. kjöt- meti og fiskmeti) svo vel fari. Allar þjóðir, sem reiða sig einúngis upp á hana, komast jafnan í sult og seyru og ná aldrei neínum viðgángi með fólksfjölgunina, því hver húngrsneyðin rekr aðra hjá þeim. J>etta sýna dæmi Eskimóa, Finna og margra austrálfubúa; og núna seinast í fyrra kom það hraparlega niðr á Aröbum, er sökum þess að þeir reiddu sig á skepnurnar hrundu niðr í þúsunda tali um sama leitið og Frakkar sem bjuggu við hliðina á þeim í Afríku, lifðu sældar lífi af jarð- ræktinni. Yeraldarsagan er full af slíkum dæmum og því hefir hinn nafnfrægi efnafræðíngr barún Liebig tekið það fram, að ómögulegt séfyrirnokkra þjóð að aukast að fólkstali og sleppa fyrir húngrs- neyð nema því að eins að hún leggi stund á jarðrækt og noti vandlega aliar þær matjurtateg- undir sem hjá henni geta þróazt. J>essi sannleiki verðr aldrei nógsamlega brýndr fyrir oss íslend- lendíngum, og með því náttúran leggr uppí hendr oss mikla gnægð af ýmsum matjurtum sem liggja þvínær ónotaðar, þá ætti sú neyðarinnar tið, sem nú vofir yfir landinu, að þéna oss til áminníngar í þessu velferðarefni voru. f>að er hvorttveggja, að korntegundir þær, sem híngað flytjast fráDan- mörku eru optast fjarska dýrar, svo að brauðið hjá oss er alténd miklu dýrara en í nokkru öðru landi Norðrálfunnar, enda eru vörur þessar fluttar híngað svo að skornurn skamti, að vér Íslendíngar fáum að tiltölu fyrir hverja manneskju, aldrei nærri þriðjúng kornmatar þess sem talinn er nauðsyn- legr í Danmörku. Samkvæmt ritum Dr. Schleis- ners telst svo til, að í sjálfri Danmörku koma 3 tunnur kornmatar á hvert mannsbarn þar, en hér munu kornaðílutníngar aldrei hafa orðið svo miklir að það hafi orðið tunna á mann. J>að mun ó- hætt að fullyrða, að á seinni árum hefir að vöxt- um farið meiri matr út úr landinu en inn í það hefir flutzt, og mér cr stór efi á, hvort. mörg lönd í Norðrálfu heims mundu þola þetta til lengdar. Kaupmenn vorir finna meiri ábata fyrir sig í að flytja híngað ýmislegt glíngr, vínfaung og munaðar- vöru, en að byrgja sig upp með kornaðflutníngum, því þeim þykir það, sem vænta má, eigi vera sín skylda að byrgja landsmenn upp að matvælum, enda þótt Islendíngar í raun og veru gæti sagt við þá slíkt hið sama og stafnbúi Ólafs konúngs Tryggvasonar sagði við hann á Orminum lánga: «pe.r vinn eg pað eg vinn»; og víst og satt er um það, að ágóði sá sem hér fellr af atvinnu fólks, lendir ekki hjá landstjórninni, því hún hefir sjald- an mikið á milli handa, heldr fer allt það, sem eigi er borðað og drukkið, einhvern veginn svo útúr landinu að ekkert verðr eptir nema sultrinn og seyran, sveitarþyngsli, örbyrgð og vesaldardómr. En með því það yrði oflangt að lýsa öllu þessu verzlunarástandi voru eins og það er í raun og veru, og öllum afleiðíngum þess, og menn kynni auðveldlega að þykja nógu nærgaungulir kaup- mönnum, ef að ofiángt væri farið útí þá sálma, þá vil eg aðeins geta þess sem liggr beinlínis í augum uppi, en það er það, að svo lengi vér Is- lendíngar forsómum þær guðs gáfur sem náttúran hefir lagt oss uppí hendrnar, þá þurfum við aldrei

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.