Þjóðólfur - 29.09.1868, Page 3
171 —
að búast við að komast framúr þessum vesældar-
dómi sem hefir viljað loða við land þetta hefði
legið í um lángan aldr og sem nú virðist óðum
ætla að færast yfir oss eins vægðarlaust eins og á
2 næstliðnum öldum.
það er gamalt máltæki, að »hollr sé heima-
fenginn baggi», og er það mála sannast; við
Íslendíngar höfum helzt oflengi forsómað ýmisleg
matvæli sem finnast í landinu, og látið þau alveg
ónotuð oss tii hins mesta skaða, og framfara
hnekkis. Látum nú þessa neyðarinnar tíð, sem
auðsjáanlega steðjar að oss, kenna oss að leggj-
ast á eitt til þess með ráði og dáð að komast
sem bezt fram úr vandræðunum, vandræðum sem
eigi alleina nú steðja að oss en sem vér megum
vænta að muni fara vaxandi eptir því sem hinn
annar atvinnuvegr lands þessa, eg meina fiskiafl-
inn, þverrar svo að kalla ár frá ári. það eru
því miðr sorgleg sannindi, að flskiafli landsins er
svo að kalla gjörsarolega að eyðileggjast. Margar
hinar helztu veiðistöður eráðrvoru, eru eyðilagð-
ar af fiskifiota framandi þjóða, einkum Frakka,
er draga fiskinn meira og meira út frá landinu
svo að báta fiskiríið er á förum. Frakkar munu
nú hafa hér við land um 400 fiskiskipa sem liggja
til fiskjar í kríngum landið allt frá austfjörðum og
norðr fyrir Vestrhorn. Klaganirnar, sem svo iðu-
lega og frá öllum stöðuin landsins, hafa borizt til
Alþíngis yfir því, hvað nærgaungulir þessir útlendu
fiskimenn sé opt og tíðum, sýna bezt fram á,
hvers íslendingar hafa að vænta framvegis, og þó
komið hafi einstöku ár er fiskazt hafi nú um hið
síðasta 10 ára bil, þá eru þó hin lánglum fleiri
hvar vetrarvertíðirnar hafa alveg brugðizt hjá því
sem var í fyrndinni. Lestahlutirnir sem hér voru
áðr, eru nú alveg horfnir og fjöldi hinna beztu
veiðistaða t. a. m. Dritvílt og öll fiskiverin í kríng-
um jökul eru nú gjörsamlega eyðilögð. Hið sama
er nú farið að verða ofan á hér i Faxaflóa, þar
eð mest allt vetrarfiskirí má kalla eyðilagt undir
Vogastapa og í Hafnarfirði og nú kvað, samkvæmt
áreiðanlegra inanna dómi, vera orðið eins við ísa-
ljarðardjúp og á Vestfjörðum en hvernig Vest-
nianneyar og austr-fiskiverin eru komin, er ljós-
®ra en frá þurfi að segja. í stuttu máli, allt
bendir á að fiskiafli íslands, sem aðalatvinnuvegr,
á förum, því þó menn á vorin, sumrum og
baustum sé að reita smáfisk og ísu, þá vita alfir,
að slikrafii er varla annað en höfðatalan, sem opt
getr yerið mikil í orði en verðr allt minna úr á
borði. f>að fyllir að vísu mikið í munni hjá sum-
um, þegar sagt er að sá eða sá hafi fengið 5—6
hundraða fiska hlut á vor- eða haustvertíðinni, en
þegar öllu er á botnin hvolft, þá er þetta smælki
sjaldan meira en þrjár til fjórar vættir fiska, og
optast lángtum minna, afþví útróðrarmaðrinn hefir
orðið að hafa mikið af hlutnum til viðrværis sér,
meðan hann var við sjóinn.
Eg heyri sagt, að bændr hafi í sumar víða
hvar um landið byrgt sig upp að fjallagrösum; og
er það bæði vel og hyggilega gjört, og óskandi,
að sem flestir vildi fylgja þvi dæmi; en minnaheyri
eg talað um að nota söl og fjörugrös svo sem vert
væri, og mun það meðfram koma af því, að
menn eru orðnir því óvanir. Til þess að leiðbeina
landsmönnum mínum í þessu efni ritaði eg grein í
blaðinu fslendíngi, um notkun ýmsra matvæla hjá
oss, og hefi eg nú í hyggju að láta ritgjörðir þær
koma út í sérskildum bæklíngi, ef þær kynni að
geta orðið einhverjum til leiðbeiníngar og að not-
um. Reykjavík 19. September 1868.
J. Hjaltalín.
SKÝRSLA
um v ö r u s ý n i n g u n a í lieykjavík.
Samin og send af forstöðunefndinni.
Sýnishorn af vörum þeim, að þessu sinni að
eins saltfiskr og ull, sem vörumatsmennirnir hafa
skoðað jafnframt og þær hafa verið lagðar inn til
kaupmanna hér í bænum, og álitnar voru betr
verkaðar heldr en alment viðgengst, ogþessvegna
einnig borgaðar með nokkuð hærra en algengu
verði, voru, eptir auglýsíngu fyrirfram, almenníngi
til skoðunar í «Glasgow» dagana 15., 16. og 17.
þ. m., eru inolagðar af hér tilgreindum mönnum:
A. Upphæð innlagníngar í saltfiski.
Nr. skpd.lpd.pd.
1. ab J>orláki þorkelssyni á Bakka . 6 3»
2. Ingibjörgu, ekkju á Hausthúsum (Rvk) » 17 6
3. Hróbjarti Andréssyni á Eyvindarstöð. » 10 »
4. Grími Guðnasyni á Seli ... 1 » •
5. abc þorkeli Guðmundss. á Káravík 4 9 6
6. Jóni Arasyni á ívarshúsum ..258
7. Gissuri Guðmundss. Miðhús. (Rvk.) 1 10 »
8. Guðmundi Helgasyni á Grjóta .'1 3 12
9. Arnóri Oddssyni á Mýrarhúsum . 1 » •
10. ab Sigurði Arasyni hreppst. á Gesthús. 9 11 14
11. Guðmundi Björnssyni á Efstabæ .342
12. abc Guðmundi Erlendssyni á Rvk, 20 4 10
13. ab Ólafi Steingrímssyni á Seli .246
14. ab Einari Einarss. hreppst. Ráðagerði 4 10 »
15. fvari Jónatanssyni á Seli . . . 1 13 2
16. J>orláki Guðmundss. hreppst. Miðfelli 1 » »