Þjóðólfur - 05.01.1869, Page 2
38 —
dag Marzmánaðar, þá má alls eigi ráð fyrir gjöra,
að það verði hér komið fyr en í miðjnm mánuð-
inum. f>ótt nú stjórnin liéldi sér beinlínis til
kjörstjóranna, sem eru sýslumennirnir hver í sinni
sýslu, og léti eigi amlinennina hafa nein afskipti
af þessu máli, og þegar væri við brugðið og
gjörðir út sérstakir sendimenn til sýslnmannanna,
þá virðist auðsætt, þegar litið er á víðáttu lands-
ins, að það er að minsta kosti mjög hæpið, og
að alls eigi má telja það víst, að sendimenn þessir
komist alla leið, t. a. m. veslr á ísafjörð og að
Arnartirði eða norðr á Húsavík1 á þeim tíma árs-
ins á skemri tíma en alt að liálfum mánuði, svo
að kjörsljórar fá naumast boðin fyr en síðast í
Marzmánuði. J>ótt hinum fvrri kjörskrám sé haldið
við, eins og fyrir er skipað í tilsk. 8. d. marz-
mán. 1843, þá geta og mega þó kjörsljórarnir
éigi taka þær og leggja fram, eins og þær eru ;
eg get og eigi séð, að þeirgeti sjálfir lagað kjör-
skrárnar; því að hversu er þeim unnt að vita allar
breytingar, sem orðið hafa á kosningarrétti og kjör-
gengi allra sýslubúa? þeir verða því að láta
presta og hreppstjóra, samkvæmt 3. gr. tilsk. 6.
Janúar 1857, laga kjörskrárnar, hverja í sínum
hrepp. Og ef þessi bréf eiga að fara með ferð-
um, eptir því sem þær falla, þá verðr víst varla
gjört ráð fyrir, að þau bréf hvers kjörsljóra fyrir
sig verði komin um alla sýsluna fyr en eptir einn
liálfan mánuð, og þótt prestr og breppstjóri bregði
þegar við, fá þó sumir kjörstjórar naumast skýrslur
úr öllum hreppum sýslunnar fyr en síðast í Apr-
ilmánuði, eða öllu heldr snemma í Maímánuði,
og þótt kjörstjórar beinlínis tæki menn, til að
bera bréf þessi fram og aptr, mundi þó sú raun
á verða, að það yrði farið að líða á Aprílmánuð,
er þeir fengi allar þessar skýrslur. Nú á þá
kjörstjórnin að fara að semja aðalkjörskrá fyrir
alla sýsluna, og um það hún yrði komin á alla
kirkjustaði, hlýtr að vera kominn miðr Maímánuðr.
Að því búnu eiga kjörskrárnar samkvæmt 20. gr.
alþingistilskipunarinnar að liggja öllum til sýnis
að minnsta ltosti í 6 viltr, áðr en kosningar geti
fram farið, svo að eptir því geta kosningarnar eigi
orðið fyr cn síðast í Júnímánuði. Og þótt nú
konungr gæfi út bráðabyrgðalög, sern varla er þó
ráð fyrir gjörandi, að kjörskrárnar skyldu að eins
vera birtar og lagðar fram mánuði á undan kosn-
ingum, og það er hinn stytzti tími, er verða má,
1) Yér gjurum hiir ráí) fyrir, at& gufuskipib konii vib á
Boruflrbi á hingableiíiiniii, og skili þar eptir bréfln til sýslu-
inauiiarina i Múlasýsluniim.
þar sem víða er eigi messugjörð nema 3. hvern
sunnudag, þá er þó kominn miðr Júnímánuðr, er
kosningar geta fram farið. Nú er þó eptir að skýra
þeim frá kosningunum, er fyrir þeim verða, og
skyldi þá einhver þeirra eigi vilja taka kosning-
unni, þá verðr að senda til varaþingmannsins, svo
að alt dregr þetta tírnann, og getr þelta með
engu móti verið alt komið í kring fyr en í byrj-
un Júlímánaðar, og þykist eg þó bafa ætlað svo
lítinn líma til hvers eins, sem auðið er, og rninni,
en hann verðr, þegar til reyndarinnar kemr. |>ing-
mönnum úr fjarlægustu sýslunum, t. a. m. Múla-
sýslunum og jafnvel Austr-Skaptafellssýslu, má og
eigi styttri tíma ætla til heimanbúnings og ferðar-
innar til þings, en mánuð; því að hversu mega
þeir vera viðbúnir, að leggja þegar á stað til þings,
er þeir fá vilneskju um kosninguna; engi getr
ætlazt til, að þeir geti farið frá heimilum sínnm,
I án þess að gjöra neinar ráðstafanir i ýmsum efn-
um, sem þó taka upp fyrir þeim nokkurn tíma,
og nú ætti þá þing að selja í byrjun Ágústmánað-
ar, og er þó í ýmsu hér óvanalegr vegr farinn,
svo sem að konungr verðr að stefna þing með
fyrstu eða annari ferð gufuskipsins, áðr er nokkur
þingmaðr er kosinn. Annað atriði er það, að
skyldi nokkur þingmaðr verða kosinn erlendis, þá
er honum að öllum líkindum með öllu fyrirmunað
að koma til þings; og það er þó sannlega eigi
nema réttlát krafa, að öllum þingmönnum gefist
kostr á að koma á þing, svo að ekkert kjördæmi
landsins verði af þeim sökum þingmannslaust.
Eg hef nú bent á örðugleika þá, sem á því
eru, að þing verði haldið í sumar, ef nýjar kosn-
ingar eigaframað fara, og þarfað minnsta kosti að
taka ráð í tíma, ef úr þeirn á að bæta, en óhægð
mun mikil þykja á, ef þingið verðr eigi sett fyr
en á áliðnu surnri.
lialldór Kr. Friðrilcsson.
— Sipströnd. í 7.—8. blaði 21. árs »þjóð-
ólfs« er eptir bréfi, dags. á Djúpavogi 20. dag
Nóvemberm. f. á., frá merkum manni, skýrt frá
fjársköðum þeim, er urðu í Múlasýslunum f haust
15.—18. d. Októbermánaðar. Póstgöngurnar á
íslandi eru enn eigi orðnar svo góðar, að vér höf-
um gctað enn fengið nákvæmar fregnir um tjón
það, sem varð af veðri þessu. En í »Dagbladet*
12. Nóvember f. á. stendr ágrip af bréfi, dagsettu
á Seyðisfirði 24. Októberf. á., til fiskiveiðafjelagS"
ins danska, og er þar sagt, að þessa nefndu daga
hafi þar verið slíkt ofsaveðr af landsuðri, og snjó-