Þjóðólfur - 10.04.1869, Side 3

Þjóðólfur - 10.04.1869, Side 3
— 95 — rd. sk. 1867 frá 1. Júlí — 11. Sept. Forseti Jón Sigurðsson skjalavörðr. Fæðispeiiingar 27 þingmanna ..........................7117 rd. »sk. Ferðakostnaðr ........................................ 1650— 48 — §767 rd. 48 sk. Annar kostnaðr ....................................... 5432 — 48 — 14200 » (Niðrlag síðar). — Fiskiveiðafclagið danska. — I 14.—15. blaði þjóðólfs skj?rðum vér frá því, hversu félagi þessu hefði gengið veiðarnar hið síðasta árið, eplir því, sem frá var skýrt í dönskum blöðum. Föstudag- inn 22. dag Janúarmánaðar þ. á. áttu félagsmenn fund með sér í Kaupmannahöfn; sagðist þá Capi- tain Hammer svo frá, að skotfærin hefði reynzt góð; en allt um það hefði hann eigi náð nema 6 hvölum, en nokkra hefði hann misst sökum þess, að slrengirnir hefði stokkið í sundr, er hvölunum skyldi lypta upp. Allar þorskaveiðarnar hefði num- ið 56,000 fiska, en af þeim týndust 10,000, þá er »Berufjörðr» fórst í haust (sjá 10.—11. bl. 21. árs þjóðólfs, bl. 29)., en skipið »Ingólfr» fékk alls 165 tunnur lýsis. 1 haust kvað hann að mikil síld bæði stór og feit hefði komið inn á fjörðuna fyrir aust- an; en menn lians liefði eigi getað notið þeirra veiða til hlítar sökum nótaleysis, og hefði því fengið að eins rúmar 100 tunnur, þar sem Norð- menn, sem þar voru, liefði fengið í einu kasti yfir 2000 tunnur. Stórkaupmaðr Helchior lagði því næst fram reikning yfir tekjur og útgjöld félagsins næstl. ár, og eptir honum var halli félagsins 70,000 rd., og var það þannig reiknað: Hallinn, er leiddi af útgjörð skipanna 43,621 rd. 68 sk. Fyrning á skipum, og ýmsum húsum á íslandi................. 14,700 — » — Áhöld, leigur 0. s. frv. . 11,678 — 28 — 70,000 Yeiðin 1867 nam . . . 65,599 — 40 — en 1868 að eins................. 27,403 — 54 — eða framt að 40,000 rd. minna en árið á undan. Eptir nokkrar umræður um það, hvað gjöra skyldi, varð niðrstaðan sú, eptir uppástungu fé- lagsstjórnarinnar, að bjóða mönnum, að taka hluti í fél'aginu upp á 70,000 rd., og skyldi þeir ldutir hafa forgöngurétt til 50 p. C. af öllum aflanum 1869, og, ef félagið sundraðist, skyldi sömuleiðis þessir hinir nýu hlutamenn fá helming þess fjár, er félagsmönnum bæri fyrir eignir félagsins. Áðr en fundi þessum var slitið, var þegar heitið 51,000 r<l-, upp í þær 70,000 rd., er félagið þurfti, en lyrir hinum 19,000 rd., er þá vöntuðu enn upp á, náðust ný hlutarbréf smámsaman eptir á. Capitain Ilammer lagði af stað 24. d. Fe- brúarm. á gufuskipi sínu Tomas Roys og ætlaði fyr sttil selaveiða norðr í höfum, en nokkrum dög- nm síðar hafði »Garðar» lagt af stað til þorska- veiða við ísland. Lá Garðar 8 daga veðrteptr í Færeyum og komst eigi þaðan fyr en 17. f. mán. en var þó eigi kominn á Djúpavog að morgni 20. s. mán., þegar Fönix kom þar við. — Af skiptapa og manntjóni á Vestmanneyum. 1 síðasta blaði þjóðólfs er getið skiptapans, sem varð á Vestmanna-eyum hinn 26. d. Febrúarm. þ. á.; síðan höfum vér fengið greinilega skýrslu um atburð þennan frá prestinum þar á Eyunum sira Brynjólfi Jónssyni, og getum vér því nú skýrt greini- lega frá atvikunum. 25. dag Febrúarm. réru alls 17 skip úr eyjunum, og var eitt þeirra 4 manna- far. 4 þeirra réru norðr fyrir eyarnar, en hin 13 liéldu suðr með eyunni. En áðr en öll skipin voru komin á fiskileitir, brast á ofsalegr stormr afvestri, og fylgdi þar með mcsti gaddr. 3 af skipum þeim, er héldu norðr fyrir eyuna, gátu náð landi á Eiðinu, milli Heimaeyar og Heimakletts ; og gekk það slysalaust. Af hinum 14 skipunum komsteitt undir yzta-klett, sem svo er kallaðr, og lá þar í skjóli við klettinn, þangað til kl. 3 um nóttina; þá slotaði storminum lítið eilt, og náði það þá lendingu með beilu og höldnu. Hin 12 skipin og bátrinn komust nærri upp að höfninni, en urðu þá að láta undan síga og austr fyrir Bjarnarey, sem er hér um ’/2 mílu austr frá Ileimaey. í skjóli við eyju þessa lágu þau öll saman frá því mitt á milli hádegis og dagmála, allan daginn og nóttina eptir. Daginn eptir hélzt stormrinn; en þá er fullbjart var orðið, var mannað eitt af skipum þeim, er landi höfðu náð deginum áðr, með 22 hinum hraustustu mönuum, til að flytja þeim matvæli og hressingu. Tókst það og, að skip þetta komst til Bjarneyar; voru þá 2 menn látnir af þeim, sem úti höfðu legið um nóttina, af kulda og vosbúð. Skipverjar brestust við sendingarnar, og með því að þá slotaði veðrinu nokkuð í svipinn, lögðu flest skipin á stað, til að reyna að ná landi, og tókst það 7 þeirra, auk þess sem sent hafði vcrið, en 3 urðu að hverfa aptr lil Bjarneyar, sökum storms l.

x

Þjóðólfur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.