Þjóðólfur - 06.07.1870, Page 3
— 143 —
að þeim eigi að skipta svona niðr milli allra fá-
tækra prestaekkna víðs vegar um land. En sé svo
til ætlað, þá þykir mér það ekki svo heppilega ráð-
ið. Eg neita því ekki, að sjóðrinn sé stofnaðr og
til hans gefið handa öllum fátækum prestaekkjum
hér á landi, að hann sé þeirra allra virkileg eign
í þeim skilningi: að þær sé allar réttbornar til að
njóta afrakstrsins af honum, eptir meiri eðr minni
þörfum og öðrum ástæðum hverrar fyrir sig; en
hér svnist mér að öðru máli verði að skipta, þar
sem ákveðið er, að ekki skuli útbýta fyrst um sinn
nema sem svarar vel þriðjungi af þeim ársrentum,
er sjóðrinn nú gefr. Nú meðan svo stendr, — og
ekki kemr mér til hugar að lasta það, að umráð-
endr sjóðsins vili efla hann sem bezt með því að
bæta 2/„ ársrentunnar við innstæðuna, — þá virð-
ist samt nokkurt áhorfsmál, að byrja útbýtinguna,
einmitt af því það er svo lítið, sem nú verðr út-
býtt, svo að ekki geti hver prestsekkja fengið nema
rúman dal, því engi prestsekkja er svo illa stödd,
þótt kjör margrar hverrar sé næsta aum, að hana
muni það að neinu eða að henni sé veruleg hjálp
í því, að fá 1—l’/2rd., og hana munar þetta því
síðr sem þörf hennar væri meiri til verulegs styrks.
Einmitt hitt sýnist mér ætti að ráða hér úrslitum,
að útbýtingin yrði takmörkuð til færri, svo að þær
fáu gæti borið úr býtum eitthvað það sem mætti
verða styrkr hverri fyrir sig; eg vil taka t. d.
að þessum 60 rd. yrði í ár skipt niðr einungis í
6 staði eðr til sex prestaekkna. Eg get vel
liugsað, að menn kasti hér fram þeirri spurningu:
hvernig áSynodus eða biskupinn að geta hittfyrir
og valið úr einar 6 af öllum þeim prestaekkjum,
er maklcgastar sé og mest þurfandi? Eg held að
þetta sé ekki svo ókljúfandi eins og sýnast kann
í fyrstu svipan, og vil eg þó geta þess fyrir fram,
að eigi er neitt verulegt í húfl, þótt einhverjum
kynni að sýnast önnur prestsekkjan maklegri en
sú, er styrkinn hlyli; vegna þess að hér er ekki,
að eg ætla, verið að ræða um föst árleg eptirlaun,
heldr að eins um útbýtingu á stundar-styrk það
og það árið í senn, og sem önnur prestsekkjan
getr orðið aðnjótandi í ár, hin hitt árið. En um
það, hvernig finna skuli það, hverjar 6 af öllum
ekkjunum standi næst að og bezt til að njóta styrks
þessa nú þegar, þá leyfi eg mér að segja herra
biskupinnm og Synodus, ekki svo að eg í nokkurn
máta dragi í efa réttsýni þeirra, sem hér eiga hlut
að máli: það eru fyrst og fremst ekkjur eptir þá
prestana, «sem hafa gjört miskunarverkið" ápresta-
ekknasjóðnum með því, að styrkja hann verulega,
ýmist með árstillagi, meðan til entust, eðameð veru-
legu fjárframlagi á annan hátt. |>ar með hafa þessir
prestar niðrsáð því góða sæðinu, sem ekkjur þeirra
eru fremr óðrum maklegastar og eg vil segja rétt
bornar til að upp skera. Og því fremur, sem það
mun víst um alla ektamenn þeirra, er sjóðinn styrktu
á þeim barndóms- eðr vísis-dögum hans, að þeir
gáfu til sjóðsins einungis «af góðum sjóði síns
hjarta», en eigi með þeim hug, að ekkjur þeirra
yrði þess aðnjótandi að neinu, því síðr, sem engi
gat gjört sér það í lund á þeim árum, að sjóðr-
inn efldist svo brátt, að hann að 10—15 árum
frá fyrstu stofnun mundi geta orðið aflagsfær um
nokkurn styrk, auk lieldr svo mikinn sem þó er
nú í ráði að verja og útbýta. Og látum oss þá
líka meðfram ráðgjöra almennar mannlegar hvatir,
sem eru næsta eðlilegar, eru líka innrættar mann-
legri náttúru, viðrloða manninn, en þær hvatir eru
þessar, að menn eru yfir höfuð að tala tregari til
að niðrsá, þegar engi er von uppskeru, tregari til
að leggja fram fé og árstillög, þegar engi er von
um að sjálfr sá, er af hendi lætr, né neinn hans,
geti þar notið góðs af. Nú ef vor háæruverðugi
herra biskup og vor virðulegi Synodus í ár vildi
þýðast þær bendingar mínar, sem hér eru gefnar,
og allt það réttlæti uppfylla, sem hér getr verið
um að ræða, með því að láta svo sem 6 ekkjur
þeirra presta, er prestaekknasjóðinn styrktu á með-
an til entust, sitja í fyrirrúmi fyrirþeim 60 rd., er
nú skal útbýta, aptr aðrar 6 að ári, ef um svo
margar ekkjur slíkra presta væri að ræða, en ella
nokkrar af þeim, er nú fengi, o. s. frv., þá skjátl-
ast mér um of, ef þetta gæti eigi orðið veruleg
ogjafnvel knýandi bvöt fyrir margan prest, erhefir
dregið sig í hlé þar í stað hingað til, að gefa sig
nú fram og styrkja sjóðinn með árlegu fjártil-
lagi, og stytta svo eðr fækka þeirri áratöln, sem
sjóðrinn, með ekki fleiri né meiri árstillögum en
hann nú hefir, þarf til þess viðgangs, að hætta megi
að leggja 2/;, ársrentanna við innstæðuna, heldrað
sjóðrinn mætti sem fyrst ná þeirri 5—6,000rd.
innstæðu-upphæð, er eg hefi heyrt að svo skyn-
samlega sé ákveðið að sjóðrinn skuli ná áðr en
öllum ársrentunum, er þá yrði 200—240 rd. ár-
lega, sé óskertum varið til útbýtingar.
Eg efa ekki, að öllum, er hér eiga hlut að
máli, sé fyllilega kunnugt um það, hverjar þær
prestaekkjur sé, er þannig stæði næstar til styrks
að þessu sinni, ef svona yrði tekið í málið. En
samt vil eg leyfa mér að nefna nokkrar þeirra,
eptir því semeghefi útfundið, með því nýlega að