Þjóðólfur - 06.09.1870, Side 4

Þjóðólfur - 06.09.1870, Side 4
ingu við það, sem eru skammbyssur þær, er kall- aðar eru «Revolvers»; það er nefnilega látin plata í hjói fyrir aptan hlaupið eða hlaupin; í plötunni eru holur jafnvíðar og byssuhlaupið, og þar í eru skotin látin. lijólinu er snúið með sveif, og er holurnar í plötunni standast á við hlaupið, ríðr skotið af. f>egar ein platan er búin, er hún tekin úr, og önnur látin í staðinn. Af þessu sjá lesendr yðar, að vopn eru nú orðin æði-mikið voðalegri en er menn börðust ineð öxum og at- geirum. Meira að segja, sá her, semheörað eins byssur með gamla laginu móti öðrum, sem hefir hinar nýrri bvssur, er ekki betr að vopnum far- inn, en þó hann liefði lurka eina. En Frakkar máttu sanna eins og segir í vísunni : «Ekki er gott, þótt góðir sé, gripum treysta sínum». Meðan Frakkar voru að þyrpast austr að landa- mærunum og láta mikið yfir sigri þeim, er þeir mundu vinna á þjóðverjum, heyrðist lítið til Prússa annað en það, að þeir sögðu, að ófriðr þessi hel'ði komið sér á óvart, og væri þeir því ver viðbúnir en þeir vildi, en þó mundi þeir reyna að veita Frökkum viðtöku eptir föngum. Létu þeir ganga lierboð til allra, er landvarnarskyldu áttu að gegna, og fóru margir ungir þjóðverjar héðan úr London til þýzkalands til að verja fóstrjörð sína. Mikið heyrðist og nin herflutninga frain og aptr um þýzkaland, en engi vissi þó með vissu, hvar stöðvar hersins voru, og svo var farið dult með j ferðir hersins, að jafnvel margir hinna æðri her- foringja vissu ekki með vissu, hvert þeim var ætl- að að fara. Bárust því Frökkum erigar fregnir um ferðir Prússa; en aptr ætla menn, að Prúss- um hafi verið vel kunnugt um ferðir Frakka. Er sagt meðal annars, að þeir hafi farið upp í lopt- skipi og kannað lið Frakka og stöðvar þeirra. Vilhjálmr Prússakonungr er sjálfr aðalhershöfðingi þýzka hersins ; hann er nú á áttræðisaldri, en hinn ernasti. Eg verð og að nefna annan mann í þýzka hernum, er Moltke heitir; hann er danskr að ætt. þjóðverjar kalla hann Moltke hinn þögla, því að liann er maðr fáorðr; en einhver þarfasti maðr er hann í her Prússa, þótt ekki gangi hann í bar- daga. Uann sitrí tjaldi sínu eðr herbergi og hefir fyrir sér landauppdrætti, og í kring um sig hefir hann rafsegulþræði, er ganga í allar áttir; og þar sem hann sitr í sæti sínu, segir hann fyrir, hvernig hver herflokkr skuli halda, hvar hann skuli stöðva, gjöra atlögu o. s. frv. Sigrvinningar Prússa 1866 eru að miklu leyti eignaðar fyrirskipunum hans; og eigi hafa þær orðið síðr heilladrjúgar í þetta sinn, eins og síðar mun skýrt frá. Frökkum og Prússum lenti fyrst saman þriðju- daginn 2. þ. mán. hér um einni stundu fyrir há- degi. Frakkar réðust á lítinn bæ óvíggirtan er heitir Saarbriick, sem liggr við ána Saar, er rennr ÍMosel. Frakkar höfðu lið margfalt meira, og höfðu þar að auki sett stórskotalið sitt á hæðirnar í kring um hæinn, og varð þeim því auðunnið að hrekja Prússa þaðan. Napóleon keisari kom frá Metz með son sinn til að horfa á leikslokin og venja drenginn við kúiuþytinn, eðr skíra hann «eldskírninni», sem hann kallaði. Sendi Napóleon þegar fregnina um sigr sinna manna með frétta- fleyginum til Parísar, og gjörði ekki minna úr en var. En »skamma stund verðr hönd höggi fegin», og svo fór hér. Á fimtudaginn eptir (hinn 4.) brauzterfðaprinsinnprússneski með hér um 100,000 manna af Prússum og Bæaralandsmönnum í gegn- um hergarð Frakka við Weissenborg; það er vel víggirtr staðr. þar voru Frakkar liðfærri fyrir en Prússar; eptir harða sókn og vörn og allmikið inannfall af hvorumtveggja urðu Frakkar að flýja; hershöfðingi þeirra einn að nafni Douay féll. Nú hélt erfðapnnsinu prússneski inn í Frakklaud Og mætti lítiili eðr engri viðstöðu næsta dag, en á laugardagsmorguninn (hinn 6.) mætti hann hinum frakkneska hershöfðingja Mac Mabon með alla sína sveit og n.okkuð af sveitum marskálks Canroberts og hershöfðingja de Faillys. Börðust þeir þann dag allan, og urðu þau leikslok, að Mac Mahon beið algjörðan ósigr, en Prússar tóku, að sagt var, 4000 fanga og margar fallbyssur, og þar á meðal nokkrar af þeim, er kallast »Mitrailleuse», og koin það nú fram, að Prússar höfðu líka þess konar byssur, þótt lítið hefði verið af því skrumað. þessi orusta stóð millum bæanna Hagenau og Wörth. Annar aðalhluti prússneska hersins undir forustu Steinmetz’s hershöfðingja hélt á föstudaginn að Saarbrúck, og réðust á vígstöðvar Frakka á hæð- unurn í kringum bæinn, er kallast Spichern. þar varámóti hershöfðingi Frakka að nafni Frossard. I’rússar voru að sögn fámennari, og Frakkar stóðu miklu betr að vígi. Eigi að síðr sóttu Prússar með svo miklu atfylgi, að Frakkar urðu að hörfa undan, og skorti þó ekki ágæta vörn af þeirra hálfu. Mannfallið var ógrlegt af hvorumtveggja. — Nú höfðu Prússar grirnmilega goldið Frökkum hinn svo kallaða sigr við Saarbrúck. þeir voru nú komnir inn í Frakkland í stað þcss að Frakkar ætluðu að vaða yfir þýzkaland, þeir höfðu neytt

x

Þjóðólfur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.