Þjóðólfur - 06.09.1870, Page 5

Þjóðólfur - 06.09.1870, Page 5
— 169 — allan frakkneska herinn til að hörfa undan, og felt eða fangað nálega alla sveit MaG Mahons og gjört þeim mikinn annan skaða. Er sagt að Frakk- ar hafi mist í öllum þessum bardögum hér um bil 20,000 manna. Er þcssar fregnir komu til Parísar, varð mönn- ummjögfelmt við. Múgrinn gjörði ráðaneytinu að- súg og heimtaði, að sér væri t'engin vopn í hendr til að verja föðurlandið. þingið var kallað saman mánudaginn eptir bardagann við Wörth og Ha- genau. Létu þá þingmenn í Ijósi megna óánægju sína með aðgjörðir Oliviers og með ráðgjafa hans. Sögðu þeir, að allr útbúnaðr hersins hefði verið í handaskolum og kendu ónytjungsskap hershöfð- ingjanna um ósigra þá, er Frakkar höfðu beðið. Stungu nokkrir jafnvel upp á, að sett væri sljórn- arnefnd til almennings varnar; en það var sama og að setja keisarann af, og varð því ekki fram- gengt. Ástandið í París var hið ískyggilegasta. Uppreistarflokkr einti, þótt lítill væri, æddi um strætin, og varð að kalla út berlið til að bælahann. Olivier og bans ráðaneyti varð að víkja frá, og er hann nú flúinn til Ítalíu. I hans stað kom greifi Palikao, gamall hermaðr; hann er hermálaráðgjafi og forseti hins nýa ráðaneytis. Mjög var róstu- samt á þinginu um þessa daga, og lenti þing- mönnum jafnvel saman í handalögmáli. Herlög voru þegar boðuð í París, og henni er stjórnað eins og umsetnum bæ með hervaldi og eptir her- lögum. Fjöldi manna er látinn vinna að víggirð- ingunum kring nm bæinn og almennings-herútboð er haft um land alt; og eru allir eins hugar, að reka Prússa af höndum sér. Nú víkr sögunni aptr að frakkneska hernum, þar sem hann var að halda undan Prússum, og höfðu Frakkar von um, að hann gæti veitt Prúss- um mótstöðu við Metz, við ána Mosel, sem er vel víggirtr staðr; og vikuna eptirhina miklu bardaga 7.—13. varð nokkuð hlé á, en Prússar héldu þó stöðugt á eptir Frökkum lengra inn í brakkland. Napóleon keisari fékk nú yfirstjórn hersins í hendr marskálki Bazaine, og var það nú afráðið, að bíða ekki Prússa við Metz, heldr halda með allan þorra hersins til Chalons bjá ánni Marne, sem er hér um bil háifa fimtu þingmannaleið í austr frú Par- ísarborg. f>ar eru vellir miklir og allmiklar víg- girðingar, og hefir þar margr harðr bardagi háðr verið. En nú var vandinn, að koma hernum vestr til Chalons, því að Prússar voru ekki iðjulausir. f>eir höfðu nú lagt undir sig fylkin Elsass og Lo- thringen og sett stjórnendr yfir, og nú voru þeir komnir öllu megin að her Frakka til að banna þeim leiðina vestr að Chalons. Sunnudaginn (hinn 14.) lenti þeim saman skamt frá Metz, og varð þar hörð atlaga, en úrslitin voru efasöm, svo hvor- irtveggja kváðust eiga sigri að hrósa. þriðjudag- inn (hinn 16.) varð enn barðr bardagi millum hins þriðja hluta hins prússneska hers, og fyrir honum er prins FriðrilnKarl, og milli hersins frakkneska á veginum frá Metz til Verdun. Bazaine yfirhers- höfðingi var hér sjálfr fyrir með sína sveit og mikið afhinum svo kallaða keisaraverði; getrPrússa- konungr þess, að þeir hafi barizt hraustlega. f>essi bardagi var hinn mannskæðasti af þeim, sem ver- ið hefir í þessum ófriði, en þó vita menn enn ekki með fullri vissu, hve margír féllu. Margir hershöfðingjar féllu af báðurn, en þó báru Prúss- ar hærra hlut, og neyddu þenna hluta af her Frakka að hörfa aptr til Njíetz; þar að auk tóku Prússar 2000 fanga. Næstu tvo dagana miðviku- daginn og fimtudaginn var stöðugr bardagi, og i hraðfrétt dagsettri á náttrnálum á fimtudaginn segir Yilhjálmr Prússakonungr: »Undir forustu minni réðust Prússar á Frakka í víggirðingum þeirra vestr frá; eptir níu stunda bardaga voru þeir gjörsam- lega sigraðir, og reknir aptr að Metz; þeir eru nú svo króaðir, að þeir geta engum fregnum komið til Parísar né fengið þaðan». Enn eru ekki komnar neinar fregnir frá París tim þessar síðustu orustur, og má af því ætla, að Bazaine sé svo króaðr, að hann komi engum fréttum. f>að lítr því mjög illa út fyrir frakkneska bernum, ef þessi síðasta frétt er áreiðanleg, sem hún er að öllum líkindum, því að fréttir þær, er komið hafa frá Prússum, hafa jafnan reynzt áreiðanlegar, en alt öðru máli hefir verið að gegna um fréttir Frakka. Til Napóleons keisara heyrist Ktið. Sagt er, að hann sé nú í Rheims. Margir ætla, að hans ríkisár sé talin, hvernig sem þessum ófriði lyktar. Frakkar eru allir einhuga í, að spara ekkert, er í þeirra valdi stendr, til að frelsa land sitt, en Na- póleons erað engu getið, og lítr því svo út, sem þeim þyki litlu skipta, hvað um hann verðr. Floti Frakka hefir lítið að gjört; nokkur hluti hans liggr fyrir mynninu á Elben og bannar allar skipaferðir til eða frá Hamborg. Annar hlutinn er í Eystrasalti og sitr um hafnirnar þar, og um verzlunarskip Prússa. En þeir segjast hvergi var- búnir, ef þeir leiti landgöngu. Með næstu ferð vona eg, að eg geti sagt yðr frú lokum ófriðar þessa, og læt eg svo hér staðar nema að þessu sinni.

x

Þjóðólfur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.