Þjóðólfur - 26.09.1870, Side 2
174 —
— EMBÆTTÍSPRÓF í prestaskólanum 22.—
26. Ágúst.
Þorvaldr Jónsson frá Gilsbakka:
1. aðaleinkunn (49 tröppur).
Spurningar í skrifiega prófmu voru:
í biflíuþýðing: Róm. 8, 1—8.
- trúarfræði: Að útlista sambandið milli réttlæt-
ingar, trúar og helgunar?
-siðafræði: Hvernig ber að svara spurningunni
um það, hvort dygðin verði lærð?
og hvaða gildi hefir hugmyndin um
dygðameðul í kristilegri siðafræði?
Ræðutexti: Matt. 16, 24—27.
FJÁRKLÁÐINN. — Réttir voru nú hafðar á
Vatnsleysuströnd (Vogarétt) fyrir hálfum mánuði,
og í Álptaneshrepp (Gjáarrétt) 2 dögum síðar; fund-
ust þá í Vogarétt nálægt 20 kindr með kláða,
sem kallaðr er, og 2 í Gjáarrétt, og voru allar
þessar kindr að sögn þegar skornar; munu þær
allar eða flestallar hafa verið frá Ásláksstöðum á
Vatnsleysuströnd, enda var sagðr kláði eða þess
konar óþrif í því fé í vor, og það eigi baðað eða
læknað sem skyldi, áðr en því var algjörlega sleppt.
Önnur kláðakindin, sem kom í Gjáarrétt, var úr
Hafnarfirði, frá þeim bænum, sem óþrifinvoru þar
á í sumar. I Mosfellssveitarréttinni (Kambsrétt)
20. þ. m. fannst enginn óþrifavottr, og heldr eigi
í Ölfusréttum 22. d. þ. m. Af þessu má þó
ráða það, að óþrifin hafa eigi breiðzt út í sumar,
og virðist því eigi hafa verið mjög sóttnæm; en
alt um það verða fjáreigendr þeir, er fé þeirra
liefir gengið saman við hið sjúka, að hafa alla
varúð við, og það ætti eigi að þurfa yíirvalda-hoð
eða nauðung tit, að þeir böðuðu nú þegar alt fé
sitt svo, að öruggt væri; enda er þeim sjálfum
það mestr hagrinn, og mundi þeir fá þann kostn-
að og fyrirhöfn fyllilega borgaða við hetri þrif
fjárins, þótt kláðahræðslan eigi kæmi til, enda víst,
að yfirvöldin muni styðja þá til þess, að baðið
fari reglulega og skipulega fram, þar sem nú er
hér kominn dýralæknir.
SKIPSTRÖND. Nóttina milli 21. og 22. þ.
m. kom hér syðra slíkt ofsaveðr af suðri, að menn
minnast varla slíks, og hélzt mestallan hinn 21.
Skip það, sem getið erum hér á undan að komið
hafi hingað til konsúls Srniths, lá hér á höfninni,
og var að eins búið að flytja úr því um 200 tunnur
salts; en milli hádegis og dagmála tók það að
reka undan, og var þá höggvið úr því annað siglu-
tréð, en það hjáipaði eigi, og rak skipið upp á sker
við Engey sunnanverða, og laskaðist þar, svo að
mest það salt, sem í því var, rann í sundr og ó-
nýttist, og við skipið eigi gjörandi hér. Skip kaupm.
W. Fischers, Nancy, skipstjóri II. Fischer, sem
kom frá Liverpool hinn 19. d. þ. m., hlaðið með
sait, bamp og steinolíu, lá þá á Vogavík syðra,
með því að flytja átti nokkuð af saltinu þar í land,
en skip þetta rak upp þegar um nóttina, skömmu
eptir að ofviðrið datt á, og rak á iand, og brotn-
aði svo og skemdist, að eigi varð sjófært. Hamp-
urinn náðist allr, en saltið fór mestalt, og munu
bæði þessi skip að líkindum verða seld við opin-
bert uppboð, og salt það, sem bjargað hefir orðið.
Stórskaðar hefir enn eigi frétzt liingað að orðið hafi
aðrir af óðviðri þessu, en hér á nesinu tók upp
nokkur skip og báta, er löskuðust; trjágríndr féllu
hér víða um í bænum, og helluþak rcif hér nokk-
uð á einu húsi. Skip lá á Eyrarbakkahöfn, og
slitnuðu festarnar, er það var bundið með í skerin
og kastaði sjórinn því síðan langt á land upp; er
reyndar sagt, að það sé heilt að öðru en því, að
undirkjölrinn hafi farið undan, en óvænt þykir, að
það verði sett á sjó, og muni því verða höggvið upp.
VEÐRÁTTA SUMARIÐ 1870. Hér á Suðr-
landi, að minnsta kosti austr að ^keiðará, hófust
rigningar og óþurkar með lognmollum þegar í
byrjun sláttarins, seint í 13. viku sumars, og hélzt
sama veðrátta við hundadagana út, svo að alment
má segja, að varla var baggi nokkurs staðar í garð
kominn 28. Ágúst, og leiddi af því, að töður allar
voru meir eða minna hraktar, og jafnvel skemdar,
nema þar sem snemma var tekið til sláttar, svo
sem í Viðey og á Ilessastöðum. Sama veðrlag gekk
yfir Borgarfjörð og alt Vestrland og vestari hluta
Ilúnavatnssýslu; þó voru undantekningar nokkrar,
svo sem hér í Kjósinni og fram til dala í Borg-
arfirði; þar komu flæsudagar svo, að töður náðust
þar mjög lítt hraktar. í Múlasýslum aptr á móli
og mestum hluta Norðrlands er sagt að hafi
verið þurkatíð góð allan túnaslátt og nýting á
heyum hin bezta. Að hundadögunum liðnum
þornaði hér upp, og varð hér hin bezta nýting á
útheyi 3 vikna tíma; en nú hefir liinn síðasta
hálfan mánuðinn aptr brugðið til óþurka, svo að
heyskapr varð sökum þess mjög endasleppr. 4.
—11. þ. m. var hér norðanstormr allmikill og
kuldi, og snjóaði þá aðfaranótt hins 7. talsvert
niðr eptir Esjunni; en í J>ingeyarsýslu og Eya-
fjarðarsýslu snjóaði um þá dagana svo á fjöllum,
að kviðsnjór varð, en slyddubylr í bygðum, en sagt