Þjóðólfur - 14.10.1870, Blaðsíða 4

Þjóðólfur - 14.10.1870, Blaðsíða 4
keisari og konungr, en ekki heDr heyrzt, hver orð hafi farið milli þeirra. En þær urðu múlalyktir á fundiþessum, að allr frakkneski herinn í Sedan, hér um bil 90,000 manns, skyldi gefast upp, og eins öil þau hergögn, er þar voru, en þau voru íjarska-mikil. Konungr ákvað keisaranum bú- stað á slotinu Wilhehnshöhe í Hessen- Cas- sel. Var hann sendr þangað með miklu föru- neyti, og í öllu var honum virðing sýnd, svo sem hann væri gestr konungs en eigi herfangi. f>egar konungr spurði keisara, hvort hann ekki vildi semja frið, þá kvaðst keisarinn ekki vera bær um að gjöra neina samninga fyrir hönd Frakklands, þar sem liann væri herfangi. En hann kvaðst hafa falið drottningu sinni og ráðgjöfum alla landstjórn á hendr, áðr en hann fór að heiman, og við þá stjórn yrði konungr að eiga um friðarsamninga. Sonr keisarans var ekki í þessum bardaga, og komst hann undan til Belgíu. þaðan kom hann skömmu síðar hingað til Englands. f>egar Wimpfen aðalhershöfðingi hins frakkneska hers við Sedan heyrði kosti þá, er keisarinn hafði gengið að, kvað hann það gjört án síns viija og vitundar, og sagðist ekki mundu gefast upp að svo stöddu. En er honum var sýnt fram á, að Jjjóðverjar hefði náð því dauðataki á herhans, að honurn væri engi lífsvon, nema hann gæfist upp, þá lét hann undan. Eg hefi hvergi séð þess getið, hvað mann- fallið var mikið í orustu þessari, en það hlýtr að hafa verið fjarska-mikið, og ekkert getr verið ótta- legra en lýsingin á vígvellinum, er náði yfir marg- ar mílur. Heil þorp voru brend upp til kaldra kola, og varla sást maðr eptir lifandi. Nógar sög- ur eru um grimdarverk af hálfu hvorratveggja. Og er slíkt ekki að undra; því að margr verðr sá að vargi, þegar í þessi ósköp er komið, er áðr var góðhjartaðr, og í annan stað er ekki að henda reiður á, hvað satt er af slíkum sögum. Með þess- um bardaga höfðu þjóðverjar alveg unnið þann herFrakka, sem kallaðrvar Rínarherinn, eðaþann her, sem Napóleon ætlaði að vaða yfir þýzkaland með. þeir höfðu tekið ekki miuna en 150,000 frakkneskra hermanna til fanga, og ógrynni af alls konar hergögnum. þeir höfðu og náð á sitt vald öllum norðaustrhluta Frakklands nema hinum víg- girtu stöðum Strasborg, Bitsch, Metz, Toul og Verdun. Af þeim stöðum hefir Toul nú gefizt upp, og búizt er við á hverri slundu, að sömu fregnir komi frá hinum öðrum víggirtu stöðum, er þjóð- verjar sitja um. Alt þetta hölðu þjóðverjar unnið á einum mánuði og þykir furðanlegt; og höfðu þeir sjálfir í byrjun ófriðarins enga von um, að svo vel mundi ganga. Hafa Frakkar reynzt miðr en allir bjuggust við. þjóðverjar hafa að vísu verið miklu liðfleiri víðast hvar. En þó er það ekki Iiðsfjöldinn einn, sem hefir uunið ait þetta; því að víða hefir fundum Frakka og þjóðverja í þessum ófriði borið þar saman, er hinir síðari hafa verið liðfærri og hafa þó borið sigr úr být- um; í annan stað þarf meiri liðsafla til að vaða yfir óvinaland, en verjast þeim. En það sem mest hefir gjört, er bæði það, að allt fyrirkomulag og stjórn í hinum þýzka her hefir verið svo sem bezt mátti verða, en þvert á móti í her Frakka. þannig hafa þjóðverjar jafnan vitað nákvæmlega hvað Frökk- um leið. þeir hafa allt af njósnarmenn og verði allavega út frá meginhernum Iangar leiðir, sva aldrei verðr komið þeim á óvart. Til þessa hafa þeir léttvopnaða riddara, er kallast Úlanar. þeir kanna og landið fyrirfram, þar sem herinn á að fara um. þessum varúðarreglum gleymdu Frakkar nálega í hvert skipti, og hittist því optast svo á, að þjóðverjar komu að þeim óvörum, er þeir voru við mat. í annan stað hafa Frakkar liaft engaþá hershöfðingja, er gæti jafnazt við þá Moltke, von Roon, Blumenthai, Friðrik erfðaprins, o. fl. Parísarborg og allr þorri frakknesku þjóðar- innar vissi lítið eðr alls ekki um allar þessar ó- farir, því að stjórnin hafði búið til sögur um fram- gang sinna manna. Sagði hún meðal annars, að Bazaine héldi kyrru fyrir í Metz af ásettu ráði,eu ekki af þvf, að hann gæti ekki komizt þaðan l'yrir þjóðverjum. Hann og Mac Mahon mundu þegar sameina hcrflokka sína, og væri þá þjóðverjum engi lífsvon framar. þetta var innihald frakknesku blaðanna; en bannað var að selja ensk blöð, því að þau höfðu að færa sannar fregnir um það, hvernig allt gekk. En nokkur vorkun var stjórn- inni, þótt hún drægi þannig lýðinn á tálar, því allir vissu, að upphlaup mundi verða í París, ef al- menningr heyrði alt eins og var. það hefir verið og er enn ein ógæfa frakknesku þjóðarinnar í þessari styrjöld, að þeir hafa ekki þolað að heyra sannleikann, og ekki viljað heyra hann; en hann kemr þó á endanum, þótt ekki sé hann kallaðr. En er Frakkar höfðu beðið ósigrinn við Se- dan og keisarinn var hertekinn, varð ekki lengr hægt að dylja í hvert óefni var komið. Forseti ráðaneytisins, hershöfðingi Palikao, skýrði þinginu frá á laugardaginn hinn 3. þ. mán., að Mac Ma- hon væri yfirunninn og Bazaine væri króaðr f Metz.

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.