Þjóðólfur - 05.06.1873, Side 3
— 123 —
> Aprílmánuði, og drepið þar 6 nautgripi og 1
hest. Jafnvel þó eigi hafi heyrzt að bráðapestar
þessarar hafi síðan orðið vart, og ætla megi að
henni sé lokið að sinni á ofannefndum stað, leit-
aði eg álits dýralæknis Snorra Jónssonar um það
hvort hér mundi nokkuð verða að gjört og eink-
um hvað tiltækiiegast mundi í slíkum tilfellum
framvegis, og birti eg hér með almenningi svar
hans uppá þessar fyrirspurnir mínar:
..........«Útaf þessu skal eg ekki undanfella
þénustusamlegast að láta þá skoðun mína í Ijósi,
að þareð nú er liðinn svo langr tími (tveir mán-
uðir) frá því að bráðafár þetta gjörði vart við sig
síðast, þá álít eg til einkis, að hið opinbera gjöri
nokkrar ráðstafanir f því efni að þessu sinni. Líkt
nautafár og þetta hefir nú á seinni árum stungið
sér niðr á stöku stöðum hér syðra, og þareð engi
efi er á, að sýki þessi sé n æ m (einskonar «Milt-
brand»-veiki), þá er hætt við að hún útbreiðist,
og hafi stórtjón fyrir landið í för með sér, ef eigi
er goldið varhuga við að hefta þegar stigu fyrir
henni, þarsem hún gjörir vart við sig. Eg álít
því næsta heppilegt, ef að þesskonar veiki gjörir
vart við sig hér í nærsveitunum, að hlutaðeigandi
eigandi gjöri þegar amtinu visbendingu um það,
til þess að það geti undir eins sent dýralækni
þangað ef nauðsynlegt virðist; því hinn vanalegi
embættisvegr: til hreppstjóra, sýslumanns og amts-
ins, dregr oftastnær tímann um of við þessháttar
tækifæri. þarsem eigi vegna vegaiengdar verðr
náð til dýralæknis, ætti menn þegar að aðskilja
hin sýktu dýr frá hinum ósjúku, samt gæta þess
nákvæmlega, að heilbrigðir gripir nái eigi sam-
göngu við hina sjúku eða grunuðu, og einnig ber
mönnum þeim, er hirða hina veika gripi, að varast
að koma í fjós þarsem heilbrigðr nautpeningr er.
Til að eyða pestarefninu álít eg einkar gott, að
svæla húsin (fjósin) vel innan með chlorkalks-daun,
og gæta þess jafnframt, að nægilegt loft séíþeim,
samt að þvo alla gripina úr Carbolsýru-vatni (1
lóð af Carbolsýru til 2 potta af vatni); og munu
læknar, þarsem þeir eru við hendina geta gefið
mönnum nægilega vfsbendingu í þessu efni. Gripir
Þeir er drepast úr fárinu, ætti að grafast niðr með
"húð og hári», og vil eg einkum ráðafrá, að kjöt
af pestdauðum peningi sé haft til manneldis......
Lm leið og eg hérmeð brýni fyrir almenn-
,ngi að fara vandlega eftir ofangreindum varúðar-
reglum viðvfkjandi hinni umræddu pest, skal eg
Jafnframt skora á hreppstjóra í þeim sveitum, sem
nokkur líkindi eru til að gæti haft not dýralækn-
isins, sem hér er, að senda amtinu beinlínis skýrsl-
ur um það þegar pestin kemr þar fyrir, auk þess
að gefa það iögreglustjóranum til kynna eftir tilsk.
5. Jan. 1866, 4. gr.
Reykjavík, 3. dag Júním. 1873.
Bergur Thorberg.
SRÝRSLA
um sýslufund í Itangárvallasýslu.
Ár 1873 16. dag Maí, var haldinn sýslufundr
að Stórólfshvoli, sem varaþingmaðr sýslunnar
Sighv. Árnason á Eyvindarholti hafði kvatt tlí.
Fundarst. S. Á. kvaddi sér til aðstoðarmeð samþ.
fundarins sira ísl. Gíslason og sira Hannes Ste-
phensen. Á fundinum mættu 2—3 kjörnirmenn
úr hverjum hrepp sýslunnar, 25 alls, auk ýmsra
fleira sem sóttu fundinn fríviljuglega.
Kom þá til umræðu:
1. Málið um brúargjörð á Pjórsá og 0lfusá;
nefndarmenn í því máli voru allir mættir, nema
Skúli prestr Gíslason sem var forfallaðr. Af því
ekkert svar var komið nefndinni til handa upp á
bréf það er hún hafði ritað stiftamtinu 19. Sept.
næstl. viðvíkjandi því, að fá skoðunarmann frá
stjórninni, varð engin ákvörðun tekin um það mál
önnur en sú, að rita nú þegar til brúarnefndar-
innar i Árnessýslu áskorun þess efnis, að ef svo
færi, sem búast mætti við, að þau samskot sem
gjörð voru á fundinum 21. Maf f. á. nægði ekki
til lúkningar þeim kostnaði sem flýtr af skoðunar-
gjörðinni, þá verði þeirviðhúnir með samskot, okkur
til styrktar til lúkningar þessum kostnaði að svo
miklu leyti sem hið opinbera tekr hann ekkiaðsér.
2. Um verzlun og verzlunarsamtök. Fyrst
voru lesnir upp listar yfir tillög manna í ýmsum
sveitum sýslunnar til innlends verzlunarfélags, og
voru tillögin samkvæmt þessum listnm nú orðin
alls 3,535 rd.; en úr sumum sveitum sýslunnar
urðu ekki tillögin enn gjörð uppská, en verða það
innan skamms, og eins haldið áfram í þeim hrepp-
nm þar sem þau eru byrjuð. J>ví næst kom fund-
inum saman um, að kjósa 5 manna nefnd til fram-
kvæmdar í máli þessu og urðu þessir fyrir kosn-
ingu: Sigh. Árnason með 27 atkv., sira Isl. Gísla-
son með 23 atkv., sira H. Stephensen með 22
atkv., sira Skúli með 18 atkv. og Erlendr Eyólfs-
son með 17 atkv. Um þetta mál var skrifað til
Árnesinga.
3. Málið um að takmarka sem mest kaupá
áfengum drykkjum, fyrst um sinn yfirstandandi
ár; var máli þessu vel tekið, og upplýstist, að líf-