Íslendingur - 12.09.1862, Qupperneq 2
66
|>ykir fjelaginu góð veiði íhoilum, því hann dregurmarg-
an mann út í höllina. Hver ferð fyrir mig þangað kostar
að minnsta kosti 2 rd. 24 sk.
Dýragarðurinu mikli er ekki síður merkilegur, þar
eru samankomin öll dýr, sem fjelag dýravísindanna hefur
getað fest hönd á. þar eru Ijón, jagúarar, leopardar og
tígrar, og er allmerkilegt að sjá hið geigvæna augnaráð þess-
ara ferfættu ræningja í búrunum, og þó einkum hina
hamsiausu grimmd þeirra, þegar þau fá fóður sitt, því
þau slíta það og rífa í sundur með þeirri græðgi, sem
jeghafði aldrei gjört mjerhugmynd um. þar eru giraffar,
fljóthestar’ í tilbúnum stöðuvötnum, fílar, kamelar, nas-
hyrningar, bisonuxar1 2 og bísonkýr. Allar tegundir af
hjörtum, nema fslenzk hreindýr, úlfar, hyenur, bifrar,
otrar, og geysimikill fjöldi af öpum. Jeg hef sjeð þá rífa
húur af mönnum og slör af kvennmönnum, og hamast
við að rífa og slíta það í sundur, og er það allfróðleg
sjón, en ekkert er eins merkilegt, eins og áflog þeirra í
illu og grátur þeirra, sem bíða lægra hlut í glímunum.
f>að er svo kátiegt að menn geta hlegið sig þreytta á því.
f>ar er og selur í söltuin sjó, og er byggður hólmi úr
fjörugrjóti úti í tjörninni fyrir hann að skríða upp á þeg-
ar hann vill, og lifandi fiskum hleypt i tjörnina til fæðu
handa honum. þar eru og ísbirnir í sjó, og hafa þeir
marmarajaka til að skriða upp á, þegar þeir vilja, þar er
og geisimikill fjöldi af höggormum, frá risaorminum nið-
ur að smásnákum. þekking Englendinga á eðli þessara
dýra er nákvæmari en við verður búizt, og nákvæmni
þeirra í hirðingu dýranna aðdáanleg. Á hverjum einasta
degi ár út Og ár inn, er hjer samán kominn grúi af fólki.
Kostar aðgangurinn 3 mörk hvern dag, nema á mánu-
dögum, þá helmingi minna. Jeg hef verið þar alls einu
sinni, og hafði mikið gaman af. Konan mín varð svo
fræg að ríða þar spölkorn á fíl.
St. Pálskirkja er stærst allra kirkna á Englandi. Húiy
er ekki allgömul, eins og hún lítur nú út. Ilún brann í
eldsvoða miklum 1666, þá brunnu 13,200 hús í London
og 87 sóknarkirkjur. Árið 1675 byrjaði nefnd manna að
útvega verkamenn til að byggja hana að nýju, og var
fyrsti steinninn lagður sama ár. Hún er í lögun eins og
rómverskur kross, með súlugöngum og loptsvölum að ut-
an, og að innan með þjettsettum marmarasúlum með
Korintuborgarlagi. Allt gólfið er lagt marmara og mosaik-
myndað; undir gólfinu eru geysimiklar jarðbyggingar og
hvelfingar. Neðan frá þeim og upp í turnhvelfinguna, er
hæð kirkjunnar 375 fét. Enginn hefur þá æru, að vera
jarðaður niðri í þessum undirbyggingum kirkjunnar (þær
eru ætlaðar til legstaða merkustu manna) nema hertoginn
af Wellington og Nelson. Hvíla leyfar þeirra þar i svört-
um marmarakistum, og eru þær meira en tvær manns-
hæðir. Gluggarnir á kirkjunni eru 12 feta breiðir og 24
feta háir. Auk þesS ljóss, sem kemur inn um gluggana,
kemur og annar Ijósstraumur ofan úr turnhvelfmgunni, og
er þar byggð lukt fyrir ljósveitinguna; liún vegur ekki
nema rúm 700 tons3, og steypir dagsljósinu niður um
alla kirkjuna, og brotnar það svo sterkl á marmaragólfinu,
að það kastast aptur upp í hvelfinguna, og slær svo glæ-
um bjarma á málverkin upp í hvelfingunni, að þau sjást
í fullkomnasta ljósi, og eru þó 356 fet þangað upp af
kirkjugólfinu. En myndir þessar eru aílar í risastærð,
málaðar alfresco4, og sýna ýmsa viðburði úr ritningunni.
1) J>. e. Iiykrar. 2) p. e. vísundar; sbr. ísj. 2. ár, bls. 173, neV
anmálsgrein. 3) 1 ensk T o n aí> rígt ar-- 9032 pund diinsk, eíiur
127 lp; ætti þií luktin e%a Ijiísberi þossi allur at> vega 4445 skp.
4) al fresko, {>• e. litmyndir dregnar upp á nýtt kalk, áíiur þat)
þornar á Yeggjum, er þaþ einungis tíþkab á húsum innan og utan.
Niðri í kirkjunni eru höggnar marmaramyndir af hinum
merkustu mönnum Englendinga. þar eru hinir mestu
hershöfðingjar þeirra, eins og Nelson, sem er ógæfulegur
á svipinn, að sjá, og hertoginn of Wellington, þar er og
Napier', og stendur ekki annað um hann í grafskriptinni,
en að hann hafi fæðst og dáið og verið virjustus2. J>ar
er og fögur mynd af John Howard, hinum mikla mann-
vin, sem ferðaðist um alla norður- og vesturálfu til að
endurbæta kjör fanga og spítalalima. Ilann heldur á lykli
í hægri hendinni, og í vinstri hendinni hefur hann perga-
mentsvafning, og stendur skrifað á hann, »frumvarp til
endurbóta á dýfiissum og spítölum«. Hann er látinn troða
hlekki fjötraðra manna undir fóíum sjer. Neðan undir
styttunni er hann sýndur þar sem hann er að færa föng-
um mat og hlý klæði. Allar þessar myndir eru í fullri
stærð. Auk þessara mynda er þar og grúi af öðrum
myndum, sem jeg ekki man að nefna nú sem stendur.
Jeg verð að segja yður dálítið af ferð minni til Ox-
ford. Jeg fór þangað í fyrra dag og korh til Cornbe, há-
skólaprentarans, sem ællar að prenta nýja testamentið ís-
lenzka. Hann tók mjer einkar vel, og þótti jeg vera all-
gott expl.3 af íslendingi. Ilann er maður aldraður, yfir
sextugt og grár á hár og skegg, sem hann lætur vaxa
villt og nær niður á bringu; er hann all-patriarkslegur
og hinn mesti gestrisnismaður. Hann sýndi mjer prent-
smiðjil sína. Hún érítvennu lagi; er annars vegar prent-
að að eins biflíur og nýjatestamenti, en hins vegar að eins
grísk og rómversk rit. Byggingar hverrar prentstofu fyrir
sig (hinar grískrómversku og bifl.) eru 300 feta langar.
Gengur öll prentun með gufumagni. Býr hann (prentar-
inn) sjálfur til pappír og stýla, og allt sem heiti hefur,
og heyrir prentun til. Um vikuna prentar hann 1000 rís
jafnaðarlega; og ef allar maskinur eru i gangi, prentar
hann 36,923 exx. af biflíunni á viku, 6,154 exx. á dag,
615 á tíma og 10'/2 á hverri mínútu. Af biflíum með
demantsletri, getur hann prentað á viku 120,000 exx.
20,000 á dag 2000 á einum tíma eða 33 á mínútu hverri.
Að sama skapi prentar hann og af rómverskum og grísk-
um ritum. Ilann prentar ekkert annað en þetta tvent.
j>egar herra Combe hafði gefið mjer þessa statistík yfir
prentverk sitt, sendi hann skrifstofustjóra sinn með mjer,
til að sýna mjer allt, er merkilegt væri að sjá í Oxford.
|>að merkasta er háskólinn. Ilann er samsafn af mörg-
um byggingum. f>að eru 25 Colleges eða háskólabygg-
ingar, sem kallaðar eru einu nafni háskólinn i Oxford.
Eru þessar byggingar flestallar æfagamlar og í gothiskum
byggingastíl. Veggirnir eru úr mejrum sandsteini, sem
er þannig á sig kominn, að hann stendur um aldur og
æfi, ef hann horfir rjett við í veggnum, en lirynur ella á
skömmum tíma, og hafa menn fyrst nýlega uppgötvað
þennan leyndardóm við stein þennan. Sömu steintegund
lief jeg sjeð á Islandi í Jósefsdal á leiðinni austuráEyr-
arbakka. Ailar þessar byggingar standa mjög nærri hver
annari; sumar eru endurbættar á ýmsum stöðum, en sum-
ar standa í hinni upprunalegu fyrnsku óbreyttar. Bak við
þessar byggingareru stórir garðar alsettir trjám umhverfis,
sem mynda geysilangar Alleer; hinlengsta er ensk míla4.
Eru trjen svo fjarska há, að jeg hef engin trje sjeð hjer
til líka við þau á hæð. Á sumum eru greinarnar svo
langar, að þær eru svignaðar undir limþunganum og lauf-
inu niður að jörðu, svo að menn verða að smjúga með
1) Vjer vitnm eigl hver sá Napier er, sem hjer er nefndur. Pab
hafa verií) fleiri nafnfrægir menn á Englandi fyr og sííiar ineb því
iiafiii. 2) vir justus, þ. e. rjettlátur mabur. 3) Exemplar, þ.
e. hjer um bil sama sem sýnishorn. 4) 1 ensk míla er hjer um fjórþ-
ungnr úr danskri mílu.