Íslendingur - 12.09.1862, Page 8
72
1. Að gufuskipið Arcturus, eður hvert annað skip, sem
kemur í þess stað, sem póstskip, skyldist til i farm-
skránni (Certepartiet) frá 1. okt. 1863 til 1. júni
1869, ásamt moð útgjörðarmanni, skiplierra og stýri-
manni, að flytja enga áfenga drykki til hafna eða
verzlunarstaða suðurlands, sem varða skal sömu út-
látum og hegningu, ef út af er brugðið, eins og
kaupmenn hafa lagt á sjálfa sig.
2. Að frá 1. jan. 1864 til 1. júní 1869 sje sett í hvert
íslenzkt leiðarbrjef sú ákvörðun, að enginn á skipi
megi selja eða veita eða í land flytja, eða nokkur
annar í sunnlendingafjórðungi, neins konar áfenga
drykki, að viðlögðum áðurgreindum sektum.
3. Að ekkert nýtt leyfisbrjef fyrir því að mega verzla,
verði út geöð, nema því að eins, að hlutaðeigendur
gangist undir nefnt samkomulag kaupmanna.
4. Að gestgjöfum og veitingamönnum í Sunnlendinga-
fjórðungi frá 1. júní 1864 til 1. júní 1869 verði
bannað, að selja, gefa eða veita áfenga drykki, að
við lögðum sömu fjárútlátum sem áður er sagt.
5. Að lifsalanum verði bannað, vilji hann ekki ganga í
fjelag þetta, að selja Spiritus vini, Alcohol eða Ma-
vebitter, öðruvísi en í smáskömtum, og eptir læknis-
ráði sem dfeðal, eða að tilhlutan yfirvalds, til ein-
hverrar sjerlegrar brúkunar í blöndunarfræðislegu-
eða handiðnalegu tilliti, og það því að eins, að það
sje áður gjört ódrekkandí.
6. Að yfirvöldum sje gefið vald til að veita kaupmönn-
um skjóta og örugga aðstoð til framkvæmda áður-
nefndra ákvarðana.
7. Að sumarið 1867 sje kosin nefnd manna af embætt-
ismönnum og kaupmönnum, til þess eptir þá orðinni
reynd, að hugleiða hvað gjöra skuli i þessu efni
eptir 1. júní 1869.
8. Að hinar ofan nefndu ákvarðanir einnig nái til hinna
fjórðunga landsins, jafnframt og kaupmenn, er þar
verzla, hafa í einu hljóði gengið í þetta fjelago.
J>etta er nú aðalefnið í greinum þeim, er kaupmenn
hjer syðra hafa orðið ásáttir um, og væri óskandi að allir
sem hlut eiga hjer að máli, utan lands og innan, vildu
leggjast á eitt og gjöra allt sitt til að útrýma drykkju-
skapnum hjer í landi.
ITIannalát. 8. f. m. dó hjer í Ileykjavík mað.
Málfríður Steenbach fædd 1784, dóttir Jóns sýslumanns
Sveinssonar (í Syðri-Múlasýslu) Sölvasonar lögmanns. Uún
var hálfsystir Kjartans ísfjörðs stórkaupmanns, og alsystir
Friðriks Svendsens, Agents; voru þeir bræður báðir nafn-
kenndir menn um sína daga. Hún var tvígipt, og giptist
fyrst Guðmundi faktor Ögmundssyni á Eyrarbakka, og áttu
þau hjón 8 börn; af þeim munu að eins þrjú hafa náð
fullorðins árum: Jón Ögmundssen fyrrum læknir á Yest-
fjörðum, Charlotta dáin ógipt í Kaupmannahöfn, og Guð-
rún ekkja Lambertsens heitins faktors á Eyrarbakka og
móðir Guðmundar kaupmanns Lambertsens í Reykja-
vík. Síðan átti hún 1828kaupmann Niels Steenbach, sem
lengi var á Dýrafirði, varð þeim ekki barna auðið, en hann
lifir eptir ellimóður hjer í Reykjavík.
— 3 þ. m. andaðist hjer á höfninni kaupmaður C. F.
Glad frá Kjöge, er um nokkur undanfarin ár hafði verið
lausakaupmaður á Vestfjörðum. Skip hans var nú komið
heim á leið þaðan, en hann tók sótt i hafi, leiluðu skip-
verjar þá hingað til hafnar, og náðu hjer höfn kveldi fyr
en hann andaðist.
í því vjer endum grein þessa barst oss sú fregn, að
stúdent Jón Árnason dbrm. á Leyrá i Borgarfirði, sem
opt hefur þar verið settur yfir sýslu, hafi andast eptir
stutta legu næstliðinn miðvikudag 3. þ. m.
Prestvíg-ðir 31. ágúst Tcandd. theol. Brandur
Tómásson að Einholti í Skaptafellssýslu; Steinn Steinsen
aðstoðarprestur til sjera Haldórs prófasts Jónssonar á
Hofi í Vopnafirði; Markús Gíslason aðstoðarprestur til
sjera Einars prófasts Einarsens í Stafholti; Guðmundur
Gísli Sigurðsson aðstoðarprestur til föður síns, sjera Sig-
urðar Gíslasonar á Stað í Steingrímsfirði.
— Tíðarfar, aflabrögð. Veðurátt er allt af í
kaldara lagi. Seinustu daga ágústmán. var sunnan- og
útsunnanátt, og á höfuðdaginn sjálfan (29. ágúst) ofsa-
veður af suðri, þó varð eigi skaði af, svo vjer höfum
frjett. Nóttina milli 9.—10. þ. m. var ákaft næturfrost
niður að sjó, og snjór fjell á fjöll um þá daga; nú er
vindur aptur genginn til suðurs með úrfelli. Allir kvarta
um megnan grasbrest, en nýting hefur orðið góð, svo
langt sem heyrzt hefur. Sjáfarafli er mjög Iítill og fæstir
gefa sig við honum um þessar mundir. J>ilskip, sem
til fiskjar hafa gengið hjer syðra, hafa aflað í betra lagi.
Vjer vitum eigi glöggt um upphæð afians enn þá, en
vonum að geta nákvæmlega skýrt frá því síðar; en það
vitum vjer með sanni, að Jón hreppstjóri Jónsson á
Hraunprýði við Ilafnarfjörð, hefur tvívegis í sumar farið
norður fyrir Horn, og fjekk hann nú í hinni síðari ferð
hálft 7. þúsund af fiski, auk heilagfiskis, skötu og annars
fiskifangs, sem ekki er talið. Ilefur margur maður í ná-
grenni hans haft, í sumar sem optar, talsvert gagn af
dugnaði hans og heppni.
Vjer höfum lítið sem ekkert frjett nýlega úr öðrum
landsfjórðungum, því opt hefur verið vel um póstgöngur
þaðan, en aldrei eins og nú; en — það er án efa eðli-
leg kyrrð og eðlilegur dauði, sem gengur á undan nýrri
upprisu og nýju lifi póstgöngumálsins hjer á landi.
Uppboðsauglýsing.
Mánudaginn þann 29. þ. m., kl. 11 f. m., verða við
opinbert uppboðsþing, sem haldið verður í þingstofu bæj-
arins, seldar ýmislegar bækur, alit að 300 númer, tilheyr-
andi dánarbút amtmanns sál. P. Melsteðs.
Söluskilmálar verða, áður uppboðið byrjar, auglýstir
á uppboðstaðnum.
Skrifstofu bæjarfógeta í Reykjavík, ll.sept. 18G2.
A. Thcrsteinson.
Bseknr: Landafræði eplir skólakennara II. K.
Friðriksson, verð 1 rd. Svar upp á spurningar Ilúss og
bústjórnarfjelagsins, á 8 sk. Sömul. bækur þær, sem Ilr.
bókbindari P. Sveinsson i K.höfn hefur látið prenta, samt
ýmislegar fieiri bækur, eru til sölu á skrifstofu »íslend-
ings».
— Leiðrjetting: í næsta blaði íslendings hjer á
undan, bls. 64, þar sem talin eru ritgjörðarefni presta-
skólamanna í greininni um siðafræði, er góðfús lesari beð-
inn að lesa í málið og segja siðafrœði, í stað þess að
prentað stendur orðið trúarfræði, sem á þeim stað er
rangt.
Ábyrgðarmaður: Brnidift Sveinsson.
Prentatur í preutsmiíijmiui í Ueykjavík 1862. Einar l>6rb*r»on.