Íslendingur - 09.02.1863, Blaðsíða 8
144
Útgjöld. Ea- Sk-
I. Útgjöld í þarfir bœjarins sjálfs: rd. sk.
l.Til nœlurvörzlu 243 i>
2. Laun Ijósmœðra 53 32
3. Einkunnarklæðnaður lögregluþjóna 10 »
4. Vegabœtur, snjómokstur m. m. . 485 58
5. Vatnsból bœjarins 108 88
6. Fyrir gæzlu á sigurverkinn . . 20 »
7.Til forsöngvara í dómkirkjunni . 14 80
8. Styrkurtil fyrverandi lögregluþjóns
Hendrichsens, fyrir hluta af árinu
1857, fyrir 1858, 1«59 og 1860 150 »
9. Óviss útgjöld til aðgjörða og við-
halds á áhöldum, fyrir keyptan
við, útgjöld til barnaskólahúss-
ins m. m...................... 127 42 1213 13
II. Til fátcekrasjóðsins III. Fjórða ársborgun, fyrir 1859, upp í 902 9
200 rd. lán, sem tekið var 1856 af fátœkrasjóði 50 »
IV. Vextir af láni frá Thorkilliisjóði • • 16 »
V. Gjald til jafnaðarsjóðs Suðuramtsins • • 40 »
VI. Alþingisgjald af fasteign bœjarins . VII. Eþtirstöðvar við áslok 1860: • 6 17
1. a, ógoldin bœjargjöld árin 1855—
1860 .... 125rd. 56sk.
b, ógoldin önnur gjöld 3 - 37 - 128 93
2. í peningum hjá gjaldkera . . . 475 51 604 48
Til samans 2831 86
(Framhald, næsti árs reikningur).
Kafli úr brjefi frá Ueylcjavik (febr. 1863).
Nú er þar næst, að segja þjer eitthvað af »bókara-
menntum» bjeðan úr höfuðstaðnum. f>ú hefur líklega
heyrt þess getið, að ný búið er að prenta registur, eða
hvað þeir kalla það, yfir bókasafn latínuskólans; bókasafn
þetta hefur um tíma átt miklu láni að fagna, sem vel er,
og aukizt og margfaldast og uppfyllt hyllurnar, svo að þetta
registur yfir það er allstórbók, víst einar 13 eða láarkir.
J>ú færð sjálfsagt að sjá það, þegar sólin hækkar betur á
lopti og farandi verður milli byggða. Önnur bókin, sem
ný komin er úr prentsmiðjunni er shjringar þeirra dr. P.
Pjeturssonar og Sigurðar Melsteðs. Jeg man hvað þú
sagðir um fyrra heptið af skýríngum þessum, og því er
jeg að hugsa, að það muni liækka á þjer brúnin, er þú
getur nú bráðum átt von á að fá þetta nýa rit eptir hina
góðu höfunda. En biddu nú við; það er ekki allt búið
enn! Nú koma fyrst frjettirnar af »bókaramenntunum».
Og því þá það? Jú! af því að nú er verið að prenta hjer
ekki eina heldnr tvær spánýar bœkur, nefnilega pýzlca
málfræði eptir Ilaldór Friðriksson og enslca málfrceði eptir
Odd Gíslason. Jeg þarf nanmast að geta þess, að þess-
ar bœkur eru báðar á íslenzku og íslendingum ætlaðar.
Jeg efast eigi um að hvorttveggja bókin verði laglega af
hendi leyst. J>ær verða sjálfsagt litlar og ódýrar, til þess
þær geti breiðst sem bezt út um landið. Og nú er svo
komið, að mönnum er hjer orðin öll þörf á að kunna
þessi tungumál, þýzku og enslui, og einkum enskuna; því
að Engiendingar og Skotar koma hingað áriega, eins og
þú veizt, og ferðast hjer um allt land, og eiga margvísleg
viðskipti við oss. En hvílíkan fróðleik og hvílíkt gagn
getum vjer eigi haft af að komast í kunningskap við
þessar útlendu stórþjóðir? Og til þess að geta það, er
nauðsynlegt að læra tungur þeirra og geta talað þær. J>að
sjer enginn nú lifandi manna fyrir, hvaða vegir geta opn-
ast fyrir ýmsa menn af löndum okkar, ef þeir komast í
kunningskap við þessar útlendu þjóðir, eða hvílík áhrif
það getur haft á hag alls landsins. En hitt ætti hvert
mannsbarn á meðal vor að vita, að vjer erum næsta fá-
fróðir orðnir Islendingar, þegar vjer berum oss hlutdrœgn-
islaust saman við aðrar þjóðir. Ef vjer viljum nokkuð á-
fram hljótum vjer að kynnast þeim betur en verið hefur
um langan tíma, og þá er fyrst að læra tungumál þeirra;
og svo koma dagar og svo koma ráð. X.
Veðrátta og aflabrögði Veðuráttin hefur verið held-
ur stirð síðan með jólaföstu og fram á þennadag, storma-
söm nokkuð og stundum með talsverðri fannkomu, enda
eru fremur sögð harðindi úr sveitum; stundum með blot-
um, en optast hefur frostið verið lítið. Aðalvindstaðan
hefur optast verið af útsuðri eða landnorðri. Hrosspen-
ingur er almennt sagður í magrasta lagi um þetta leyti,
og margir ætla að fóðurekla muni verða almenn ef út-
mánuðirnir verða eigi því betri.
Um helgina sem leið (1. febr.) fóru mörg skip hjeð-
an af Inn-nesjum suður í Garðssjó, og eru flest aptur
komin með 30—70 fiska hlut. Segja menn þarallmikinn
fisk fyrir, eptirlegufisk siðan í haust, og mundi nú miklu
betur hafa aflazt, ef föllin hefðu eigi spillt; en um stór-
strauma, eins og nú er, eru föllin ákaflega stríð þarsyðra,
eins og gefur að skilja við eitt af útnesjum landsins.
Hinn setti amtmaður í vesturumdœminu Oogi Thor-
arensen, hefur sent ábyrðarmanni Islendings grein, sem
á að vera leiðrjetting á því, sem stóð í 3. árs 13. nr.
blaðs þessa »um póstgöngur og blaðasendingar með póst-
um« og hefur herra amtmaðurinn óskað þess, að greinin
yrði eptir prentfrehislögunurn, tekið inn í blaðið.
Með því nú ýmislegt er í þessari grein amtmannsins,
sem ekkert kemur efni málsins við, og getur því ekki
heitið leiðrjetting í laganna skilningi, eins og herra amt-
manninum er engin vorkun á að vita, get jeg ekki álitið
mig skyldan til, að taka hana uppí blaðið, nema því að
eins, að amtmaðurinn fyrst vilji annast um, að hún verði
svo úr garði gjörð, sem lögin áskilja. Jeg vona að herra
amtmaðurinn taki þvi fremur þessa undanfærslu mína gilda,
sem jeg með engu móti fæ sjeð, að það sem ofaukið er
í grein hans, gæti á nokkurn hátt orðið honum til með-
mælingar, lofs eður dýrðar þó það yrði prentað.
Benidikt Sveinsson.
Yegna þess aþ jeg nú hef útsnln og reikninga bl. „ísl.“ á hendi,
bit) jeg hjer met) alla útsóiumenn og kantendur tjeþs blatls, sem enn
þá ekki hafa borgaí) at) nokkru etsa óllu leyti 1. og 2. árg. bl., atl
gjóra þai) nú sem allra fyrst, er fertdr falla, þar blaþi?) þarfnast mjög
svo fyrir þau (i — 800 rd., sem þaí) á þannig útUtandandi.
Enn fremur eru mín vinsamleg tilmæli tii allra dtsfdumanna aþ
3. árg. ,ísl.“, aí) þeir vilji gjf>ra svo vel og borga tjeban árgang fyrir
dtgöngu næstk. maímán. Blót) sem Uunna aþ hafa tapazt og kanp-
endurnir þess vegna ekki hafa fengií) allan árg., skulu engu a?) sííur
fá npp bœtt þat), sem vanta kann í árg. þútt þeir bafl borgaí) hann,
einasta er, ab láta útsTdnmenn vita hvalfca nr. þab eru, sem vanta.
Og af því þat) getur valdiís nreglu, ef borgnn fyrir blaþií) er send
til annara en þess, sem hefur reikninga blatisins á hendi, og getur vel
valdit) því, at) relkningthaldarinn — í milli tíb — sendi reikninga og
krefjist borgunar af þeim miinnum. sem hafa borgat) bl. til einhvers
annars, en til ab koma í veg fyrir þat), eru allir kaupendur og dtsólu-
menu „Islendings" betinir, aþ greita andvirþi blaíisins og horgun fyrir
auglýsingar í blahinu, einungis til þess manns, er hefur reikninga þess
á hendi, sem nú or
Guðbrandur Guðbrandsson í Reykjavík.
Abyrgðarmaður: Benidikt Sveinsson.
Prentabur í prentsmiiijuni)i í Reykjavík 1863. Einar púrbarson.