Íslendingur - 02.05.1865, Síða 8
88
I
brjef það, sem komið er fyrir almennings sjónir, sje of
háfleygt fyrir yður, stefni að því, að reisa það þinghús
á þingvelli, þar sem aiþingi skyldi framvegis haldið og
svo framvegis. (Niðurl. síðar).
Til
jómfrú SIGRÍÐAR PJETURSDÓTTUR SÍVERTSENS
í Reykjavík, 16. marz 1864.
1.
Fremur venju, barnið munarblíða,
brosið leikur nú á vörum þér;
seg mjer, Ijúfa, hvað á það að þýða?
þetta sjálfsagt tyllidagur er.
Já nú skil jeg skart og nýja kjólinn,
skæran gleðisvip og jólabrag:
Yngismeyjar svásleg himinsólin
signar einmitt nýjan burðardag.
2.
Gleð þig barn, því enn þá æskustundin
unaðsdraumi svæfir hverja þraut.
Gleð þig barn, því Ijett er enn þá lundin,
liljum tómum enn er stráð þín braut.
Enn við hlið þjer englar bjartir standa,
æskuverðir, sem þinn styðja fót;
vert því örugg! enn má hvergi granda
æsku þinni heimsins svell og grjót.
3.
Guð þjer blessi gleðistundu þína,
góða barn, og hvert þitt æflstig,
náðargeisla nýja láli sína
nýjan ársdag leiptra kringum þig.
Blómadrottning allra ýngissnóta
ertu og vertu, fagra Sigga mín,
guð þig láti gæfu alla hljóta,
góð og mörg þá verða árin þín I
Matthias Jochumsson, Gunnar Gunnarsson og Jónas
Björnsson
óskum okkar elskulegu vinstúlku til heilla og hamingju
á þessum liennar afmælisdegi með þessu litla kvæði.
— Póstskipið Arcturus kom hingað til Reykjavíkur
22. f. m.
— Af nafnkendum mönnum ytra, sem lesendur vorir
helzt þekkja, hafa dáið í vetur konferenzráð Rafn, pro-
fessor R. Keyser i Kristjaníu, og stórkaupmennirnir P.
C. Knudtzon og Carl Fr. Siemsen.
— Abraham Líncoln forseti Bandafylkjanna (Norður-
fylkjanna) var kosinn aptur til 4 ára.
GJAFIR TIL þlNGVALLAIIUSSINS.
1. Sýslumaður J. {>. Thoroddsen á Leirá
lofar 50 rd., sem sjeu til, þegar farið er að
byggja húsið...................... . . .
2. Bóndi Guðmundur Guðmundsson á Leirár-
görðum.............................
3. Einar bóndi Gunnlaugsson á Læk .
4. Sigurður bóndi Böðvarsson á Melkoti
5. Ilreppstjóri G. Isaksson á Skarðskoti
6. Jón bóndi þorvaldsson á Skarði . .
7. Ilinrik bóndi Gíslason á Steinsholti
8. Magnús bóndi Ólafsson á Efraskarði
9. Baldór yngismaður Jónsson á Leirárgörðn
10. Guðmundur prestur Bjarnason á Melum
11. Sniðkari þórður Sigurðsson á Fiskilæk
12. Bóndi Jörundur þorsteinsson á Melaleiti
13. Jón bóndi Gíslason á Súlunesi . . .
14. Hallgrímur bóndi Bakkmann á Narfastöðum
15. Sigurður bóndi Jónsson á Lambhaga
16. Jón bóndi Haldórsson á Leirárgörðum
17. Ásgeir silfursmiður Möller á Geldingaá
18. Herra P. F. Sivertsen bóndi í Ilöfn
19. Ólafur bóndi Ólafsson á Súlunesi .
m
rd. sk.
50 »
2 .
1 .
1 »
1 •
1 »
1 »
1 »
48
2
1
1
1
1
1
1
1
2
48
Melnm ð. april 1865.
G. Bjarnason.
er 70 «
AUGLÝSINGAR.
— þar eð þessi 4. árg. íslendings er því nær al-
prentaður og sendur kaupöndunum, þa eru það okkar
vinsamleg tilmæli, að þeir, sem eiga enn óborgaðan
þenna árg., greiði andvirði hans við fyrsta tækifæri til
hlutaðeiganda.
Útgefendurnir.
Af þvi enn þá eru margir á íslandi og í Iíaup-
mannahöfn, sem enn þá eiga ógoldið andvirði fyrir 1.
2.og3.árg. íslendings, þá eru það mín vinsamleg tilmæli
til þeirra, að þeir greiði þessa peninga til undirskrifaðs,
fyrir útgöngu septembermánaðar þ. árs, því að öðrum
kosti neyðast hlutaðeigendur til, að krefjast þessa á
annan hátt.
Keykjavík, 29. dag aprílmánatiar 1865.
E. Þórðarson.
Útgefendur og ábyrgðarmenn: Benidikt Sveinsson, Jón Pjetursson, Jón Þórðarson Thoroddsen.
PreataW í prentsmflbju íslands, 1865. Einar jiórtarsou.