Heilbrigðistíðindi - 08.11.1870, Síða 1

Heilbrigðistíðindi - 08.11.1870, Síða 1
HEILBRIGÐIS-TÍÐINDI. Fyrsta ár. 5. 8. IVóvember. 2. KAFLI. Utn fœðuna og matvœli yfir höfuð. Það er gamalt orðtak, að «matur sje mannsins megin», og er hann orðskviða sannastur, því að enginn mun lengi hakla megni og orku, ef hann brestur fæðu. Menn hafa á síðari tímum líkt fæðunni við eldsneyti það, er gufuvjelar við þurfa, ef þær eiga að geta gengið, og má rneð sanni segja, að þetta eigi við góð rök að styðjast, því að eins og engin gufuvjel getur gengið, nema nægur og góður eldiviður sje undir gufu- katlinum, þannig getur og enginn vöðvi, hvorki á mönnum nje dýrum, dregið sig saman og sýnt verkun sína, nema hann fái allt af ný efni, er endurbæti það, sem slitnar við áreynsluna. Fæðan er þannig fyrir manninn og dýrin hið sama, sem elds- neytið er fyrir gufuvjelina, og eins og gufuvjelarketillinn aldrei hitnar til gagns af ónýtu eldsneyti, eins getur og vöðvakrapt- urinn heldur eigi endurbætzt, nema af góðri og kröptugri fæðu, eða að minnsta kosti slíkri fæðu, sem bætir vöðvanum upp efni þau, er ónýtzt og slitnað hafa við hreifingu þeirra. Menn kynnu nú auðveldlega að misskilja þessa setningu, ef jeg eigi skýrði hana betur, því margur kynni að hugsa sem svo, að hún benti á það, að menn þyrftu þá að eins að borða, er menn væru við verk eða á hreifingu, en þetta er þó eigi svo að skilja, því maðurinn getur eigi án fæðunnar verið, þó hann bvílist og sje aðgjörðalaus. Þetta gefur líka vel að skilja, þegar menn betur íhuga skapnað líkamans bæði á mönnum og dýrum, því að þá má sjá, að líkaminn er settur saman af margs háttar vöðvum, sem allt af verða að vera í hreifingu, svo lengi sem lífið varir, þótt maðurinn haldi alveg kyrru fyrir og sje öldungis verklaus.

x

Heilbrigðistíðindi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðistíðindi
https://timarit.is/publication/94

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.