Heilbrigðistíðindi - 08.11.1870, Blaðsíða 5

Heilbrigðistíðindi - 08.11.1870, Blaðsíða 5
37 hverri máltíð. Vjer íslendingar höfum lengi fengið orð fyrir það, hve miklar smjörætur vjer værum, og hafa sumir lagt oss það út til minnkunar, en menn gá eigi að því, að bæði erum vjer í köldu landi, þar sem andardráttarfæðan þarf að vera feitismikil, ef hún á að geta við haldið hitanum í líkamanum, enda borðum vjer mikið af hörðu feitarlausu flskmeti, sem eigi er auðið að halda sjer heitum við, nema það sje feiti blandið. Á hinn bóginn er smjör vort hvervetna mjög fltulítið, sökum þess að það hefur í sjer mikið tólgarefni (Stearin) og ostefni; líka er kjötið, einkum nautakjötið, langtum megra en erlendis, og allt þetta til samans lekið veldur því, að menn í raun og veru þurfa meira af smjöri hjer en í Danmörku eða hinum heitari löndunum, þar sem menn sjer til feitisdrvginda hafa mikið af feitu svínafleski, er vel má við hafa í stað smjörs og annarar feiti. Af öllu þessu, er nú var talið, efast jeg mikið um, að íslendingar borði miklu meira af smjöri, en þeir í raun og veru við þurfa, einkum þegar þeir eiga að vera við vinnu í köldu lopti, og hafa eigi annað til fæðis en þá fæðu, sem nú tíðkast, eins og t. a. m. hart fisksnarl, þorskahöfuð og annað því um líkt. Hefðu Islendingar, eins og aðrar þjóðir, gnægð af hveitibrauði, feitu fleski, og annari feitisfæðu, mundu þeir og borða langtum minna smjör, en nú gjöra þeir, en þar sem þeir opt við sjóinn verða að lifa á þurrum hörðum rúgmjöls- kökum og vatnsgrautum útálátslausum, þá er eigi að furða, þótt þeir verði þungir á smjörinu, einkum þegar hjer við bæt- ist, að margir þeirra fá aldrei ærlegan kjötbita, heldur opt hálfhorað kindakjöt, eða feitarlítið og seigt nautakjöt, er menn varla vildu leggja sjer til inunns erlendis. Um almennilega feitan ostbita er nú svo sem eigi að tala. Iljer með vil jeg þó engan veginn segja, að eigi kunni að gefast einstaka smjör- hákar, er borði langtum meira af smjöri en þeir við þurfa, en þetta er sannarlega fremur undantekning en almenn regla, og ætti því alls eigi að leggjast íslendingum tit lasts yflr höfuð, eins og stundum hefur verið gjört. Yflr höfuð ætla jeg andardráttarfæðu þá, er íslendingar

x

Heilbrigðistíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilbrigðistíðindi
https://timarit.is/publication/94

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.