Heilbrigðistíðindi - 08.11.1870, Blaðsíða 2

Heilbrigðistíðindi - 08.11.1870, Blaðsíða 2
34 Svo sem dæmi upp á þetta vil jeg nefna lijartað, sem allt frá fyrstu tilveru sinni í móðurlííi,allt að gröfinni eða hiriu hinnsta hjartaslagi mannsins allt af er á hreifingu. Hjartað er hinn merkilegasti vöðvi líkamans, sem aldrei hvílist, hvorki í vöku eða svefni. Það hefur mikið starf á hendi, þar sem það á að hrinda blóð- inu um allan líkamann og út í hinar yztu smáæðar hans; það er því engin undur, þótt efni þess slitni og þurfi sífelldrar endurnæringar við, ef það á eigi að örmagnast og gefa frá sjer. Að það þurfi endurnæringar við, sjest ljósast á hungruðum mönnum, því eptir sem hungrið sækir á þá, verður hjarta- slagið veikara, og má eigi við að senda blóðstrauminn út í hina yztu limi líkamans. Hungruðum manni verður því kalt, og einmitt af þessari orsök er það líka, að illa nærðum eða hungruðum manni hættir langtum fremur við að verða innkulsa og kala, en þeim, sem mettur er. En það er eigi einungis hjartavöðvinn, sem allt af verður að vera á hreifingu, þótt maðurinn haldi kyrru fyrir, og útlima- vöðvarnir hvílist, heldur eru það ótal aðrir smávöðvar, einkum þeir, er liggja í meltingarverkfærunum, þeir sem stýra andar- drættinum, og þeir, sem eru í ýmsum öðrum líffærum (Orga- ner), er allt af verða að vera að draga sig saman, þótt líkam- inn haldi kyrru fyrir, og því má svo að orði kveða, að öll hreifingarverkfæri líffæranna slitni allt af, og þurfi því allt af að endurnýjast. Auk þess, sem nú var sagt, má þess geta, að allir partar mannlegs líkama þurfi stöðugrar endurnýjunar við, því lífið er á sífelldri hreifingu; smáagnirnar (Moleculerne), sem mynda öll líffærin, geta eigi haldið sjer, nema um stuttan tíma; þær þurfa allt af að endurnýjast, meðan lífið varir, og hjer af kemur það, að maðurinn getur með engu móti án fæðu verið, og með því smáagnir líffæranna saman standa af ýmislegum smáögnum, verður fæðan og að vera af ýmsu tægi, ef heilsan á eigi að skerðast og líkaminn að veiklast. Fæða sú, sem á að við halda vöðvakraptinum, verður að hafa i sjer efni það, er menn kalla holdgjafa (Nitrogenium). Efni þetta er upprunalega lopttegund, og myndar mestan hluta

x

Heilbrigðistíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilbrigðistíðindi
https://timarit.is/publication/94

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.