Heilbrigðistíðindi - 01.05.1872, Blaðsíða 9
41
að framan um bráðafárið, og þann skaða, erþað gjörir landinu,
þá má mönnum blöskra, einkum þegar nú má sjá fram á, að
fjármissir sá, er bráðasóttin hefur gjört í vetur, er án efa hinn
langmesti, ermenn enn þá til vita, og að öllum líkindum hátfu
meiri en sá, er skýrslurnar frá 1870 — 71 frá skýra. Það eru
nú liðin mörg ár síðan jeg ritaði löndum mínum um það, að
kláðasýki sú, er hjer gengi, bæri ljósastan vott um það, að
fjeð væri að ganga úr sjer; fáir vildu þá trúa mjer, og svo mun
máske vera enn, en það er samt sem áður á reynslu byggð
sannfæring mín, að fjárstofn vor þurfi alvarlegra aðgjörða við,
ef hann eigi á að falla í strá, og með honum allur aðalbústofn
landsins; það er samt sem áður varia til neins að vera að rita
um þetta fram og aptur, þegar mönnum er eigi trúað, og aðal-
aðgjörðirnar við hinni auðveldustu fjársýkistegund vorri eru mest
fólgnar í sífelldu niðurskurðar-samkomulagi, sem að eins miðar
til þess, að hjálpa fjárveikjunum til að murka fjeð niður. Við-
víkjandi því, er dýralæknirinn skýrir frá um Þjóðólf, finn jeg
mjer skylt að geta þess, að þó Þjóðólfur hafi tekið og taki enn
þá mjög skaðvænlega og óheppilega í kláðamálið, hefur hann
þó jafnan með velvilja stutt að öllu því, er jeg hef ritað um
bráðafárið, eins og hann líka allt af hefur verið fús til að út-
breiða það, er jeg hef í ijósi lálið um ýmsar sóltir og veikjur
á mönnum. Ilann hefur og jafnan sneitt sig hjá, og jafnvel
verið andvígur, öllu homöopathisku káki, og megum vjer lækn-
ar kunna honum þakkir þar fyrir. J. II.
VARIÐ YKKCR, ÍSLENDINGAR; NÚ ERU IIÆTTULEGIR
TÍMAR.
Svona byrja hinir íslenzku »Politikere-> vanalega, þegar þeir
með einhverju þvaðri eru að krapsa yfir vitleysur sínar í póli-
tiskum málefnum, og ef þetta væri sagt í þeim skilningi, að
íslendinga. nú fremur öllu öðru ættu að vara sig á þeim stjórn-
arbótarflækjum, sem meiri hluti alþingis nú smfleytt 3 alþingi
hefur verið að trana fram við landsmenn og stjórnina, þá væri
mikið hæft í því, en í þeirri meiningu, sem það er tekið í blöð-
um vorum,er það alveg meiningarlaust orðaglamur.