Heilbrigðistíðindi - 01.06.1879, Blaðsíða 5
45
Sökum þessa þyrrings, er nú hefir varað um tíma,
hættir mörgum manni við kvefsumleitum, en eigi geta
menn þó kallað það neina verulega kvefsótt, heldur
að eins afleiðing af ryki því og sandfoki, sem sveimar
í andrúmsloptinu. Loptþyngdarmælirinn hefur, þegar
tillit er tekið til veðurlagsins, staðið heldur lágt um
tíma, án þess þó að því hafi fylgt nokkur viðvarandi
úrkoma. þ»að er meðal veðurfræðinga álitið sem regla,
að þegar loptþyngdarmælirinn standi mjög hátt, þá
vaxi dauðratalan í flestum löndum. þetta hefur ekki
getað stuðlað að dauðratölunni hjer í vor, því hann
hefur fremur staðið lágt, enda er það einkum hin um-
gangandi taksótt og lungnabólga, sem hefur orðið
flestum að fjörtjóni.
Xey/luvatnið og ástaiul þoss.
það er vert fyrir almenning að búa sig undir það,
að skortur kunni að verða á góðu neyzluvatni á ýms-
um stöðum, ef sumarið verður, eins og nú lítur út fyrir,
þurrt og úrkomulítið; en skortur á góðu neyzluvatni
getur hæglega orðið mikill heilsuhnekkir, ef eigi er
goldinn varhugi við í tíma. það er hörmulegt að lesa
um það í útlendum blöðum, hvílíkt óttalegt tjón úr-
komuleysið á Austurlöndum hefur valdið öllu lífi, og
þó vjer viljum vona, að slíkt tjón beri eigi að í voru
landi, þá er þó nauðsynlegt að hafa vakandi augu í
tíma, einkum þar, sem lítið er af lækjum og rennandi
vatni, eins og einmitt á sjer stað í Gullbringu- og
Kjósarsýslu, einkum í sjóplássunum, hvar vatnið sjald-
an er svo gott, sem það þarf að vera. Skortur á góðu
neyzluvatni er einhver hin hættulegasta sjúkdóms-orsök.
Menn þurfa nú í tíma að gæta vandlega að öllum
vatnsbólum, hreinsa brunnana og allar lindir, sem not-
andi eru, því að, ,.það er seint að byrgja brunninn,