Heilbrigðistíðindi - 01.06.1879, Síða 7

Heilbrigðistíðindi - 01.06.1879, Síða 7
47 undir þeirra hverja frá annari. þ>egar smádýr deyja í vatninu, gefa þau því opt rotið bragð, og eins og öll rotnun er fjarska skaðleg fyrir heilsuna, þannig getur og slíkt vatn orðið alveg óbrúkandi og í mesta máta skaðlegt fyrir heilsu manna og dýra. það er hald margra lærðra manna nú á dögum, að bæði kólera, blóðkreppusótt og íieiri illkynjaðir sjúkdómar komi upprunalega frá neyzluvatninu, og það einmitt frá grunn- æðunum. Dr. Friedrich Kiichenmeister skrifaði um þetta mjög merka bók fyrir 7 árum síðan, og hefur hún vakið eptirtekt margra lærðra lækna; hvers vegna menn á hinum síðustu tímum þykir mesta nauðsjm á að hafa nákvæmar gætur á neyzluvatninu, og hvernig það beri rjettilega að meðhöndla. Hjer á landi er mjög mikill skortur á nákvæmnu eptirliti í þessu máli, svo sem jeg hef optsinnis áður tekið fram, bæði í „Heilbrigðistíðindunum“ og „Sæmundi fróða“. J>að er gamallt orðtæki, að eigi sje ráð, nema í tíma sje tek- ið, og líka er það hin mesta dagsanna, er hinn róm- verski læknir Celsus kenndi oss fyrir nærfellt 2000 ár- urn síðan, að hægra sje að fyrirbyggja en lækna sjúk- dóma (satius est prœveniri quarn curare morbosj. Lítið citt um höð. Verði sumarið, eins og nú lítur út fyrir, heldur heitt og þurrt, þá ættu menn nú, þegar tómstundir eru, að ganga meira í laugar og böð, en almennt tíðkast á hinum.seinni tímum. Forfeður vorir voru eins og kunnugt er mjög hreinlátir með hörund sitt, en þetta hefur almennt farizt fyrir við þann eymdarskap, er vjer höfum komizt í á hinum seinni Öldum. Baðstofur eða gufuböð og volgar laugar voru almennt viðhafð- ar langt fram yhr Sturlungatíð, svo sem sjá má merki til á mörgum stöðum. Snorralaug stendur enn í Reykholti, og á Sturlureykjum 1

x

Heilbrigðistíðindi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðistíðindi
https://timarit.is/publication/94

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.