Alþýðublaðið - 06.02.1960, Blaðsíða 1
LOFIÐ REYNSLUNNI AÐ
KVEÐA UPP SINN DOM
segir forsætis-
ráSherra.
-♦
Sjáið hvað þær eru orðnar
gæfar, l’jarnar-álftirnar. |
Myndin var tekin í gær- |
dag. Góðhjartaður veg- |
farandi stingur brauðbita I
að þakklátum Reykvík- |
ing. Í
MMMWMWWWMWWWHM
Dollarinn 60
krónur eff...
Blaðið hefur hlerað
AÐ umsókn Stefáns A.
Pálssonar um eftir-
gjöf á sekt hafi verið
neitað og að gangskör
verði gerð að því að
hann og aðrir, sem
eiga ógreiddar sektir,
borgi þær.
EF ríkisstjórn Alþýðu-
flokksins hefði ekki fram-
fylgt stöðvunarstefnu
sinni allt s^ðastliðið ár, —
hefði gengislækkunin nú
orðið svo n^ikil, að dollar-
inn hefði fallið í 60 krónur.
Frá þessu skýrði Gylfi Þ.
Gíslason viðskiptamála-
ráðherra í hinni athyglis-
verðu ræðu sinni í neðri
deild alþingis í gær.
Hann kvað það vera viður-
kennt, að sú dýrtíðaralda, sem
Alþýðuflokksstjórnin stöðvaði,
Iiefði þokað gömlu vísitölunui
Framhald á 7. síðu.
vinstri stjórninni
GYLFI Þ. GÍSLASON malaði niður stjórnarand-
stöðu Framsóknar og kommúnista í efnahagsmálun-
um í ræðu í neðri deild alþingis í gær, þar sem hann
skýrði í íyrsta sinn opinberlega frá þeim tillögum,
sem þessir f'lokkar gerðu innan vin'stri stjórnarinnar.
Vakti ræða Gylfa mi'kla athygli, því hann sýndi fram
á og skjalfesti, hvernig afstaða framsóknarmainna og
kommúnista var þveröfug, þegar þeir sátu í stjórn við
það, sem hún er nú.
Gylfi Ias upp skjöl, sem
vinstri flokkarnir lögðu allir
fram í vinstri stjórninni vorið
1958, þar sem þeir gerðu hver
um sig grein fyrir tillögum sín-
um í efnahagsmálum. Vandinn,
sem þá blasti við, var mjög lík-
ur þeim erfiðleikum, sem nú er
við að glíma. Þá voru viðhcrf
flokkanna þannig:
FRAMSÓKN vildi almennt yf-
irfærslugjald á keyptan og
seldan gjaldeyri, sem var í
rauninni hrein gengislækkun.
Gjaldið hefði þurft að vera
90%, sem jafngilti 37%
gengislækkun. Sagði Gylfi,
að Framsókn hefði allan tím-
ann í stjórn Hermanns Jón-
assonar verið eindregið fylgj
andi gengislækkun, og hlyti
sú staðreynd að setja sérstak
an blæ á núverandi andstöðu
flokksins.
KOMMÚNISTAR vildu taka
100 milljóna lán í Sovétríkj-
unum, AIJKA innflutning á
hátollavörum, MINNKA stór
lega innflutning á fjárfest-
ingavörum og þar með fram
kvæmdir í landinu og minnka
stórlega útlán bankanna.
ALÞÝÐUFLOKKURINN vildi
setja eitt yfirfærslugjald fyr-
ir útflutninginn, þrjú gjöld á
innflutninginn og gera stór-
felldar hliðarráðstafanir með
aukningu fjölskyldubóta og
ellilífeyris og lækkun tekju-
skattsins.
Gylfi skýrði frá því, að til-
lögur Alþýðuflokksins um
hækkun fjölskyldubóta og elli-
lífeyris, svo og lækkun tekju-
skatts, hefði engan hljómgrunn
fundið hjá Framsóknarmönn-
um eða kommúnistum. Hins
vegar kvað hann það ánægju-
lega staðreynd, að núverandi
stjórnarflokkar liefðu frá upp-
hafi báðir talið það sjálfsagt að
Framhald á 7. síðu.
Gylfi Þ. Gíslason.