Alþýðublaðið - 06.02.1960, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 06.02.1960, Blaðsíða 3
Forsæffsráðberrann segir: i / / tekst vioreisnin Ólafur hvatti þjóðina til að kynna sér málið til hlítar. Fyrir ríkisstjórnina hefði málið verið vandalítið. Allar aðrar Ieiðir en sú, s^m valin hefur verið leiddu fram af glötunarbarmi. Jafnvel þá, sem eru andstæðir þessum ráðstöfunum, hvatti forsætisráð herra til að fresta mótaðgerð- um, unz reynslan hefði fengið að kveða upp sinn dóm. Ef nú- verandi úrræði mistakast, mun þjóðin eiga vð mikla örðugleika og langvarandi að etja. Forsætisráðherra benti á, að uppbótakerfið, sem nærðisí á greiðslu-halla og fengi ekki stað i'zt án hans, myndi leiða til at- vinnuleysis. Sú leið, sem nú væri lögð til, mundi forða Þjóð- inni frá atvinnuleysi. Eina leið- in væri að játa, hvert sannvirði krónunnar er, en reyna með hliðarráðstöfunum að leggja byrðar þær, sem væru óhjá- kvæmilegar, sem jafnast á þjóð ina. Ræða forsætisráðherra var mjög ýtarleg, og rakti hann hina alvarlegu erfiðleika, sem stafa laf greiðsluhallanum við útlönd, en undanfarið hefði ver ið neyðarástand í gjaldeyrismál unum. — Gjaldeyri'sskorturinn mundi hins vegar valda stór- felldum truflunum á innflutn- ingi, sem hlyti að leiða til al- varlegra truflana á framleiðsl- unni, ef ekki væri' ráðin bót á. Umframeyðslu þjóðarinnar kvað Ólafur ekki staf-a af eyðslu almennings, heldur vera beina afleiðingu af hinu gallaða efnahagskerfi. Þá benti ráðherrann á, hversu óheillavænlegar afleið- ingar það hefði, er bætur til framleiðslunnar væru mismun Vélstjóri slasast ÍSAFIRÐI, 3. febr. — Togar- inn Karlsefni frá Reykjavík kom hingað í gær með slas- aðan mann, Markús Jónsson, I. vélstjóra, sem hafði dottið og rifbrotnað. Togarinn var með rösklega 30 smál. af fiski, sem lagt var á land hér í dag. — Bé. VIÐ stöndum á örlaga- stund í lííi þjóðarinnar’ sagði Ólaifur Thors for- sætisráðherra, er hann fylgdi efnahagsfrumvarpi ríkisstjómarinnar úr hlaði í neðri deild alþingis í gær. Ef fólkið sýnir við- reisnaraætlun stjórnarinn- ar skilning, getur hún á skömmum tíma náð til- ætluðum árangri og skap- að nýjan grundvöll að upp byggingu atvinnuveg- anna. Borað á við Sigtún < Aðalfundur Sjómannafé- lags ísfirðinga AÐALFUNDUR Sjómanna- félags ísfirðinga var haldinn fyrir skömmu. Á fundinum var Jón H. Guðmundsson, skóla- stjóri, kjörinn heiðursfélagi þess. Hann hefur verið einn helzti málsvari sjómannasam- takanna á Vestfjörðum og for- maður félagsins um margra ára skeið. Margir fundir voru haldnir á liðnu starfsári og er hagur fé- lagsins með blóma. Stjórnina skipa nú: Sigurður Kristjáns- son, form., Jóhannes Bjarna- son, ritari, Steinn Guðmunds- son, gjaldkeri, Gísli Jónsson, fjármálaritari og Sigurjón Vet- urliðason. STÓRI jarðborinn er nú að bora skáholu út úr stóru bor- holunni við Sigtún. Er það í fyrsta sinn sem gerð er tilraun til að bora skáholu hér á landi, að því er Gunnar Böðvarsson tjáði blaðinu í gær. Þegar stóra holan við Sigtún, sem byrjað var á í desember síðastliðnum, var komin niður í 1000 metra varð vart við vatn — 5 sekúndulítra. Haldið var þó áfram og borað niður í 1200 metra. Ekki reyndist vatnsmagnið meira, þrátt fyrir þetta, og var því ákveðið að fara í æðarnar aftur — á ská. Var-borinn fluttur upp í 500 metra dýpi og holunni lokað þar. Var byrjað fyrir viku síð- an á undirbúningi undir að bora á ská frá þeim stað allt að 700 metra, þannig að skáhol an verði ca. 1200 metrar. Er þetta, sem fyrr segir, fyrsta tilraun sinnar tegundar hér á landi og því nýr áfangi í jarðborunum á íslandi. Engu vildi Gunnar Böðvars- sonar spá um árangur af þess- ari tilraun, nema vona hið bezta. Búizt er við, að borinn verði um 4 vikur með skáhol- una. Katrín Smári. Tekur sæfi á alþingi FRÚ KATRÍN SMÁRI tók í gær sæti á alþingi í veikinda- forföllumi Eggerts Þorsteinsson ar. Var kjörbréf hennar afgreitt í sameinuðu þingi, og að lok- inni samþykkt þess undirritaði frúin eiðstaf þingmaniia. Frú Katrín var í fjórða sæti á lista Alþýðuflokksins í Rvík við síðustu alþingiskosningar. Hún er þriðj.a konan, sem tekur sæti á núverandi' þingi. Hinar eru frú Ragnhildur Helgadóttir og frú Auður Auðuns. andi. Hæstu bætur væru þá veittar þeim greinum, sem halli er mestur á. Hinar háu bætur yrðu þó til þess, að fjármagr. og vinnuafl sækti til þessara greina, og þannig væri ýtt und- ir þær greinar, sem eru þjóðfé- laginu óhagstæðastar. Ólafur kvað hækkaða vexti eiga að skapa jafnvægi' milli framboðs og*eftirspurnar á pen ingamarkaðinum. en þeir mundu einnig valda þvf, að skuldarar greiddu til sparifjár- ei'genda, sem væri réttlátt, því ella mundu eingi hinna skuld- ugu aukast, en sparifé rýrna. MWMVWWMWWWWtiWH Baksvipur HANN bað okkur að halda nafninu sínu leyndu þessi; hélt að myndin kynni annars að koma sér illa síðar meir, til dæmis ef hann færi út í pólitík. En við máttum gjarnan segja frá því, að þegar myndin var tekin, var hann ná- kvæmlega 365 daga gam- all og fyrir hér um bil jafn mörgum dögum hætt- ur að vera hræddur við vatn. wtwwwwwwvwwww Alþýðublaðið — 6. febr. 1960 J

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.