Alþýðublaðið - 06.02.1960, Qupperneq 2

Alþýðublaðið - 06.02.1960, Qupperneq 2
Útgefandl: AlþýSuflokkurlnn. — Framkvæmdastjórl: Ingólfur Krlstjánsson — Hitstjórar: Gísll J. Ástþórsson (áb.) og Benedikt Gröndal. — Fulltrúi ritstjómar: Sigvaidi Hjálmarsson. — Fréttastjóri: Björgvin Guömundsson — Símar: 14 900 — 14 901 — 14 902 — 14 903. AUglýsingasimi 14 906 — AS- •etur: AlþýSuhúsiB. — Prentsmiðja AlþýSublaSsins. Hverfisgata 8—10. - Áskriftargjald: kr. 35,00 á mánuði. GJALDEYRISSTAÐAN % LÆKKUN 'gj aldey riseigna íslendinga og aukning gjaldeyrisskulda hefur leitt til mjög erf- iðrar ^ gjaldeyrisstöðu, einkum 1 frjálsum gjald- eyri. í árslok 1954 áttu bankarnir hreinar gjald- eyriseign'ir í frjálsum gjaldeyri að upphæð 220 millj. kr. í árslok 1959 voru þessar eignir með öllu horfnar, og í staðinn komin hrein skuld, að upphæð 65 millj. kr. Gjaldeyrisstaðan hafði með öðrum orðum versnað um 285 millj. kr. í frjálsum gjaldeyri á fimm árum. Á sama tíma hafði hún versnað um 15 millj. kr. í jafnkeypisgjaldeyri, eða um 300 millj. kr. samtals. Það mun óhætt að fullyrða, að um s.l. áramót hafi gjaldeyrisstaða íslands verið verri en nokkurs annars lands, sem upplýsingar liggja fyrir um, að einu eða tveimur e. t. v. undanskildum. Það hefur lengi verið Ijóst, að hverju stefndi um gjaideyrisstöðuna. Almennt er talið, að til þess að geta haldið uppi eðlilegum rekstri þjóðarbú- skaparins og mætt þeim áföllum, sem ætíð kunna að verða af völdum slæms árferðis eða óhagstæðra viðskiptakjara, se nauðsynlegt að eiga gjaldeyris- forða, er nemi a. m. k. 30—40% af árlegum inn- flutningi. Jafnvel í árslok 1954 var gjaldeyrisforði íslands ekki svo stór, og undanfarin tvö ár hefur enginn forði verið til. Af þeim sökum þurfti ekki annað að koma fyrir en nokkur tregða á sölu hræð- slusildarafurða í arslok 1959, til þess að skapa slíkt vandræðaástand, að varla reyndist mögulegt að úthíuta gjaldeyri til að standa við umsamdar greiðslur erlendra lána og til að kaupa rekstrar- vörur atvinnuveganna. Hin þunga greiðslubyrði og hin slæma gjaid- eyrisstaða hafa skapað mjög alvarl. ástand í efna- hagsmálum þjóðarinnar. í fyrsta lagi liggur við borð, að landið geti ekki staðið við umsamdar skuld bindingar sínar erlendis, þ. e. a. s, að það komizt í greiðsluþrot. Slíkt ástand, sem óvíða hefur þekkzt síðan á dögum heimskreppunnar miklu, hefur nú skapazt hér á landi í góðu árferði innaniands o'g í hagstæðu verzlunarárferði á erlendum mörkuð- um, ef frá er talin nokkur verðlækkun á bræðslu- síldarafurðum. í öðru lagi hlýtur gjaldeyrisskort- urinn innan skamms tíma að leiða til samdráttar í framleiðslu landsmanna, vegna þess, að ekki er hægt að flytja inn rekstrarvörur og byggingarefni jafnt og eðlilega, og gjaldeyrir er ekki aflögu til kaupa á framleiðslutækjum. Þetta ástand hlýtur von bráðar að rýra lífskjör almennings bæði sök- nm minnkandi atvinnu og skorts ,á innfluttum neyzluvörum. Nýir samningar vest- firskra bátasjómanna Á S.L. hausti sagði Alþýðu- samband Vestfjarða upp samn- ingum við útvegsmenn á Vest- fjörðum um kaup og kjör há- seta, matsveina og vélstjóra á bátum, sem veiða með línu, botnvörpu eða þorskanetum. Samningar þessir ná til allra verstöðva á Vestfjörðum, því stéttarfélögin eru öili innan vé- banda A.S.V. Um nokkurra ára skeið hef- ur verið í gildi heildarsamn- ingur milli A.S.V. og vest- firzkra útvegsmanna um sjó- mannakjörin, einnig á síldveið- um. Ennfremur hefur heildar- samningur um kaup og kjör landverkafólks verið í gildi röskan áratug. Samningavlðræður um sjó- mannakjörin hófust eftir miðj- an desember s. 1. í umræðun- um tóku þátt, auk fulltrúa sjó- mannasamtakanna á ísafirði og fulltrúa Útvegsmannafélags ísafjarðar, fulltrúar beggja aðila frá verstöðvunum við ísafjarðardjúp. Hinn 28. des. s. 1. náðist sam- komulag milli samninganefnd- anna og hefur það samkomu- lag verið staðfest af öllum stéttarsamtökum sjómanna á Vestfjörðum. HELZTU BREYTINGARNAR ERU ÞESSAR: Jf Þeir hásetar á landróðr- arbátum, sem eru á sjónum, skulu hafa, auk hlutar, kr. 700,00 á mánuði í kaup. Áður höfðu þeir aðeins hlutinn. Þóknun landformanns hækkaði í 500,00 kr. á mán. ýf Á útilegu, þegar veitt er í þorskanet, skal útgerðin greiða kr. 25,00 pr. smálest af slægðum og ísuðum fiski, sem skiptist jafnt á milli hásetanna. Auk þess er frádrag af óskiptum afla mun minna sam- kvæmt samningi A.S.V. um þorskanetaveiðarnar, en ann- ars staðar tíðkast. Jf 'Vetrarvertíð verður til 11. maí; en var til 20. maí. Jr Á landróðrarbátum er skipverjum tryggð minnst 12 st. hvíld að löndun lokinni á laugardag og þar til farið er í sjóferð á sunnudag. Þó skal aldrei farið í sjóferð fyrr en kl. 18 á sunnudag. * Um línulengd var ákveð ið, að sé fiskur seldur slægður, skal hver landmaður beita 7 bala (400 króka). Þó er heim- iit eftir 1. marz þegar fiskur er seldur slægður, að kaupa beitningu á TYz bala í róðri. Sé fiskur seldur óslægður skal hver landmaður beita 81^ bala. Jt Þá var ákveðið, að út- gerðin skyldi sjá um, í sam- ráði við skipaskoðunina, að á- kveðið magn af matvælum í hagkvæmum umbúðum sé um borð í hverjum báti. Jf Auk framangreindra at- riða voru ýmis önnur kjaraá- kvæði sem samið var um. f samninganefnd sjómanna- samtakanna voru: Björgvin Sig hvatsson. forseti Alþýðusam- bands Vestfjaiða, Sigurður Kristjánsson, form. Sjómanna- félags ísfirðinga, Kristinn D. Guðmundsson, form. Vélstjóra- félags ísafjarðar, Karvel Pálma son, form. Verkalýðsfélags Bol- ungarvíkur, Jens Hjörleifsson, form. ’Verkalýosfélags Hnífs- dælinga. Albert Kristjánsson, Framh. á 14. síðu. ^ Stórfróðleg erindi Luðvíks Kristjánsson. •fe Sögulegar rannsóknir afsanna ýmsar fullyrð- ingar íslendinga. •fo Úlpurnar í Hveragerði og bótatjón vátygginga félagsins. LÚÐVÍK KRISTJANSSON er góður og samvizkusamur fræði- maður. Það sýnir allt sem frá hans hendi kemur. Bækur hans um Vestlendinga eru fróðlegar, vel, ritaðar og vandaðar. — Nú flytur Lúðvík erindi um Jón Sig urðsson. Hann hefur þegar flutt tvö erindi um Jón Sigurðsson. Hann hefur þegar flutt tvö stór- fróðleg erindi um foretann og von er á fleirum. Lúðvík hefur rannsakað ævi forsetans, bréf hans og heimildir, árum saman og erindin eru árangurinn af þessum rannsóknum, en Lúðvík mun hafa í smíðum mikið rit- verk um þetta efni. f HITA áróðursins hafa fslend ingar næstum því í heila öld týnt allt til sem þeir töldu að setti ljóma á nafn þjóðhetjunnar og í þeirri viðleitni einnig dreg- ið allt það fram sem gæti sýnt við hvað Jón áiti að stríða og annes h o r n i n u I bá fyrsi og fremst ofsókmr Dar.a ! á hendur honum. Allt hetur ver- ið tiltýnt og skáldskaparm. eig' þjóðarinnar bætt við því, sem á vantaði til þess að gera línurn- ar en skarpari. LÚÐVÍK FLETTIR ofan af viðleitni þjóðarinnar og segir — og leggur áherzlu á orðin: „Það skal fremur hafa sem sannara reynist, hvort sem það líkar bet- ur eða ver“. —• Þetta er vel mælt. Við megum ekki lifa á sögulegum fölsunum ,hvorki í þessu efni né öðrum, við megum ekki lifa á lýgi. — Jón Sigurðs- son var ekki ofsóttur, langt frá því. Það voru ekki gerðar til- raunir til að kaupa hann fyrir embætti í Danmörku eins og ís- lendingar hafa látið í veðri vaka. ERINDI Lúðvíkt eru stór- merkileg og þurfa sem allra fyrst að komast á prent og fyrir hvers manns sjónir. — Þeir reyn ast oft bezt fræðimennirnir úr alþýðutsétt, einmitt þeir, sem vinna störf sín af þolinmæði í kyrrþey og forðast skrum og auglýsingar. Ég vona aö Lúðvík hafi tækifæri til þess að halda starfi sínu áfram. Hann hefur unnið þjóðnytjastörf á undan- fömum árum, þó að ekki hafi verið geypað mikið af því. — Og hann skilar sannarlega mikl um árangri til þjóðarinnar. NVLEGA fékk ég bréf, undir- ritað Hvergerðingur, þar sem kvartað var yfir þvf að vátrygg- ingarfélag hefði ekki bætt konu; nokkurri tjón er hún v'arcj fyrir þegar hún slökkti eld á heimili sínu með tveimur úlpuni Þetta bréf hafði legið hjá mér í nokkra daga eftir að ég fékk það. Þegar ég birti það hringdi st.arfsmaður eins tryggingarfélagsins fil mín og kvaðst telja líklegt áð átt væri við félaga hans. Sagði hann, að krafa hefði einmitt komið til þess frá konu í Hveragerði um bætur á tjóni á tveimur úlpum. Frá tryggingafélaginu fékk ég svo eftirfarandi bréf í gær: — „Með tilvísun til símtals við j'ð- ur í gær viljum vér biðja yður að leiðrétta frásögn þá, sem fram kom í bréfi ,Hvergerðings' í pistli yðar 4. þ. m. Hið sanna í málinu er: Tjónið skeði 26. des. s. 1., og eldsupptök voru þau að „lítið barn missti kerti á gólfið og út frá því kviknaði í jóla- húsi og bómull á gólfinu, og var eldurinn slökktur með því að leggja tvær úlpur á logann“. —- Tjónið er tilkynnt umboðsmanni tryggingafélagsins 28. des. og þann 4. janúar er greiðslan send til umboðsmannsins og hann greiðir tjónið 8. janúar; eins og sézt af meðfylgjandi afriti a£ kvittuninni. VÉR VILJUM sérstaklega taka fram, að tjónið var bætt að fullu og tæplega hefði verið hægt að gera það uPP á skemmri tíma, enda er kona sú, sem í hlut á, fyllilega ánægð með uppgjör tjónsins, og viljum vér í því sambandj sérstaklega biðja yður. að hnekkja ummælum „Hver- gerðings“ um skort á þjónustu hjá tryggingafélögunum.“ Hannes á hornina. ) ^e.íiiföbr. 1960 — Alþýðúblaðið

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.