Tíminn - 14.02.1872, Blaðsíða 5

Tíminn - 14.02.1872, Blaðsíða 5
17 daga þurfti stundum á Bakkanum, þá kallaði kaup- maður til Filpusar, því hann vissi, að jeg ljek mjer að því, að jafnhatta brennivínstunnuna, þegar jeg átti von á hálfpela fyrir. Jeg segi ykkur ekki meira af því, á Öskudagsmorguninn vakna jeg við það, að kaupmaður sjálfur er kominn austur í kot, og kallar á dönsku; jeg undirstód þá dönsku, eins og mitt móðurmál, og talaði aldrei sjálfur tóma dönsku, því maður mátti það ekki í þá daga á Bakkanum, ef yfirfólkið átti að forsto. Jeg man nú ekki orðrjett, hvað kaupmaður sagði; enn það man jeg hann kallaði: Filipp! og nefndi brende- vinstönde. Jeg vissi hvað klukkan sló, rauk á fætur, og gáði ekki smúla að fötum mínum, eins og þið megið nærri geta, þegar kaupmaðurinn sjálfur stóð þarna hálíboginn fyrir neðan pallinn, og beið eptir mjer. það var nú Ijúfmenni, mátti segja, og marga hressingu átti hann í mjer, góð- mennið. J»að fióir vatnið í munninn á mjer enn í dag, þegar jeg hugsa til hans; og mjer er það á við litla forfrislcning, að fyrirstilla mjer hálf- pelana, sem hann gaf mjer». «Súptu á staupinu, Filpus•>! segir bóndi, «og drekklu minni kaupmannsins. «Já, þetta skal vera hansskoU! segir Filpus, og tekur staupið. «Jeg ætla að hafa það eins og stendur í sálminum: ««hvar hann fer um saltan sjó, signi hann drottinn»» osfrv., því þó hann sje nú Idrukknaður, guðsmaðurinn, þá var hann mesti sjó- maður, og hafði siglt suður í heim, þar sem menn eru kolsvartir af sólbruna, og viðvaningar bráðna í sundur, eins og bræðingur. Og eptir því var hann byrsæll, blessaður! eins og ekki gat annað verið, slikur lánsmaður; enda ljek hann sjer að því, meðan hann sigldi milli landa, og stýrði sjálfur Galiössunni Galepei, að vera í Stokkseyrar- kirkju annan sunnudaginn og næsta sunnudag í Granisonskirhju í Iíaupinhafn; því svo var hann líka kirkjurækinn, guðsmaðurinn, þó liann ekki undirstœði allt, sem Herr Paslorinn fór með — sá sagði þeim á Bakkanum svart á hvítu, — þá sat hann þarna opt og einatt innanum okkur fá- tæklingana, lagði við eyrun, eins og við, þó hann aldrei hneigði sig fyrir .... nafni eins og við. Enn aldrei sá jeg hann vera til altaris; það mátti líka fyrr vera, enn að hann legðist á flöjelsbugs- unum niður á hart og óhreint kirkjugólfið». «Heyrðu Filpus» segirlngunn, «þú ætlaðirað segja öskupoka sögu af Bakkanum; mig langar ttl að heyra hana fyrst það er Öskudagur». «Já, satt var að tarna», segir Filpus; «enn hvað vítt var jeg kominn blessuð»? «í>ú varst komin á fætur» segir Ingunn, «og kaupmaður beið eptir þjer». Ganski rigtig» segir Filpus; «við gengum nú báðir í hálfdimmu, Filpus og jeg, jeg ætlaði að segja kaupmaðurinn og jeg, — út í pakkhúsið. Sá kunni að fara á fætur kaupmaðurinn sálugi. Nú mega sveitamenn opt snópa eptir þeim fram á miðjan dag. f>egar við komum í pakkhúsið, kveykir hann á glerlukt. Sá ljet sitt Ijós lýsa fyr- ir mönnum, eins og presturinn sagði á sunnu- daginn út af sáðmanninum. Jeg tók strax eptir því, að kaupmaður var ósiðvanalega brosandi, enn mig grunaði ekki neitt. Nú leiðir hann mig upp á pakkhúslopt — upp á krambúðarloptið kom jeg aldrei; enn Karitas mín sagðist opt hafa verið þar hjá kaupmanni, og fengið hjá honum afklippur. Bæði vorum við svona í uppáhaldi á Bakkanum. Enn nú birti Filpusi fyrir augum samt. Má jeg dreypa í kolluna, kunningi! áður enn jeg kem til skjalanna»? »Vertu eins og heima hjá þjer», segir bóndi. »Já, það er sú merkilegasta sjón, sem jeg hefi sjeð, á minni lífsfæddri æfi», segir Filpus, »jeg ýki það ekki: staílinn af brennivínstunnunum var eins og klettabelti; jeg varð að horfa upp fyrir mig. Og þá var annar staflinn nokkuð minni; enn það var Extrektin og Mjöðin. Sá jegaðkaup'- maður hjeltminna upp á Extrektina, því bæði var henni staflað innar á loptinu, og svo bað hann mig, að taka mig í akt, að koma ekki með þann staílann, meðan jeg var að bjástra í hinum; því Filpus ljet höndur standa fram úr ermum, meðan

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/96

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.