Tíminn - 12.07.1873, Síða 8
72
færum við villir vega, sem mundi valda honum
óþæginda og þorsta þeim, er «íslenzkamjólkin» fengi
eigi svalað. Fáfróðir sveitamenn.
MANNALÁT.
4. f. m. andaðist á Iínararnesi á Mýrum sjera
Benidikt Björnsson, síðast prestur til Hvamms í
Norðurárdal, 76 ára.
— 10. f. m. andaðist húsfrú Guðrún Jónsdóltir,
seinni kvinna sjera Sveins Níelssonar, próf. og
Dbr.r. á Staðastað, 66 ára.
— Á seinastliðnum vetri andaðist á Jónsnesi i
Helgafellssveit sjera Jóhann Bjarnason, fyrrum
aðstoðarprestur til Helgafellssafnaða.
— Nýlega er sagður dáinn Jón bóndi STcúla-
son á Grímstungu í Vatnsdal.
— 27. dag fyrra mánaðar andaðist að Hálsi í
Fnjóskadal eptir hálfs mánaðarlegu, presturinn sjera
Porsteinn Pálsson 67 ára að aldri.
— Gufuskipið «Pera» kom aptur 10. þ. m. til
að sækja hesta þá, er eigi komust með því um dag-
inn. Vesturheimsfararnir, er fóru hjeðan með því>
höfðu komist heilir heilsu til Granton, að frátek-
inni konu einni, er ól barn á leiðinni, sem sagt
er að hefði heilsast vel ; mannflutningaskip, er
fara átti þegar til Vesturheims, lá þar tilbúið, svo
að Vesturheimsfararnir komust strax með því.
BÓKAFREGN.
SÁLMAR, útlagðir úr ýmsum tungumálum af
sjera Helga Hálfdánarsyni. Rvík, 1873, IV+104,
12‘o, kostar 32 sk.
— (Aðsent). I formálafyrir «Den Danslte Rim
Krönike», sem útgeOn er í ár, í Fotolithografisk
Faksimile, (Ljóssteinprentunar-eptirmynd) segir:
að hún sje sú fyrsta bók, sem prentuð sje í
Danmörk, og jafnvel sú eina á 15. öld. En í
niðurlagi bókarinnar sjálfrar stendur: «Tha war
thenne Kronicke tryckt aff ny», má af því ráða,
að prentverk hafi byrjað í Danmörk áður en hjer
er sagt, eins og talið er i «Söguágripi um prent-
smiðjur og prenlara á íslandi», Rvlk, 1867. f>ar
sem talið er: «Að hin 1. bók sje Donat, prent-
aður I Kmh. 1493. Og enn telja aðrir, að þar
hafi verið prentuð latnesk sálmabók 1457, af Got-
fred af Ghemen, -j- 1510.
tíST Meiðyrði þau, er jeg hafði um daginn á
Reykjavíkurplázi, við Kristján bónda Gíslason á
Görðum í votta viðurvist, apturkalla jeg hjer með,
sem dauð og marklaus og oftöluð, jafnframt því.
að biðja hann fyrirgefningar á þeim. |>etta leyG
jeg velnefndum Kristjáni, að auglýsa í «Tímanum»
hið fyrsta. Staddur í Reykjavík, 10. júlí 1873.
Ólafur Ólafsson frá Kollgröf.
AUGLÝSINGAR.
C0r* Hver sem eiga kynni ofaukið eða einstakt
3. ár «Híýrra er vinsam-
legast beðinn að unna undirskrifuðum kaups á því
með hæfilegu verði. Rvík, 10. júlí 1873.
Jón Borgfirðingur.
— Ef einhver væri sá, er gæti geflð mjer und-
irskrifuðum ýmislegt viðvíkjandi æfiatriðum Sigurð-
ar Breiðfjörðs, vil jeg vinsamlegast mælast til þess
sem fyrst, gegn sanngjarnri þóknun, sömuleiðis að
unna mjer kaups á handritum hans, bæði af rímum
og öðrum fleiri ljóðmælum og lausavísum, sem
óprentuð væri. Rvík, 10. júlí 1873.
Jón Borgfirðingur.
PRESTAKÖLL.
Yeitt: Möðruvallaklaustur, 17. f. m. sjera
Davíð Guðmundssyni á Felli.
Bergstaðir 18. f. m. sjera ísleifi Einarssyni
Hákonsen I Reykjavík.
Óveitt: Fell I Sljettuhlíð, með annexíunni Höfða,
metið 302 rd. 94 sk., auglýst 18. f. m.
Útgefendur: Nokkrir Reykvíkingar.
Ábyrgðarmaður: Páll Eyjúlfsson.
Prentatur í prentsniibju íslands. Eiaar pórlarson.