Tíminn - 12.08.1873, Qupperneq 2

Tíminn - 12.08.1873, Qupperneq 2
n eptir Björn bónda Sigurðsson á Belgsholti. Hún stóð fyrir búi sonar síns Þorvaldar prests Björns- sonar á Reynivöllum í Kjós. f 30. f. mán. andaðist hjer í Reykjavik, verzl- unarmaður Peter Ludvig Levinsen 47 ára. -j- 31. f. mán. andaðist merkisbóndi, og Danne- brogsmaður Bjarni Brynjúlfssou, fyrr á Kjaranstöð- um á Akranesi, 58 ára. -f- (Aðsent). í júlímánuði þ. á., andaðist hinn háaldraði merkis- og atorkumaður Benidikt járn- smiður Þorsteinsson á Akureyri, hann var hrein- skilinn, tryggur og vandaður maður í öllu dagfari sínu, hann stundaði lestur og bókmenntir og mátti teljast með fróðari alþýðumönnum. Fingraríms- iþróttina kunni hann manna bezt, sem því miður er nú að leggjast niður, eins og ýms önnur göm- ul fræði. Hann hefir ritað um a, «meðferð og og herðing á ljáum» í feNorðran 1. ár 1853, nr. 11 —12, 16. b) «athugasemdir um sumarauka» í «Norðra» 4.ár 1856, nr. 7. ásamt fleiri ritgjörðir óprentaðar um það efni og íslenzkt tímatal. — ALÞlNGI íslendinga hið 14. var lokið 2. þ. mán. eptir að hafa starfað að ætlunarverki sínu, um rúman mánaðar tíma, — til 2. ágúst — hefir þetta þing staðið skemmst af alþingum þeim er haldin hafa verið síðan það hófst 1845. Viljum vjer lesendum «Tímans» til gamans setja hjeryfir- lit yfir það, hversu lengi hvort þing hefir staðið: 1845 stóð frá 1. júlí til 5. ágúst 29 fundir. 1847 — — 1. — — 7. — 36 — 1849 — — 2. — — 8. — 38 — 1853 — — 1. — — 10. — 35 — 1855 — — 2. — — 9. — 31 fundur. 1857 — — 1. — — 17. — 32 fundir. 1859 — — 1. — — 18. — 42 — 1861 — — 1. — — 19. — 49 — 1863 — — 1. — — 17. — 39 — 1865 — — 1. — — 26. — 46 — 1867 — — 1. —- — 11. Sept. 54 — 1869 — < 27. — — 13. — 43 — 1871 — — 1. — — 22. Ágúst 42 — 1873, stóð frá 1. júlí til 2. ágúst 24 fundir' Af þeim 10 kgl. frumvörpum er þessu þingi voru fengin til meðferðar, voru 2 samþykkt af þeim, nefnilega frumvarp til tilsk, um ábyrgð fyrir elds- voða í Reykjavíkur kaupstað, og frumvarp til tilsk. fyrir ísland, um hlunnindi nokkur fyrir sparisjóði. Af hinum öðrum málum og bænarskrám er komu til þingsins, voru hin merkilegustu, um reiknings- yfirlit íslands 1871—72 og áætlun 1873, og svo stjórnarbótarmáliH er tekið var til meðferðar og umræðu 25. f. mán., og leitt til lykta með góðu samkomulagi, því hjer átti sjer ekki stað, að þessu sinni, neinn meiri eða minni hluti. í þingloka- ræðu sinni gat konungsfulltrúi þess, að mál þetta mundi loksins verða farsællega á enda kljáð, fyrir hið góða samheldni og samkomulag á þessu þingi. Að síðustu var samið ávarp frá þinginu til Hans Hátignar Konungsins, er hjer kemur prent- að orðrjett eins og þingið samþykkti það, og er svo hljóðandi; Allramildasti konungur! Um leið og Alþingi (slendinga lýkur störfum sínum í síðasta skipti áður en nýjar kosningar fara frarn, finnur það hjá sjer sterka innvortis hvöt til að senda Yðar Iíonunglegu Hátign þetta þegn- lega ávarp til þess að yfirlýsa þeirri lotningu, sem það ber fyrir Y. Ií. H. og því traust til Y. Ií. H., sem það er gagntekið af. í hjörtum vorum býr sú lifandi sannfæring, að Y. K. H. vilji veg og frama allra þegna Yðvarra, eins vor fslendinga sem annara, og þessi sannfær- ing styðst við þá yfirlýsingu, sem Y. K. H. allra- mildilegast hefir þóknazt að gjöra við byrjun ríkis- stjórnar Yðar í opnu brjefi dagsettu 23. Febr. 1864, þar sem Y. Ií. H. allramildilegast heitir því með berum orðum, að sýna öllum þegnum Yðar sama rjeltlæti og sömu velvild, og sjer í lagi við það heityrði, sem Y. H. hefir gefið íslendingum í brjefi 8. Júlí s. á., þar sem Y. H. hefir lýst því yfir, að heill íslands liggi Yður ríkt á hjarta, og að Y. H. skuli leitast við að sjá og framfylgja hag landsins. 1) í>j<5bfuudaritin 1861, stób frí 5. Júlí til 9. ág. 16 fundir.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/96

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.