Tíminn - 25.03.1874, Side 1
Verð blaðsins (12 arltir) árg.
4 )L Fyrri hlutinn greiðist
fyrir lole marzm., en síðari
hlutinn fyrir útgöngu júlí-
mánaðar 1874 til ábyrgðar-
mannsins.
3. ár.
itsmiwSo
„Tímans í straumi stöndum,
sterMega sem oss ber“.
Tleylejavík, 25. marz 1874.
Auglýsingar verða telenar í bl.,
fyrir 3 (í smáleturslínan, en
2 /3 stcerraletursl. Parfleg-
ar ritgj. til almenningsheilla
verða borgaðar eptir sam-
leomulagi við ábyrgðarm.
6.-7. blaðT
— Póstskipið «Diana» skipstjóri J. U. A. Holrn,
kom hingað loksins 22. þ. m. kl. 5 e. miðd. eptir
22 daga útivist, með því komn þessir farþegar:
Jón Guðmundsson ritstjóri jþjóðólfs, Oddur V.
Gíslason kandid. theol., Matth. Jokkumsson síðast
prestur til Iíjalarnessþinga, Jón Stefánsson verzt-
unarstjóri, Markús Bjarnason er numið hefur sigl-
ingafræði bæði hjer og erlendis, og stúlka hjer
úr Reykjavík.
— Sjerlegra líðinda er ei getið, veturinn hafði
verið einmuna góður, bæði í Danmörku og víðar.
Matvara og kaffi er sagt að sje í mjög háu verði.
— Eigi var rektorsembættið enn veitt, og er
sagt að kennslustjórnin hafi gefið Jóni Sigurðssyni
lofun fyrir veitingu, en hann ýmsra orsaka vegna
muni afbiðja veitingu embættisins.
— Steingrími Thorsteinssen, er veitt kennara-
embættið við lærðaskólann.
— STJÓRNARSKRÁ um hin sjerstaklegu mál-
efni íslands er útkomin 5. janúar þ. á. og nær
hön lagagildi 1. dag ágústmán. næst komandi. —
Enn fremur eru komin út nokkur önnur nýlaga-
boð og eru þau þessi:
1. Auglýsing til íslendinga, dags. 14. febrúar þ.
á., sem birtir að stjórnarskráin sje út komin.
2. Auglýsing 29. desemb. 1873 um hina nýju
gullpeninga að þá megi hafa sem gjaldgenga
frá 1. janúar þ. á.
3. Tilskipun 5. janúar þ. á. um að landshöfðing-
inn geti ákveðið hegningu fyrir minni háttar
yfirsjónir sem fangar þeir, er dæmdir eru í
begningarhúsið í Rvík verða sekir í.
4. Tilskipun frá s. d. um hlunnindi fyrir spari-
sjóði á fslandi.
5. Tilskipun 14. febr. þ. á. um ábyrgð fyrir elds-
voða ( Reykjavík.
6. Tilskipun 28. febr. þ. á. um að öll hegning-
arvinna er menn eru dæmdir í eptir hegning-
lögunum. skuli frá 15. ágúst útteknar í hegn-
ingarhúsinu í Reykjavík.
7. Tilskipun s. d. um hvernig út taka skuli hegn-
inguna í hegningarhúsinu í Reykjavík.
— Vestanpósturinn kom hingað að kveldi dags
15. þ. mán. og norðanpósturinn 20. s. m. I
brjefum er bárust með þeim hvervelna að, má
lesa, jarðbannir, harðindi, rosa og illviðri með
stormum, frosthörkum og ísalögum víðsvegar um
land. Ofsaveður gengu í Múlasýslunum í desem-
bermánuði f. á., fuku þá skip, hjallar og 1 timb-
urhús fór um koll á Seyðisfirði og annað reif til
stórskemmda. Aptur kom annað ofsaveðrið á
Austfjörðum 11.—12. jan. þ. á. í því veðri fóru
um koll, og molbrotnuðu kirkjurnar á Berunesi
og Beruíirði. Þessa daga urðu frostin mest (
norðurlandi, 24° t. a. m. á Jökuldal. 2 menn urðu
úti á Dimmafjallgarði í hríðunum um sömu mundir.
— Hafísinn sást hvergi fyrir norðurlandi þá
pósturinn var á hingaðferð sinni.
— Verðlagsskárnar fyrir árið 1874 —1875, hafa
stiptsyfirvöldin samið fyrir Borgarfjarðar, Gull-
bringu og Kjósar, Árnes, Rangárvalla og Vest-
mannaeyjasýslur samt Reykjavíkurbæ, og er með-
alverð allra meðalverða hver alin á 2tí,3 sk. í
Austur- og Vestur - Skaptafellssýslu 26,7 sk. í
ísafjarðarsýslu og ísafjarðarkaupstað, 30,s sk. í
Mýra, Snæfellsness, Hnappadals og Dalasýslum
29,8 sk. Og fyrir Barðastrandar og Strandasýslur
29,i sk.
— Jafnaðarsjóðsgjaldið fyrir árið 1874, er á-
kveðið í suðuramtinu 18 sk. og í vesturamtinu
16 sk. af hverju tíundarbæru lausafjárhundraði.
— Alþingistollurinn þ. árs er l8/io skilldins af
hverjum ríkisdal jarðaafgjaldanna.