Tíminn - 25.03.1874, Síða 7
27
þvi bezta, og meira og minna blandað) 1 rd. pnd.
en óbrennt 4 mrk 8 sk., brennivín koslar nú 32
sk. potturinn og svona fram eptir þessu...........
Nú er verið að prenta íslenzkan Kalender, sem er
ætlaður til að fylgja með Almanakinu, þar í eru
allir merkisviðbnrðir á íslandi og áhrærandi ís-
land. Kalenderinn átti að fara með þessari póst-
skipsferð, en varð ekki albúinn. Jón Sigurðsson
hefur samið hann og gefur út. . . . Sagt er að
krónprinzinn okkar og prinzinn af Wales (krón-
prinzinn af Englandi) muni ætla að koma tll ís-
lands í sumar».
•— Eptir «Skandinaven» er út kom 20. Janúar
1874, yflr 3 mánuði 1873 — júlí, ágúst og sept-
ember — komu inn í Bandaríkin frá Norðurálf-
unni 38,693 karlmenn og 29,970 kvennmenn. Á
ferðinni dóu 77 (karlmenn 40 og kvennmenn 37)
Af þessum hingaðfluttu «Emígröntum»
frá Englandi . . . 15,399
— írlandi . . , . 13,190
— Skotlandi . . . 2,791
— Wales . . . . 257
— Úýzkalandi . . 24,381
— Auslurríki . . . 936
— Svíaríki . . 2,139
— Noregi . . . . 2,022
— Ðanmörk . . 525
— Frakklandi . . . 1,740
— Schweiz . . 640
— Spáni . . . . 92
— Ítalíu . . . . 1,029
— Hollandi . . 857
— Prússlandi . . 1,208
— Pólen . . . . 581
— Ungarn . . . . 313
Og á sjónum fæddust 29
Um íslendinga er ekki getið, er munu hafa verið
um 300, og eru þeir víst taldir með Norðmönu-
um.
(Aðsent). Smávegis frá eynni «Psychros».
Hinn «stórvirknasti» eyjarskeggi, er sagt að
hafl í reikninga sína, uió, kerti og eldivið, þykja
þeir verða við það gleggri og greinilegri; til sæl-
gætis í veizlum: auglýsingar og sóda. Póstleiðin
hjá honurn með pakka, liggur í gegnnm skorsteina
sem ekið er á hjólbörum. Hátíðahettan er sett
ósamkynja tölum og útslitnum ceum.
(Sjá Tremarecs Ileisebeschr.
ÝMISLEGT INNLENT.
— Úr brjefl af ísafirði 24. f. m. «Hjerna er
mikill harðinda vetur, ísinn heflr legið hjer síðan
rjett eptir nýár og enginn dráttur hefur fengistúr
sjó síðan þann tíma og lítur út fyrir hin mestu
harðindi yfir höfuð. Hjer ganga mikil veikindi og
það helzt taugaveiki*. . . Skipskaði varð rjett
fyrir jólin í Súgandaflrði. Var formaður á skip-
inu Brynjólfur í Bæ og drukknuðu 9? menn með
honum».
— Úr brjefi af 7. þ. m. úr Gnúpverjahrepp.
«Hjeðan er fátt gott að frjetta, heyskortur er mjög
almennur, tíðin umhleipingasöm, síðan að hún
breyttist, einlægar smáhlákur sem enda með krap-
snjóum, hjer til fjallanna svo það hefur orðið hag-
laust 1—3 daga, en ekki lengur hjer var lógað
miklu af heyjum, en hætt við of litlu hjá sumum».
— MANNALÁT. Sira Guðlaugur Sveinbjarnar-
son, seinast prestur til Hvamms í Norðurárdal og
Norðtungu í þverárhlíð, er nýdáinn. Vígður 1815.
— Þá er spurðist hinn sorgarlegi atburður í.
þ. mán. er getið er um í 5. blaði «Tímans» hjer á
undan, var þetta hugleitt:
1.
Hví skyldum vjer eigi hryggðar við fregn
er harmsærðum bera verður um megn,
viknuðu hjarta, sem horfandi á
harðan og sviplegan atburð, svo tjá:
liknaðu guð, þeim sem líða?
2.
Honum því einum er huliðsmál Ijóst
hjartans og kunn þögul andvarp sem brjóst
sært lætur upp stiga’ að hásæti hans,
í hendi sjer gjörvöll er kjör geymir manns
og líknsamast börn sín við breytir.
3.
Vjer getum samhryggst, en megnum ei meir,
meðbræðrum vorum, er líkt reyna þeir,
guðlegur máltur og eilífðin ein