Alþýðublaðið - 18.02.1960, Blaðsíða 16

Alþýðublaðið - 18.02.1960, Blaðsíða 16
Diðr kvik mynd SÍÐASTA kvikmynd Ing- inar Bergmans, „Jomfrukil- den“, var frumsýnd í Stokk- hólmi s. 1. mánudag og hlaut hún mjög góðar viðtökur gagnrýnenda, en íhaldsblaðið Svenska Dagbladet spyr þó hvort kvikmyndaeftirlitið hefði ekki átt að banna mynd ina. - Sagt er að Bergman hafi hótað að sýna ekki mynd ina ef svo mikið sem einn millimeter yrði klipptur úr henni. Ekki er vitað hvort nokkuð er til í þessum orð- rómi en Svenska Dagbladet segir, að það sé furðulegt að eftirlitið skuli ekki hafa klippt myndina að ráði. Það aíriði myndarinnar, sem mesta undrun vekur sýn- ir tvo menn nauðga ungri stúlku og drepa hana síðan. Annað atriði sýnir mann myrða tvo menn með slátrara- hníf og bví næst rota lítið barn. Listagildi „Jomfrukil- den“ er talið mikið og með- ferð efnisins í heild með slík- um ágætum, að margir telja að Bergman hafi aldrei tek- ist betur upp. En áðurnefnd atriði eru þó talin ganga of Iangt £ hörkulegu raunsæi, sem . jaðrar við sadisma. Svenska Dagbladet segir að myndin sé högg milli augna á- horfandans og hnífstunga í hjartað. Kvikmyndagagnrýn- andi Dagens Nyheter skrifar, að „Jomfrukilden“ sé bezta mynd Bergmans og fegurri og grimmari kvikmynd hafi varla verið gerð í heiminum. íslenzk listakona í Höfn Á ÞRIÐJU hæð í húsinu númer 20 við Nyhavn í Kaupmannahöfn býr ís- lenzka listakonan Júlíana Sveinsdóttir. Hún hefur bú- ið í Höfn í marga áratugi og er þekkt þar ekki síður en hér á landi fyrir verk sín og er pess sKemmst. ao mmnast að í haust var henni boðÁ að gerast meðlimur í lista- mannafélagsskapnum „Kam- meraterne11 og danska lista- safnið hefur keypt af henni margar myndir. Þótt Júlíanna sé nú kom- in á efri ár vinnur hún ið að list sinni, ýmist málaratrönumar eða vefstól- inn. Mynd:n er tekin af konunni á heimili hennar fyrir nokkrum dögum. Hann lækkaði flugið. Lend- ingarhjólin snertu jörð, flug- vélin fleytti kerlingar mörg hundruð metra vegalengd eft- ir ströndinni, skall á kletti, eldur kom upp í eldsneytis- geymslunni og flugmaðurinn brann til bana í stjórnklefan- um. Hér fara á eftir tilkynning- ar stjórnarvalda í Kína og á Formósu: Nýja-Kína, fréttastofa Kín- verja segir: „Mig-orustuþota fórst sökum vélarbilunar, er Hversvegna ti TAIPEI, febr. (UPI). — Kín- verski flugmaðurinn, sem lenti flugvél sinni á austur- strönd Formósu, tók með sér Ieyndarmál í gröfina. Og það eru engin tök á að upplýsa það. Hvers vegna flaug hann hinni rússnesku MIG orustu- þotu yfir til Formósu, þar sem þjóðernissinnar ráða? Þjóðernissinnar segja, að hann hafi verið að flýja og gerðu útför hans virðulega, og letrað er á gröf hans: „Píslarvottur, sem var að leita frelsis“. En kommúnistar segja, að liann hafi misst stjórn á flug- vélinni vegna bilunar. Hvorki þjóðernissinnar né kommúnistar hafa sagt, að þeir hafi haft radiosamband við hann meðan hann flaug yfir sundið en það tekur um liálftíma. olli því, að flugmaðurinn, sem var á æfingarflugi, missti stjórn á flugvélinni“. Enn fremur sagði fréttastofan, að flugvélar þjóðernissinna hafi knúið hana til að lækka flug og síðan hafi hún hrapað vegna eldsneytisskorts. Landvarnaráðuneyti þjóð- ernissinnastjórnarinnar á For mósu segir; MIG-flugvél frá kommúnistum „gaf sig okkur á vald“ og „stór flokkur af flugvélum kommúnista reyndi án árangurs að knýja hana til að snúa við“. Hver segir Satt? Á Formósu var talrð, að þetta hefði gerzt á þá lund, að flugvélin hefði farið á loft í liópi annarra véiá og þær flogið í röð. Eftir tíu mínútur flaug vélin út úr röðinni og tók stefnu á Formósu og flaug yfir sundið í krákustigum. Fjórar Sabreþotur frá For- mósu urðu hennar varar í radar og fylgdu henni eftir á þann hátt, unz hún fáeinum mínútum seinna fói'st í lend- ingunni. Flugstjórinn á einni Sabre- þotunni sagði. að MIG-þotan hefði flogið í 42 þús. feta hæð, er hennar varð fyrst vart. Kvað hann Sabrevélarnar aldrei hafa komið nær en 5000 fet. TOGARINN Surprise fn Hafnarfirði seldi afla sinn Bremerhaven í gær, 155 lestii fyrir 98 þúsund mörk. Tveir togarar munu selja Bretlandi í dag og einn á morg un. Portúgaíar viSja þrjár mííur BANDARÍSKA fréttastof- an UPI segir frá því í frétt frá Lissabon, að vegna mik- illa þorskveiða sinna séu Portúgalir á móti stækkun á landhelgi ríkja. Átti * frétta- stofan nýlega tal við sendi- herra Portúgala í Kanada, þar sem hann lýsti þessu af- dráttarlaust yflr. Hann sagði: $ „Portúgalir geta ekki fallizt á kanadísku tillöguna um, að núverandi þriggja mílna mörk verði færð út í 6 mílna land- helgi og 12 mílna fiskveiðitak mörk. Þriggja mílna reglan er ein hin elzta af alþjóðalög- um“. Bætti sendiherrann við: „tyið vonum, að réttlátu, marghliða samkomulagi verði náð í Genf um þessa réttlátu hefð“. Þá segir fréttastofan, að í Lissabon hafi meðlimir sendi- nefndar Portúgala á Genfar- ráðstefnuna ekkert viljað segja um fyrirætlanir Portú- gala á ráðstefnunni. Þó hefur hún. það eftir mönnum í fisk- veiði.ðnaðinum, að Portúgalir muni gera það, sem þeir geti til að halda heimshöfunum eins opnum og hægt sé fyrir fiskimenn. í fréttinni segir, að nálega 100 portúgölsk skip leiti á hverju ári til fiskimiðanna við Nýfundnaland og Græn- land í leit að þorski og segir, að miklu fé hafi verið varið Framha’d á 14. síðu. 41. árg. — Fimmtudagur 18. febrúar 1960 — 39. tbl.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.