Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1896, Síða 47
47
snertir, vel geti veriö svo gamall (frá Á'rdalskirkju í Sogni
Noregi er enn til nokkurn veginn heill dyraumbúningur, með
mjög líku skurðverki, sem er á stoðinni til hægri handar á
myndinni, og er hann talinn vera frá 12. öld. Dietrichson, Den
norske Træskjærerkunst. Chr. 1878. 31—36. bls. Hildebrand,
Frán aldre tider. Sth. 1882. 11—17. bls.); hitt er miklu líklegra,
að stoðirnar séu gerðar um 1260, er kirkjan var reist i þriðja
sinn, en þær eru ekki heldur miklu yngri; er og engin furða, þó
að þær hafi getað haldizt nokkurn veginn óskaddaðar svo lang-
an tíma, þar sem efnið í þeim er ágætt, enda nokkurn veginn
vist, að þær hafa lengi verið innan húss, ef til vill alla tið til
1744, svo sem áður er á vikið.