Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1996, Page 64
68
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
hátt, skammt frá gömlum landamerkjum Hrólfsstaða og Fossvalla. Frá
kumlinu sést að Slútagerði, eyðibýli um 100 metrum utar með Jökulsá á
Dal. Slútagerði er talið hafa byggst þegar á fyrstu öldum.8 Um það bil
jafnlangt er að Hrólfsstöðum innar með ánni. Hrólfsstaðir eru nýbýli út
úr Hauksstaðalandi, en á Hrólfsstöðum var einnig búið áður fyrr, og er
bærinn sagður fara í eyði um 17009. Sandhóllinn lokar útsýni frá kuml-
stæðinu inn dalinn, svo hvorki sést til Hrólfsstaða né Hauksstaða.
Um hjallann austan undir Sandhóli lágu elstu götur um dalinn, og þar
lá einnig fyrsti bílvegurinn sem lagður var upp úr 1930, austan megin við
kumlstæðið. Um miðja öldina var vegstæðið fært um nokkra metra nær
Sandhólnum, vestur fyrir kumlið. Engum sögum fer af beinafundi í sam-
bandi við vegagerðina og ekki vissu heimamenn af beinunum, svo líklega
er langt síðan kumlið var rofið.
Tildrög þess að kumlið uppgötvaðist voru þau, að árið áður hafði ver-
ið fjarlægt og urðað járnarusl sem safnast hafði saman á hjallanum undir
Sandhóli. Hefur þá verið ýtt jarðvegi ofan af beinunum. Vatn, vindur og
frostlyfting um veturinn hefur orðið til þess að beinin komu fram í dags-
ljósið.
TILVÍSANIR:
1 Kristján Eldjárn: Kuml og haugfé úr heiðnum sið á Islandi 1956, bls. 290.
2 Kristján Eldjárn: 1956, bls. 242.
3 Ragnar Blomqvist: Karnmar frán Lunds medeltid, Kulturens ársbok 1942, bls. 136.
4Jan Persson: Uppgrávt förflutet för PK-banken i Lund, Archaeologica Lundensia VII
1976, ritstj. Anders W. Mirtensson, bls. 321.
5 Ragnar Blomqvist 1942,bls. 138.
6 Jan Persson 1976, bls. 325-327.
7 Eva Elvira Klonowski: Skýrsla, beinafundur frá Hrólfsstöðum Jökuldalshreppi.
8 Steinunn Kristjánsdóttir: Landnámsbær, kirkja, rétt... 1996, bls. 53-55.
9 Halldór Stefansson: Fornbýli og eyðibýli í Múlasýslum, Múlaþing V 1970, ritstj. Ar-
mann Halldórsson, bls. 172-188.
SUMMARY
The author discusses a burial discovered in 1996 at Hrólfsstaðir in Jökuldalur, eastern
Iceland. Previously disturbed human skeletal renrains were found on the ground surface.
Despite the disturbance of the grave, its outline could be discerned. Examination of the
bones showed them to be of a male aged 22-32, but revealed nothing about his health or
the cause of death. Grave goods included an iron knife with a wooden handle and also
the remains of a comb and comb-case. The comb has a single row of teeth, conforming
to the commonViking Age type. Both the comb and the case were decorated.
The burial is located near the abandoned farm of Slútagerði, close by the oldest paths
through the valley. The surface had been disturbed by machining about a year before the
find, after which natural erosion had exposed the bones.