Víkverji

Tölublað

Víkverji - 04.09.1873, Blaðsíða 2

Víkverji - 04.09.1873, Blaðsíða 2
80 inu. Rússar hafa og lálið hann banna man- sal ( ríki sínu og taka úr lögum líflát, og munu það vcra þarfar rcttarbætr. Llfiát hefir verið tíðska að fremja með afskaplegri grimd i Chiwa, sem annarstaðar með austrænum þjóðum. Við manfrelsisgjöfina losnuðu 30,000 Persa, er Kífungar höfðu náð með ránum. {>að þykir Persakonungi vænt um, cnda leita Rússar allra ráða að vingast við hann betr en Englendingar, hinir grannar hans (að austan). Annars ber þó ekkert á fáþykkju með Rússum og Englendingum, sem sumir spáðu, ef Rússar tækju Cbiwa, enda væri slikt ekki nema óþarfa tortrygni. Rússakeis- ari hefir n<Iega fastnað Alfred prins, öðrnm syni Victoriu drottningar, einkadóttur sína, er María heitir, og fagnar hvortveggja þjóðin vel þeim tíðindum. Englendingrinn Scmiuel Baher, er Egipta- jarl gjörði út með her manna í hitt eð fyrra suðr með Níl í landaleil, er nýlega kominn aptr heilu og höldnu úr miklum mannraun- um. Befir hann helgað Egiptajarli land alt suðr frá Núbíu alt að miðjarðarbaug, og stemt þar að miklu leyti stigu fyrir mansali. Hann hafði barist opt við Blámenn á ferð sinni. Á Frahhlandi er varla hugsað um annað um þessar mundir en bænahald og pilagríms- göngur, jarteiknir hafa verið svo tíðar þar í sumar, að stjórnin, sém nú sitr þar að völd- um og viðtók af Thiers, er kölluð «jarðtegna- stjórn». þykir það vera vottr þess,að «alþjóða- liðarnir svörtu» (svo kallaf Bismark krist- munka) seu í meiri kærleikum við nýu stjórn- ina en fyrirrennara hennar, og kalla fæstir það holt landi og lýð. Afli stjórnarinnar á þinginu í Versölum fer heldr vagsandi, og verðr hún við það æ stríðari þjóðvaldsmönn- um, Hún reynir á allar lundir að greiða braut fyrir einvaldsstjórn, og hefir nú fengið í því skyni greifann at' París, sonarson Loð- víks Filipps og ættjöfur Orleansmanna, til þess að fara í kynnisleit til frænda síns, her- togans af Charobord (Hinriks fimta), konungs- efnis Lögerfðamanna, og tjá honum lotning sína. Er þá fram komið samsteypu Lögerfða- manna og Orleaninga, er lengi hefir verið á prjónunum. f>ingið í Versölum hefir nú tek- ið sér hvfld þangað til 5. nóvember, þá kvað eiga að láta það taka í lög stjórnarskrá og laka upp aplr konnngsstjórn, fá herloganum af Chambord lignina. En það er vonandi, að þjóðveldismönnum lakist að rugla reikningn- um. f öndverðum þessum mánuði fór setu- liðið þýska heim, því nú er skuldin nær al- goldin. f>að er Thiers að þakka, svo sem ölluin er kunnngt, enda hafa streymt til hans þakkarávörp úr héruðunum, sem lausninni áttu að fagna. — Ný dauðr er Odilon Bar- rot, stjórnvitringr, frægr síðan 1848, aðhann átti svo mikinn þátt í að steypa Loðvík Filipp úr völdum (82 ára). — Nú er Rochefort loks kominn af stað til Ný-Caledoníu. Á Italiu hafa orðið ráðherraskipti í sum- ar: þeir Lanza og Sella farnir frá, en Ming- hetti sett saman nýtt ráðuneyti. — Á ensha ráðuneytinu hefir orðið dálitil breyting og hefir Jón Brigt hlolið sæti þar. Persahonungr er nú á leið til Miklagarðs frá Vín. í París var látið ákaflega mikið með hann. þaðan fór hann til Sviss, og síðan til Vínar, en kom á þeirri leið við á Norðr-íta- líu, og hafði þar fund Viktors konungs. Svíakonungr og Norðmanna hefir ferðast í sumar um endilangan Noreg og látið krýn- ast í Niðárósi ásamt drottningu sinni (18. júli). jþar var mikið um dýrðir og út býtt kynstrum af «stjörnum» og «krossum.>, enda er Oscar öðrum viðbrugðið fyrir örlæti á slíkum hýrgunum. llann hefir jafnvel skipt stjörnunum sínum í marga smáflokka og fjölgað þeim að þvi skapi, til þess að þurfa að láta sem færsta synjandi frá sér fara. Hann hefir boðið til sín Friðrik keis- araefni þjóðverja, og þá hann boðið og sigldi til Kristjaníu sunnan frá Kiel hérna um dag- inn. Fögnuðu Norðmenn gesti konungs síns virkta vel. Núerhann á leið til Stokkhólms. Er ekki trútt um, að Dönum þyki ferðalag þetta hálfískyggilegt, og bætir það ekki úr skák, að i frönskum blöðum hefir nýlega staðið, að Sviar og þjóðverjar væru að tala sig saman um að shipta Danmörhu á milli sín. J>eir Nordenskjöld prófessor og hans félagar eru komnir úr norðrferð sinni síðan i fyrra sumar. t’eir komust að eins skamt

x

Víkverji

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkverji
https://timarit.is/publication/99

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.