Víkverji

Tölublað

Víkverji - 04.09.1873, Blaðsíða 5

Víkverji - 04.09.1873, Blaðsíða 5
89 Vér játum, að vér höfum eigi íhugað mál þetta svo fullkomlega, að vér með vissu get- um sagt, hvorir mæla sannara. En hér er einungis um að ræða nafnið tómt, og oss mundi eigi miðr þykja, þó að stjórn vor léli að óskum íslendinga ( þessu lítilfjörlega máli til þess að styrkja bróðurband það, er ætti að tengja ina víðfrægu fornættinga nor- rænu þjóðanna við Danmörk». Um stjórnarmál vort segir blaðið meðal annars: « l’að er satt, að konungr vor árið 1848 hét íslendingum, að þeir skyldu fá frjálsa stjórnarskipun, þá er fundr í landinu sjálfu hefði sagt álit sitthér um. t’að er og satt, að samkvæmt heitorði þessu var sljórn- arskrár frumvarp, er íslendingum ómögulega gat getist að lagt fyrir aiþingi 1851. Enn fremr vitum vér, að stjórnin sendi, þá er alþingi ræddi frumvarp þetta, herskip til landsins og á því hér um bil 15—20 dáta; er einungis gátu verið til að hlægja að, og meðal annars fóru að reisa upp her- virki, er á voru 4—6 fallbyssur, en engi þeirra nokkuru neyt. l’á er fleiri alþingis- menn mótmæltu stjórnar-frumvarpinu, var þinginu slitið, fyrr en það hafði rætt frum- varpið til lykta. Öll þessi aðferð var íhæstu lagi vitlaus, en engum öðrum en þeim, er þá sátn í stjórninni, verðr kent um heimsku þessa; in danska þjóð getr enga ábyrgð haft á henni. Danir höfðu þá annuð að hugsa um. Þeir höfðu nvunnið sigr í ófriði er hafði staðið í 3 ár, og margir rnenn höfðu lálið líf sitt í; nú átti að biuda um sárin og semja friðinn. Allir voru óvissir um, hvernig þjóðinni mundi reiða af, og það má eigi telja það vanrækt á skyldusemi, að þeir eigi sér- lega hugðu að hag lítils „ríkis“, (þannig kemst ið sænska blað að orði), er lá i mikl- um fjarska frá Danmörku. Vér getum eigi réttlætt stjórnina, er hún fleiri ár eptir inar heimskulegu aðfarir sínar 1851, gerði eigi neitt til þess að leiða stjórnarmál íslendinga til lykta, en hún heíir þó síðar gert nokkr- ar tilraunir hér til, og það frumvarp, er hún lagði fyrir alþingi 1871, var svo frjálslegt, sem framast mátti verða, og veitti íslending- um alt það, er þeir sjálflr höfðu beðið um, einkum með tilliti til þess, hvernig greina átti milli sameiginlegra og sérstaklegra mála, og áttu íslendingar að ráða öllu í eignum málum sínum». 3. Grein þá, er vér gátum um hér næst á undan, hefir þann blæ, að engin orsök er til að efa, að ritstjórinn eðr einhver annar, að öllu danskr maðr, hefir ritað hana. Þar á móti færir «Degs Telegrafen» lesöndum sfnum 10. f. m. grein eina, er reyndar, eins og hin greinin, hlýtr að vera rituð af manni, er eigi hefir í mörg ár komið hingað til landsins, en sumt er það þó í grein þessari, er bendir á, að maðrinn, þó að hann sé danskr, hafi fengist nokkuð við islensk mál og skilji svo mikið í islensku, að hann geti lesið blöð vor, en hins vegar er honum harla hætt við, að misskilja bæði þau og annað. Hann fræðir fyrst Dani um það, að Jón Sigurðsson, alþingismaðr ísfirðinga, eigi hér á landi flokk, er hælt er við að láta mikið yfir sér, hóta mönnum illu að orsakalausu, og þykjast meiri en aðrir menn, en þessi flokkr er eigi íslenskr í rétlum skilningi þessa orðs. Menn, er skilja fornsögur vorar, geti hæglega séð þetta, og þeir mnnijafnvel kom- ast að raun um, að Jón Sigurðsson sé eigi ísiendingr, að minsta kosti er höfundrinn kominn að þeirri niðrstöðu, að það, er Jón Sigurðsson hefir skrifað, sé bæði óíslensku- legt og ófrjálslegt (II). Um leið og höfundr- inn setr fram þessa kenningu, er hann mun eiga hægt með að fá Dani tii að dást að, en sem er þess eðlis, að íslendingar með með- alvitsmunum eiga hægt með að dæma um hana án leiðbeiningar, fer hann nokkrum orðum um Larsen háskólakennara, er ritaði í mót tillögum í’jóðfundarins, en höfundrinn hefir eigi heldr fundið hjá honum þann ís- lenska anda, er hann hefir fyrir sér fundið í Höfn; þó segir hann, að rit Larsens sé samið með skarpleika og lærdómi miklum sjálfsagt meira, en Jón hefir sýnt í riti sínu gegn Lar- sen, er sjálfsagt er bæði óíslenskulegra og ófrjálslegra en ritLarsens! jþar sem það, er fram hefir komið frá Jóni Sigurðssyni, hafi verið ófrjálslegt og óíslenskulegt, segir höf- undrinn framvegis, hafi Jón verið mótdrægr öllura samgöngum á meðal Dana og íslend- inga, og örðugt sé því að skilja, hví hann mótmælti þeim, er á t’ingvallafundinum vildu eigi hafa önnur sameiginleg mál við Dani,

x

Víkverji

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkverji
https://timarit.is/publication/99

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.