Alþýðublaðið - 27.03.1960, Blaðsíða 7
voru veiddir af Akranesháfum um síðustu helgi. Af
Ibeim reyndust aðeins 7.862 hæfir til frystingar.
Hvað olli?
Sjá frétt á 3. síðu.
svona þorskar
Mac-millan í Keflavík
Framhald af 1. síðu.
ar hafði verið hrundið upp, birt
ist Macmillan sjálfur, fyrstur
allra farþeganna. Hvasst var í
veðri og hár forsætisráðherr-
ans flaksaðist til í rokinu. Mac-
millan var hress í bragði og
gekk brosandi niður landgöngu
brúna. Þar heilsuðu honum
fyrst, þeir Bjarni Guðmunds-
son, Tómas Tómasson og brezki
ambassadorinn. Með Macmill-
an var Sir. William Penney,
ráðgjafi brezku ríkisstjórnar-
innar í kjarnorkumálum, full-
trúar úr brezka utanríkisráðu-
neytinu, hraðritarar og fleira
fylgdarfólk.
VODKA ÞAÐ EINA, SEM
DREKKANDI ER.
Ljósmyndarar Reykjavíkur-
blaðanna og blaðamenn hópuð-
ust aS forsætisróðherranum, er
hann gekk inn í flugvallarhót-
elið. En Macmillan kvaðst ekk-
ert hafa að segja, og ekki vilja
svara spurningum blaðamanna.
Er inn í flugvallarhótelið kom,
var Macmillan boðið upp á
vodka og um leið lýsti hann
því yfir, að vodka væri eini
drykkurinn, sem drekkandi
væri. Forsætisráðherrann var
hinn hressasti, kveikti sér í
pípu og gekk um gólf um ieið
og hann ræddi við Bjarna Guð-
mundsson, Tómas Tómasson og
brezka ambassadorinn. Sir Vill-
iam Penney var oftast nær-
staddur og Macmillan kynnti
hann brosandi sem mesta mann
í heimi.
Macmillan er fremur hár
maður vexti, myndarlegur á að
sjá. Hár hans er mjög tekið að
grána, enda er hann nú orðinn
66 ára, en hann er fæddur 10.
febrúar 1894.
HÖRÐ HRÍÐ
BLAÐAMANNA
Blaðamenn og Ijósmyndarar
gérðu nýja hríð að Macmillan
og forsætisráðherrann spurði
brosandi', hvaða fólk þetta
væri eiginlega. Honum var
sagt, að iþarna væru fulitrúar
Reykjavíkurblaðanna á ferð
og vildu gjarnan spjalía lítil-
lega við hann. „Hvað eru blöð
in í Reykjavík eiginlega
mörg?“ spurði' forsætisráð-
herra. Aðeins 5, var svarið.
Þá stóð Macmillan á fætur og '
kvaðst vilja segja nokkur orð
við blaðamennina.
Forsætiráðherrann sagði: Ég
hef í rauninni ekkert að segja.
Ég er mjög þakkláttír fyrir að
hafa fengið tækifæri til þess
að komia hérna við að degi til
(áður hefur hann komið við í
Keflavík að næturlagi) og
þakka ágætar móttökur full-
trúa ríkisstjórnarinniar. Ég er
á leið til Washington til við-
ræðna við ráðamenn þar. Ég
óska ykkur alls hins bezta.
Fleiri voru orð Macmillans
við blaðamennina ekki. Er það
skiljanlegt, að forsætisráðherr-
ann haifi' ekki viljað ræða mikið
för sína til Washington, svo
geysimikilvæg sem hún er. För-
in er farin í skyndingu og stend;
ur vafalaust í beinu sambandi'
við síðustu tillögur Rússa á af-
vopnunarráðstefnunni.
LÍKAÐI VEL VIÐ
EGIL STERKA
Macmillan var nú boðið upp
á glas af Agli sterka, islenzka
bjórnum. Lét Macmillan vel af
bjórnum. Hélt hann að vísu
* . M . * -
fyrst að hann vaefi danskur, en
hanum var tjáð, að hér væri' um
íslenzka framleiðslu að ræða, að
vísu aðeips fyrir útlendinga.
Rétt fyrir kl. 1 fór Macmill-
an að 'hugsa sér til hreylfings. Á
leiði'nni út kom hann við í
minjagripasölu Ferðaskrifstofu
ríkisins og skoðaði þar gæru-
skinn og sttihvað flei'ra. Að lok
um fékk hann nokur or af Rvík.
Var nú haldið út í flugvélina.
Macmillan þakkaði ágætar mót-
tökur, kvaddi viðstadda og hélt
brosandi um borð. Hann sneri'
sér við í dyrunum og veifaði
brosandi til allra viðstaddra.
Leiðréliiitg
Þau leiðu mistök urðu hér í
blaðinu í gær, að röng fyri'rsögn
var sett á grein Símonar Guð-
jóhssonar, eins og raunar ligg-
ur í augum uppi, þegar greinin
er lesin. Fyrirsögni'n átti að
vera: „Svar til Jóns frá Pálm-
hó3ti.“ Aiþýðublaðið harmar
þessi mistök.
' iiiiiiiiiitiiiiiiiiiin > eii ii i ii iiii iiiii iiiim íim iiiiii tvwii i iiii ii
Kaupið AlþýðublaBIB
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiimiimiiiiiiiiiiiiiiiin
F JÁRMÁLARÁÐUNEYl IS>
hefur ákveðið að falla frá fyr-
irframgreiðslu upp í skatta og’
önnur þinggjöld ársins 1960,
sbr. reglugerð nr. 103/1957,
vegna þeirra breytinga, sem.
væntanlegar eru á tekjuskatts-
greiðslum. Hefst fyrirframinn-
heimtan því ekki fyrr en 1.
maí n. k.
(Fjármálaráðuneytið,
25. marz 1960).
FIMMTUGUR er í dag Eyj-
ólfur Guðmundsson kennari,
Tunguveg 2, Hafnarfirði.
Alþýðublaðið — 27. marz 1960 ^